375. spurningaþraut: Bókaflokkar og ólympíuverðlaunahafar

375. spurningaþraut: Bókaflokkar og ólympíuverðlaunahafar

Þraut, já, síðan í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Ekki vildum við mæta karl­inum hér að ofan svona á svip­inn. Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Columbia, Challanger, Discovery, Atlantis og Endeavour. Hvaða listi er þetta?

2.   Ung stúlka heitir í raun og veru Jane en gengur yfir­leitt undir nafn­inu Eleven eða jafn­vel bara El. Hún hefur ýmsa dul­ar­fulla hæfi­leika. Eleven er ykkur að segja per­sóna í vin­sælli Netflix-seríu. Hvað heitir ser­ían sú?

3.   Vetr­ar­vindar heitir bók, sem er ekki komin út og eng­inn veit hvenær hún kemur út. Fastlega er hins vegar búist við því að hún muni verða ein­hverjar 1.500 síður eða svo, þegar hún birt­ist loks­ins. Hún verður þá sjötta bindið í bóka­flokki sem í munni flestra er kall­aður ... hvað?

4.   Annar bóka­flokkur taldi alls 47 bækur, en þær voru reyndar stuttar hver um sig. Bækurnar, sem komu út á íslensku, skrif­aði hin norska Margit Sandemo. Hvað nefnd­ist bóka­flokk­ur­inn hennar?

5.   Í hvaða hverfi Reykja­víkur er Guð­ríð­ar­kirkja? Hér þarf nákvæmt svar.

6.   En hvar á land­inu er hins vegar Gler­ár­kirkja?

7.   Þann 17. júlí 1918 gerð­ist svo­lítið í borg­inni Eka­ter­ín­burg í Rúss­landi. Því var að vísu haldið leyndu lengi framan af enda var um frekar voveif­legan atburð að ræða. Hvað gerð­ist þarna?

8.   Hver var fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem komst á verð­launa­pall á ólymp­íu­leik­unum?

9.   En hver var næstur?

10.  En þriðji Íslend­ing­ur­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi kona, sem hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þetta eru banda­rísku geimsku­tl­urnar.

2.   Stranger Things.

3.   Game of Thrones eða Krúnu­leikar. Raunar heitir ser­ían Söngvar um eld og ís en eftir vin­sældir sjón­varps­s­er­í­unnar Krúnu­leika hefur það nafn fest við bóka­flokk­inn.

4.   Ísfólkið.

5.   Graf­ar­holti. Graf­ar­vogs­hverfi er ekki rétt þótt kirkjan til­heyri form­lega þeirri kirkju­sókn, að mér skilst.

6.   Akureyri.

7.   Rúss­neska keis­ara­fjöl­skyldan var myrt.

8.   Vil­hjálmur Ein­ars­son þrí­þraut­ar­stökkvari.

9.   Bjarni Frið­riks­son júdómaður.

10.   Vala Flosa­dóttir stang­ar­stökkvari.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Prins Valíant.

Melinda Gates. Ann­að­hvort nafnið dugar.

***

Og loks hlekkur á þraut, já, síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár