Biden byggir brýr

Joe Biden hefur nú gegnt emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna í tæpa tvo mán­uði. Helstu línur í áherslum hans eru farnar að skýr­ast og gamlir banda­menn í Evrópu rétta fram sátt­ar­hönd eftir erfið sam­skipti við Trump-stjórn­ina síð­ustu fjögur ár. Hans bíða þó erfið verk­efni heima fyrir þar sem Covid-far­ald­ur­inn geisar enn, hálf milljón manna hefur látið lífið af völdum sjúk­dóms­ins og hag­kerfið er í sárum.

Biden byggir brýr

Banda­rískir fjöl­miðlar hafa margir gripið til sam­lík­inga við stöð­una sem var uppi þegar Franklin Delano Roosevelt tók við emb­ætti for­seta árið 1933 í krepp­unni miklu. Þá var fjórð­ungur Banda­ríkja­manna án atvinnu og fyrstu 100 daga Roosevelts í emb­ætti tókst honum að keyra í gegn 15 ný laga­frum­vörp til að bregð­ast við neyð­ar­á­stand­inu. 

Útlitið er vissu­lega ekki eins svart núna, rúm­lega sex pró­sent Banda­ríkja­manna eru í dag á atvinnu­leys­is­skrá, en fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á einu ári og áætlað er að alls hafi tíu milljón störf glat­ast í Covid-far­aldr­inum. Eitt af fyrstu verkum Biden-stjórn­ar­innar var að vinna með Demókrötum á þing­inu til að leiða í gegn frum­varp um 1,9 trilljón doll­ara inn­spýt­ingu í hag­kerfið. For­set­inn und­ir­rit­aði lögin nú um miðja viku og þýðir það meðal ann­ars að margir skatt­borg­arar munu eiga rétt á allt að 180 þús­und króna ein­greiðslu í næsta mán­uði.

Á alþjóða­vett­vangi lét Biden einnig strax til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár