484. spurningaþraut: Kúlur tvær, heldur stórar

484. spurningaþraut: Kúlur tvær, heldur stórar

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hvað er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hjá hvaða dýrum ólst Móglí upp?

2.  Hver skrif­aði um Móglí?

3.  „... og næstum eins og nunna er, / þótt níu hund­ruð ára sé.“ Hver er sú?

4.  Hver söng þetta?

5.  Hvaða ríki í ver­öld­inni hét áður Rhódesía?

6.  Allium sativum heitir jurt ein, sem þykir mögnuð. Þeir eru til sem ótt­ast bein­línis um líf sitt fyrir henni, þótt „líf sitt“ sé kannski ekki nákvæmt orða­lag hér. Hvað er Allium sativum?

7.  Hversu mörgum flug­vélum var rænt 11. sept­em­ber 2001?

8.  Á Alþingi Íslend­inga situr nú ein menntuð leik­kona. Hvað heitir hún?

9.  Móðir hennar var einnig leik­kona og þótti ein sú fremsta á land­inu á ofan­verðri síð­ustu öld. Hún er nú látin, en hvað hét hún?

10.  Hvaða fyr­ir­bæri er Hubble sem tók til starfa 1990?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Úlfum.

2.  Kipling.

3.  Grýla.

4.  Ómar Ragn­ars­son.

5.  Simbabve.

6.  Hvít­laukur.

7.  Fjórum.

8.  Helga Vala Helga­dóttir.

9.  Helga Bachmann.

10.  Stjörnu­sjón­auki.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hið svo­nefnda Hel­stirni eða Dauða­stjarna úr Star Wars mynd­inni, á ensku Death Star.

Á neðri mynd­inni er stytta af jötn­inum Atlasi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár