319. spurningaþraut: Hvaða leikkona hefur leikið sömu drottninguna tvisvar?

319. spurningaþraut: Hvaða leikkona hefur leikið sömu drottninguna tvisvar?

Gær­dags­þrautin, hér er hlekkur á hana.

***

Auka­spurn­ing númer eitt:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá banda­ríska leik­ar­ann Jack Nicholson sitja aftan á mót­or­hjóli í kvik­mynd frá 1969. Hann er kannski ekki mjög auð­þekkj­an­legur en þetta er samt hann. Hvað heitir bíó­myndin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Til er nákvæm ætt­ar­tala Andrésar Andar. Frá hvaða landi kom móð­ur­fjöl­skylda Andrésar?

2.   Hvað ár gengu Íslend­ingar í hern­að­ar­banda­lagið NATO?

3.   Her­sveitir NATO hafa bless­un­ar­lega látið fremur sjaldan að sér kveða í nafni banda­lags­ins. Frá mars til júní 1999 stóð banda­lagið þó fyrir loft­árásum á til­tekið ríki í Evrópu. Hvaða ríki var það?

4.   Annar af tveimur öld­unga­deild­ar­þing­mönnum Vermont-ríkis í Banda­ríkj­unum heitir Patrick Leahy. Hvað heitir hinn?

5.   Hvaða tón­list­ar­maður gaf út plöt­urnar 1000 kossa nótt, Í sex skrefa fjar­lægð frá Paradís og Fjórir naglar?

6.   Hvaða land er milli risanna Argent­ínu og Brasilíu og á ekki landa­mæri að öðrum ríkjum?

7.   Árið 1998 fékk leik­kona ein til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­launa fyrir að leika drottn­ingu eina. Hún vann ekki. Árið 2008 brá svo við að leik­konan lék sömu drottn­ingu í annarri bíó­mynd, og var þá aftur til­nefnd til Ósk­arsverð­launa. En hún vann þau heldur ekki í þetta sinn. Ýmis önnur fékk hún þó fyrir hlut­verk sína í báðum mynd­unum, og hún hefur reyndar unnið Ósk­arsverð­laun tvisvar fyrir önnur hlut­verk í öðrum myndum. En hver er þessi leik­kona?

8.   Og hver var þessi drottn­ing sem hún hefur sem sé leikið í tvígang?

9.   Hvað eiga eyj­arnar Elba og St.Helena sam­eig­in­legt?

10.   Hvað heitir Eurovision-lag Íslend­inga fyrir árið 2021?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fugl­inn hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Skotlandi.

2.   1949.

3.   Júgóslavíu — en ég ætla líka að gefa rétt fyrir Serbíu.

4.   Bernie Sanders.

5.   Bubbi Morthens.

6.   Úrúgvæ.

7.   Cate Blanchett.

8.   Elísabet Eng­lands­drottn­ing I.

9.   Á þeim var Napóleon Bonap­arte vistaður eftir að hann hrökkl­að­ist frá völdum í Frakk­landi.

10.   Ten Years eða Tíu ár.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr kvik­mynd­inni Easy Rider.

Á neðri mynd­inni er himbrimi

***

Aftur hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár