317. spurningaþraut: Í höfuðborg einni í Evrópu hefur mælst mestur hiti í álfunni

317. spurningaþraut: Í höfuðborg einni í Evrópu hefur mælst mestur hiti í álfunni

Þrautin í gær!

***

Fyrri mynda­spurn­ing:

Lítið á mynd­ina hér fyrir ofan. Hvað heitir kona sú er þar byssu brúkar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir bæj­ar­stjór­inn í Grinda­vík?

2.   Hvaða dýr heitir á lat­ínu ursus maritimus?

3.    Hércules heitir spænskt fót­boltalið, sem spilar nú í 3. deild á Spáni en hefur öðru hvoru náð upp í efstu deild La Liga, spænsku deild­ar­keppn­innar og spilað þar við bestu liðin eins og Real Madrid og Barcelona. Leik­tíð­ina 1986-86 spil­aði Hércules til dæmis í efstu deild en lenti þá í næstneðsta sæti og féll í aðra deild. Þessa leik­tíð fyrir 35 árum spil­aði með Hércules einn þeirra sára­fáu Íslend­inga, sem hafa spilað í La Liga — djarfur sókn­ar­maður sem skor­aði 5 mörk í 22 deild­ar­leikjum. Hver var þessi Íslend­ingur?

4.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Belgrad?

5.   Lucy Bronze heitir kona ein og býr í Manchester á Englandi. Hvað fæst hún helst við?

6.   Ramadan, hvað er það nú aftur?

7.   Í hvaða landi í ver­öld­inni hefur mælst hæstur hiti? Þann 10. júlí 1913 mæld­ist þar 56,7 gráðu hiti.

8.   Hitamet Evrópu er öllu lægra. Árið 1977 (líka 10. júlí!) mæld­ist hæsti hiti í Evrópu, 48 gráður, í höf­uð­borg einni? Hvaða höf­uð­borg skyldi það vera?

9.   „Genesis“ nefn­ist á alþjóð­legum málum upp­hafs­bindið í frægri bók. Hvaða bók er það?

10.   En „Genesis“ er líka fræg hljóm­sveit. Þegar fyrsti söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar hætti fyrir löngu, þá tók trommu­leik­ar­inn við söngnum og hefur séð um söng­inn síðan. Hvað heitir hann?    

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Lítið á mynd­ina hér að neðan. Í hvaða landi er upp­runnin trú á þennan marg­henta fíl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Fannar Jónasson. Af ein­skæru umburð­ar­lyndi, og af því skírn­ar­nöfn skipta mestu í voru landi, þá fáiði rétt þótt þið segið Jónsson.

2.   Ísbjörn.

3.   Pétur Pét­urs­son.

4.   Serbíu.

5.   Hún er fót­bolta­kona.

6.   Mánuður í tíma­tali múslima, not­aður til föstu og bæna­halds. Oft kallað „hátíð múslima“ og því dæm­ist það rétt vera hér og nú.

7.   Banda­ríkj­unum.

8.   Aþenu.

9.   Biblian.

10.   Phil Collins.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni heitir Patty Hearst. Það mun gleðja ykkur að hún hélt fyrir fjórum dögum upp á 67 ára afmælið og er hin hress­asta.

Fíllinn á neðri mynd­inni er í hávegum á hafður á Indlandi. Reyndar víðar líka, en í því landi er átrún­aður á hann upp­runn­inn.

***

Og aftur þrautin í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár