374. spurningaþraut: Hvaða ríki á þennan fána? og fleira

Hér er þraut frá í gær. Prófið hana!

***

Fyrri auka­spurning:

Hvaða ríki hér í heimi á þann fána sem hér að ofan sést?

***

Aðal­spurningar:

1.   Hvað stendur skamm­stöfunin www fyrir þegar um netið er að ræða?

2.   Hvað heitir Suður-Afríku­maðurinn sem knýr áfram geimferða­fyrirtækið SpaceX, bíla­fyrirtækið Tesla og fleira?

3.   Hver voru tvö síðustu ríkin sem fengu aðild að Banda­ríkjunum? Nefna þarf þau bæði?

4.   Ekki er ósennilegt að í náinni framtíð verði tveimur bætt við. Þar er annars vegar um að ræða eyju í Karíbahafi sem heitir ...?

5.   En hins vegar fer borg nokkur á bandarísku landsvæði fram á að henni verði veitt tign sérstaks ríkis. Hver er sú borg?

6.   Hver sagði: „Veit ég það, Sveinki!“

7.   Hver er forsætis­ráðherra („first minister“) á Skotlandi?

8.   Um hvern var að tefla þegar Jesú sagði: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum?“

9.   Hver var fyrsta konan sem varð formaður gamal­gróins stjórn­málaflokks beggja kynja á Íslandi?

10.   Hvaða poppstjarna birtist á dögunum léttklædd á forsíðu tísku­tímaritsins Vogue?

***

Seinni auka­spurning:

Sú illskeytta gyðja tímans, sköpunar, eyði­leggingar og valds, sem sést á myndinni hér að neðan, heitir ...?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.   World Wide Web.

2.   Musk.

3.   Alaska og Havaí.

4.   Puerto Rico.

5.   Höfuð­borgin Washington.

6.   Jón Arason biskup.

7.   Nicola Sturgeon. Eftir­nafnið dugar.

8.   „Bersyndugu“ konuna. María Magdalena er EKKI rétt, því hvergi í guðspjöllunum er minnst á að það hafi verið hún.

9.   Margrét Frímanns­dóttir.

10.   Billie Eilish.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri mynd er fáni Víetnam.

Gyðja sú úr Hindúasið sem sést á neðri myndinni heitir Kalí.

***

Hér er gærdags­þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár