Varpa upp myndum af bólusetningu og sundi

Hreyfimynda­hátíðin hefst á morgun og verða myndbands­verk sýnd á völdum stöðum í miðborginni.

Hreyfimyndahátíðin Borgarbúar geta fylgst með vídjóverkunum frá og með morgundeginum.

Hreyfimynda­hátíðin fer af stað í Reykjavík á morgun, laugar­daginn 10. apríl, og stendur yfir í viku. Myndbands­verkum verður varpað víðsvegar um miðborgina þessa daga og kennir þar ýmissa grasa.

Eitt mynd­verkanna á sérstak­lega við samtímann, en það var tekið um miðja síðustu öld og sýnir frá börnum í grunn­skóla fara í röðum í ljós og bólu­setningu og Reyk­víkinga í sundi, sem borgar­búum er þessa dagana óheimilt sjálfum að gera vegna samkomu­takmarkana.

Staðirnir þar sem hægt verður að berja verkin augum eru Bíó Paradís, Ráðhúsið, Héraðs­dómur, Vatns­stígur, Mengi, Tjarnarbíó og Lækjar­gata.

Reyk­vík­ingar í sundiÁ Hreyfi­mynda­há­tíð­inni má meðal ann­ars sjá gömul mynd­skeið sem varpað er á hús­veggi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár