321. spurningaþraut: Opinber mál á Norðurlöndum, Scilly-eyjar, Hofsá, Selá

321. spurningaþraut: Opinber mál á Norðurlöndum, Scilly-eyjar, Hofsá, Selá

Í gær var spurt um loka­orð frægra skáld­sagna; hér er hlekkur á þær spurn­ingar.

***

Auka­spurn­ingar.

Sú fyrri — lítið á mynd­ina hér að ofan. Hvað er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða íslenski far­fugl hefur lat­neska fræði­heitið sterna para­d­isaea?

2.   Guðbjörg Matth­í­as­dóttir heitir kona ein, mjög áhrifa­mikil á sínu sviði á landi. Hvað er hennar svið?

3.   Hvaða heims­frægi íþrótta­maður slas­að­ist illa í bílslysi á dög­unum?

4.   Hofsá og Selá heita tvær bestu lax­veiðiár lands­ins sem báðar falla til sjávar í sama firð­inum. Hvað heitir hann?

5.   Katrín mikla var keis­ara­ynja í Rúss­landi á átj­ándu öld. Sann­leik­ur­inn er þó sá að það var ekki rúss­neskur dropi í æðum hennar. Langa­langafi hennar var Friðrik 3. Dana­kon­ungur en að öðru leyti var hún ...?

6.   Scilly-eyjar eru svo­lít­ill klasi lít­illa eyja í suð­vestur frá mun stærri eyju í Evrópu. Hver er sú hin stóra eyja í nágrenni Scilly-eyja?

7.   Í hvaða landi var Gamal Abel Nasser for­seti á sjö­unda ára­tugnum?

8.   Hverrar þjóðar er Nóbels­verð­launa­höf­und­ur­inn Jose Saramago, sem skrif­aði meðal ann­ars bók­ina Blinda, sem út hefur komið á íslensku?

9.   Hversu mörg eru þau tungu­mál sem hafa form­lega stöðu sem „opin­ber tungu­mál“ á Norð­ur­lönd­unum? Átt er við í þeim fimm ríkjum sem eru að fullu stjálf­stæð.

10.   Hvenær fara næstu Alþing­is­kosn­ingar fram — að öllu óbreyttu? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Krían.

2.   Útgerð. „Bissniss“ eða eitt­hvað annað þvíum­líkt dugar ekki, þar sem rætur hennar eru tryggi­lega í útgerð.

3.   Tiger Woods.

4.   Vopna­fjörður.

5.   Þýsk.

6.   Bretland. Eyjan öll er kölluð Bretland, því er „England“ ekki rétt. Og þó Írland sé í nágrenn­inu er talað um að Scilly-eyjar séu suð­vestur af hinni ónefndu eyju, svo Írland kemur þar eigi til greina.

7.   Egifta­landi.

8.   Portúgal.

9.   Sex. Ísland, Svíþjóð og Danmörk hafa aðeins eitt opin­bert tungu­mál hvert. Það mun ýmsum á óvart að fær­eyska og græn­lenska telj­ast ekki opin­ber mál í Danmörku en þannig er nú það. Í Finn­landi eru tvö opin­ber mál, finnska og sænska. Norðmenn hafa og tvö opin­ber mál — norsku og sama­mál.

10.   Í sept­em­ber á þessu ári. Nákvæm­ari dag­setn­ingu þarf ekki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er granat­epli, sem heitir á ýmsum erlendum málum pomegr­anate eða eitt­hvað þar um bil. Orðið kjarn­epli þekk­ist einnig um granat­eplin.

Á neðri mynd­inni er gríska gyðjan Aþena. Allir munu vita­skuld þekkja hana af ugl­unni sem var ein­kenn­is­dýr hennar.

***

Og hlekkur á spurn­ing­arnar síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár