ÁTVR selur vín frá ólöglegum landtökubyggðum

Fram­leiðsla vín­s­ins fer fram á Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu en land­töku­byggðir Ísraels þar eru brot á alþjóða­lögum.

ÁTVR selur vín frá ólöglegum landtökubyggðum
Merkt hinu forna Ísrael Hið forna Ísrael er ekki við­ur­kennt land. Mynd: Eldar Ástþórsson

Í Vínbúðum ÁTVR er til sölu vín frá vín­fram­leið­and­anum Psagot en fram­leiðsla vín­s­ins fer fram á her­teknu svæð­unum á Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu. Land­töku­byggðir Ísraela þar eru brot á alþjóða­lögum og brjóta í bága við alþjóð­leg mann­rétt­inda­lög. Með sölu vín­anna brýtur Vínbúðin einnig gegn sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fyr­ir­tækið starfar eftir.

Félagið Ísland-Palest­ína hefur sent alþing­is­mönnum erindi þar sem vakin er athygli á þess­ari stað­reynd. ÁTVR er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem starfar sam­kvæmt Global Compact sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem er alþjóð­leg yfir­lýs­ing sem fyr­ir­tæki og stofn­anir geta haft að leið­ar­ljósi við inn­leið­ingu ábyrgra starfs­hátta. Fyrstu atriði sátt­mál­ans eru að „fyr­ir­tæki styðja og virða vernd alþjóð­legra mann­rétt­inda og fyr­ir­tæki full­vissa sig um að þau ger­ist ekki með­sek um mann­rétt­inda­brot.“

Þá eru vínin sem um ræðir einnig rang­lega upp­runa­merkt en þau eru sögð frá „Hinu forna Ísrael“ þegar stað­reyndin er sú að þau er fram­leidd á Vest­ur­bakk­anum. Með því er brotið gegn sam­þykktum Evr­ópu­sam­bands­ins en Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu úrskurð­aði í nóv­em­ber 2019 um að vörur frá land­töku­byggðum skuli skýrt merktar upp­runa­stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár