318. spurningaþraut: „Þorbjörg var kurteis kona og eigi einkar væn, svart hár og brýn — því var hún kölluð Kolbrún“

318. spurningaþraut: „Þorbjörg var kurteis kona og eigi einkar væn, svart hár og brýn — því var hún kölluð Kolbrún“

Þraut gær­dags.

***

Auka­spurn­ing fyrst, hér er sú fyrri:

Hvaða dýr er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Frá hvaða landi er senni­legt að þeir séu ætt­aðir (kannski langt aftur í ættum stundum) sem heita Mc– eða Mac—Eitthvað?

2.   Hvaða banda­rísku for­seta­frú lék Natalie Portman í bíó­mynd árið 2016?

3.   „Þorbjörg var kurt­eis kona og eigi einkar væn, svart hár og brýn — því var hún kölluð Kolbrún —vit­ur­leg í ásjónu og vel litkuð, limuð vel og grann­vaxin og útfætt en eigi all­lág.“ Svo segir í Fóst­bræðra­sögu, einni Íslend­inga­sagn­anna. Þorbjörg eða Kolbrún kemur reyndar ekki mikið við sögu í frá­sögn­inni en skiptir þó máli því skáldið Þormóður Bersason orti um hana lof­kvæði. Og hvaða afleið­ingar hafði það kvæði fyrir Þormóð?

4.   Hvaða trú­ar­rit var gefið út í fyrsta sinn árið 1830 eftir að maður nokkur taldi sig hafa fundið texta þess á gull­plötum sem grafnar höfðu verið í jörð. Þær voru á löngu dauðu tungu­máli, að sögn, en guð mun hafa útbúið sér­stök gler­augu sem gerðu mann­inum kleift að þýða text­ann og gefa út. Hvað heitir þessi bók?

5.   Á Íslandi verpa aðeins þrjár teg­undir af ætt­flokki rán­fugla: Haförn, fálki og ...?

6.   Í nýlegri sjón­varps­s­eríu rann­sakar Villi Netó meint and­lát ... hvers?

7.   Hvað hét móðir Jesúa frá Nasaret sam­kvæmt frá­sögn Nýja testa­ment­is­ins?

8.   Hvar hófst skóla­hald á Norð­ur­landi árið 1106?

9.   Jóhanna María Sig­munds­dóttir sett­ist á þing fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn 2013. Þing­fer­ill hennar varð ekki nema þrjú ár en hún á sinn óbrot­gjarna sess í þing­sög­unni samt. Hver er sá sess?

10.   Einhver umfangs­mesta og flókn­asta hern­að­ar­að­gerð sög­unnar var Operation Overlord í síð­ari heims­styr­öld­inni. Hvað fólst í Operation Overlord?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hér er piltur einn aðeins tveggja ára, en var þá þegar í miklum metum í sínu landi. Thondup var nafn hans þá, en við þekkjum hann sem ...?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Skotlandi.

2.   Jackie Kennedy.

3.   Hann var síðan kall­aður Þormóður Kol­brún­ar­skáld.

4.   Morm­óns­bók, trú­ar­rit Mormóna.

5.   Smyrill.

6.   Friðriks Dórs.

7.   María.

8.   Hólum í Hjalta­dal.

9.   Hún er yngsti þing­maður sem kjör­inn hefur verið á þing. Hún var þá 21 árs og 303 daga en þær tölur þurf­iði ekki að vita.

10.   Innrásin í Normandy.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Dýrin á efri mynd­inni er llama-dýr.

Pilt­ur­inn á neðri mynd­inni kall­ast Dalai Lama en það er raunar tit­ill hans eða nafn­bót en ekki eig­in­legt nafn.

***

Misstuði nokkuð af þraut gær­dags?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár