446. spurningaþraut: Er Loki kominn í tísku?

446. spurningaþraut: Er Loki kominn í tísku?

Fyrri aukaspurning:

Hver er sá frægi Íslendingur sem sést á myndinni hér að ofan?

***

Aðalspurningar:

1.  Fyrirtækið Nokia var um tíma um síðustu aldamót í fararbroddi í framleiðslu farsíma, þótt fyrirtækið hafi svo misst af lestinni þegar snjallsímar komu til sögunnar. En áður en Nokia hóf framleiðslu á farsímum, þá var það þekkt á Íslandi fyrir að framleiða allt aðrar vörur. Hverjar þá?

2.  Í hvaða landi er Nokia annars upprunnið?

3.  Hvað heitir stærsta stöðuvatnið á Suðurlandsundirlendinu fyrir utan Þingvallavatn?

4.  Sjónvarpssería um sprelliguðinn Loka hefur verið vinsæl að undanförnu en hún er hluti af bíó- og sjónvarpsframleiðslu hvaða stórfyrirtækis?

5.  Í norrænu goðafræðinni guðinn Loki gjarnan kenndur við móður sína. Hann er sem sagt ...?

6.  Loki á nokkur börn, og með jötnastúlku einni eignaðist hann til dæmis úlf einn mikinn. Hvað heitir sá úlfur?

7.  En Loki eignaðist líka eina ferlega dóttur sem ræður ríkjum í undirheimum. Hvað heitir hún?

8.  Og enn af afkvæmum Loka — hann brá sér einu sinni í merarlíki og eignaðist þá áttfætt folald, sem síðar varð hestur Óðins aðalguðs. Hvað hét hann?

9.  Hver af þessum var EKKI keisari í Rómaveldi hinu forna: Avitus, Augustus, Barbarossa, Caracalla, Geta, Elagabalus, Romulus, Tacitus?

10.  Hvaða persónu ætlaði Davíð Stefánsson skáld að „syngja heim í dalinn, þar sem ég ætla að byggja og nema land“.

***

Seinni aukaspurning:

Annar frægur Íslendingur, hver er þetta?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Gúmmístígvél.

2.  Finnlandi.

3.  Apavatn.

4.  Marvel.

5.  Laufeyjarson.

6.  Fenrir, Fenrisúlfur.

7.  Hel.

8.  Sleipnir.

9.  Barbarossa. Hann var að vísu keisari í hinu svonefnda „heilaga rómverska ríki“, en það er allt annað en Rómaveldi hið forna. Allir hinir voru Rómarkeisarar um lengri eða skemmri tíma, Avitus og Romulus að vísu bara í vesturríkinu.

10.  Dísu í Dalakofanum.

***

Svör við aukaspurningum:

Á efri myndinni er söngvarinn Damon Albarn, sem nú er orðinn íslenskur ríkisborgari sem kunnugt er.

Á neðri myndinni er söngkonan Bríet.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár