Óli hafði betur gegn Bjarkeyju

Óli Hall­dórssson mun leiða lista Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi við þing­kosn­ingar í haust. Hann hafði betur gegn Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur, sitj­andi þing­manni flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Óli hafði betur gegn Bjarkeyju
Óli verður odd­viti Óli hafði efsta sætið á lista VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Bjarkey, sem er sitj­andi þing­maður flokks­ins, lenti í öðru sæti.

Óli Hall­dórs­son, sveit­ar­stjórn­ar­maður og vara­þing­maður, hlaut flest atkvæði í for­vali Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Óli hafði þar með betur en sitj­andi þing­maður flokks­ins, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, sem einnig sótt­ist eftir efsta sæt­inu.

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis hefur leitt lista flokks­ins í kjödræm­inu allt frá árinu 2003, þegar kjör­dæmið varð til. Hann gaf það hins vegar út í lok októ­ber á síð­asta ári að hann hyggð­ist hætta í póli­tík og gæfi ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu á Alþingi.

Bjarkey hefur setið á þingi frá árinu 2013 en hún var þá í öðru sæti á lista Vinstri grænna í kjör­dæm­inu. Hún hefur vermt það sæti í kosn­ing­unum 2016 og 2017 en með brott­hvarfi Stein­gríms sótt­ist hún eftir því að leiða flokk­inn í kom­andi kosn­ingum í haust. Af því verður ekki.

Óli er sveit­ar­stjórn­ar­maður í Norð­ur­þingi og og sat í 5. sæti á lista flokks­ins við Alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og 2017. Hann hefur tekið sæti sem vara­þing­maður fyrir Vinstri græn á þessu kjör­tíma­bili. Óli bauð sig fram til vara­for­mennsku í flokknum haustið 2017 en tap­aði í kosn­ingu fyrir Edward H. Huijbens.

Vinstri græn hlutu 4.700 atkvæði í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum árið 2017, 19,9 pró­sent atkvæða. Stein­grímur J. var þá annar þing­maður kjör­dæm­is­ins og Bjarkey sá sjö­undi.

Uppfært klukkan 10:55.

Vinstri græn hafa nú sent frá sér frétta­til­kynn­ingu um nið­ur­stöður for­vals­ins. Þar kemur fram að Óli hlaut 304 atkvæði í 1. sæti og Bjarkey hlaut 293 atkvæði í 1.-2. sæti. Í þriðja sæti varð Jódís Skúla­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Múla­þingi, í fjórða sæti Kári Gautason, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks VG og í fimmta sæti varð Jana Salóme Ingi­bjargar Jós­eps­dóttir, vara­bæj­ar­full­trúi flokks­ins á Akureyri. Greidd atkvæði voru 648 og kosn­inga­þátt­taka 62 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár