Samningur um lögheimili en barnið sent úr landi samkvæmt dómi

Íslenskri móður hefur verið gert að senda dóttur sína úr landi og til Dan­merkur þar sem íslenskur faðir hennar er búsettur. Þetta er nið­ur­staða Lands­réttar þrátt fyrir að fyrir liggi sam­komu­lag um að stúlkan eigi að hafa lög­heim­ili hjá móður sinni. Það sam­komu­lag er stað­fest af sýslu­manni.

„Dönsk stjórn­völd álíta sem svo að ég hafi rænt dóttur minni,“ segir Eva Dögg Guð­munds­dóttir sem um síð­ustu ára­mót ákvað að senda dóttur sína ekki til íslensks föður síns í Danmörku heldur skrá hana til heim­ilis hjá sér hér á landi. Lands­réttur hefur nú úrskurðað að senda eigi dóttur hennar til Dan­merkur þar sem útkljá eigi deilur for­eldr­anna um búsetu hennar. Öll þrjú eru íslenskir rík­is­borg­arar og fyrir liggur sam­komu­lag um lög­heim­il­is­skrán­ingu hjá sýslu­manni, sem gerir ráð fyrir að stúlkan hafi heim­ili hjá móður. 

Deilt er um hvort að nýtt munn­legt sam­komu­lag hafi kom­ist á milli for­eldr­anna sem hún hafnar. Hér­aðs­dómur kemst að nið­ur­stöðu að svo sé en Lands­réttur stað­festi þann úrskurð án þess að fjalla sér­stak­lega um það. Engin skrif­leg gögn virð­ast til sem sýna fram á breytt sam­komu­lag. 

„Þjóðskrá var búin að skoða málið og úrskurð­aði að það væri heim­ilt að skrá dóttur mín á mitt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár