320. spurningaþraut: Lokaorð frægra bóka — og lokasenur tveggja bíómynda

320. spurningaþraut: Lokaorð frægra bóka — og lokasenur tveggja bíómynda

Hlekkur á þraut­ina í gær.

***

Fyrir þrjá­tíu dögum spurði ég um upp­hafs­orð frægra skáld­sagna. Þá komu fram ein­dregnar óskir (ja, frá einum manni alla­vega!) um að end­ur­taka leik­inn en spyrja þá um loka­orð skáld­sagna en ekki upp­hafs­orð. Og hér er sú þraut komin. Mynda­spurn­ing­arnar snú­ast aftur á móti um loka­senur frægra kvik­mynda.

Sú fyrri:

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hvaða bíó­mynd endar svona?

***

Aðal­spurn­ingar eru allar eins. Hvaða bók endar svona:

1.   „Hann elskaði Stóra bróður.“

2.   „Linur Björn.“

3.   „Afar fáir skip­brots­menn geta hrósað sér af því að hafa lifað svo lengi við hrakn­inga á sjó eins og hr. Patel og eng­inn í félag­s­kap við full­orð­inn Bengal­tígur.“

4.  „Í stað þess að ausa salti í plóg­förin að fornum sið komu nú til skjal­anna tveir þrek­vaxnir menn með prjóna­húfur, þeir komu á gam­alli drátt­ar­vél með aft­aní­vagn og eftir að hafa kastað nokkrum rekum moldar lögðu þeir grænt torf yfir reit­inn þar sem Gamla húsið stóð ...“

5.   „Eru ein­hverjar spurn­ingar?“

6.   „Eftir eru aðeins nokkrir væng­breiðir nöt­ur­legir mávar á sveimi, fuglar vetr­ar­ins, þeir hinir sömu sem verptu eggjum sínum á naktar kletta­syll­urnar í vor.“

7.   „Ég hljóp með vind­inn blásandi framan í mig og með bros eins breitt og Pansjer-dalur á vör­unum. Ég hljóp.“

8.  „Dýrin úti litu frá svíni til manns og frá manni til svíns og aftur frá svíni til manns en nú þegar var ógjörn­ingur að segja hver væri hvað.“

9.   Rétt er að taka fram að ég er ekki viss um að mjög margir hafi í raun­inni lesið þau loka­orð frægrar sögu sem hér fylgja á eftir. Með því að skoða text­ann vel ætti þó að vera hægt að giska á hvað hér er á ferð:  — „Að lokum sá hún fyrir sér hvernig þessi sama litla systir myndi í fram­tíð­inni vera orðin full­orðin kona og hvernig henni myndi lán­ast gegnum öll sín full­orð­insár að halda í ein­falt og ást­ríkt barns­hjartað, og hvernig hún myndi safna kringum sig öðrum litlum börnum og augu þeirra myndu blika af ákafa og spennu yfir ótal skrýtnum sögum, kannski jafn­vel draumum frá [TILTEKNU LANDI] frá því fyrir löngu, og hún myndi upp­lifa með þeim allar þeirra ein­földu sorgir og líka finna með þeim hinar ein­földu gleði­stundir og muna eftir því þegar hún var sjálf barn og sum­ar­dag­arnir svo ham­ingju­ríkir.“

10.   „Síðan héldu þau áfram.“

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Eftir mik­inn atgang og heil­mik­inn kulda og blóð, þá endar fræg glæpa­mynd frá 1996 með þeirri frið­sælu og hlý­legu senu sem sést á skjá­skot­inu hér að neðan. Hvaða mynd er það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum. Ekki er nauð­syn­legt að þekkja höf­undana, þótt ég til­greini þá hér.

1.   1984 eftir George Orwell.

2.   101 Reykja­vík eftir Hallgrím Helgason.

3.   Life of Pi eftir Yann Martel.

4.   Gull­eyjan eftir Einar Kárason.

5.   Saga þern­unnar eftir Margaret Atwood.

6.   Salka Valka eftir Halldór Laxness.

7.   Flug­dreka­hlaupar­inn eftir Khaled Hosseini.

8.   Animal Farm eftir George Orwell.

9.   Lísa í Undra­landi eftir Lewis Carroll.

10.   Sjálf­stætt fólk eftir Halldór Laxness.

***

Svör  við mynda­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir loka­skot Apa­plánet­unnar frá 1968.

Neðri myndin er loka­skotið úr Fargo þeirra Coen-bræðra.

***

Aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár