483. spurningaþraut: Þetta eru þrautir sunnudagsins

483. spurningaþraut: Þetta eru þrautir sunnudagsins

Mynda­spurn­ingar:

Á mynd­inni hér að ofan sést ein allra, allra fræg­asta ball­er­ína heims í upp­hafi 20. aldar. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Rabat heitir höf­uð­borgin í ... hvaða landi?

2.  Hvers konar dýr er and­ar­nefja?

3.  Michael Phelps heitir Banda­ríkja­maður nokkur, nýorð­inn 36 ára. Hvað gerði hann sér til frægðar fyrr á öld­inni?

4.  Kona ein var nefnd Sérasade — þótt staf­setn­ing nafns­ins sé nokkuð á reiki. Hvað gerði hún sér til frægðar?

5.  Eleanor Roosevelt hét eig­in­kona Frank­lins Roosevelts Banda­ríkja­for­seta, og heil­mik­ill skör­ungur. Hvað var ætt­ar­nafn hennar áður en hún gekk að eiga Roosevelt verð­andi for­seta?

6.  Magnea heitir ein per­sónan í sjón­varps­þátta­röð­inni Kötlu. Hún er svo fár­sjúk að hún má ekki mæla, og eig­in­maður hennar stendur því frammi fyrir ákveðnu sið­ferði­legu vanda­máli þegar tví­fari hennar birt­ist — svona bráð­hress og heilsu­hraust. Hver leikur Magneu?

7.  En hver leikur eig­in­mann hennar, Gísla?

8.  Hver skrif­aði bók­ina The Murder of Roger Ackroyd árið 1926?

9.  En meðal ann­arra orða, hver drap Roger Ackroyd?

10.  Hve margir þétt­býl­is­staðir eru á þjóð­veg­inum milli Hvera­gerðis og Víkur í Mýrdal?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hver liggur hér dauður fyrir hunda og manna fótum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Marokkó.

2.  Hvalur.

3.  Ein­stakur afreks­maður í sundi.

4.  Sagði sögur í þús­und og eina nótt.

5.  Roosevelt.

6.  Sólveig Arn­ars­dóttir.

7.  Þor­steinn Bachmann.

8.  Agatha Christie.

9.  Sögu­mað­ur­inn í bók­inni.

10.  Þrír - Selfoss (Árborg), Hella og Hvols­völlur.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Anna Pavlova.

Á neðri mynd­inni er restin af Heinrich Himmler.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár