Átakanleg saga þolanda mansals sem ákveðið hefur verið að senda úr landi

Kæru­nefnd útlend­inga­mála og Útlend­inga­stofnun hafa synjað 21 árs þol­anda mansals og kyn­ferð­is­of­beldis um alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi. Hér er saga hans.

Átakanleg saga þolanda mansals sem ákveðið hefur verið að senda úr landi
Lög­reglan hafði sam­band Uhunoma Osa­yomore fékk sím­tal frá lög­reglu í dag og verður sendur úr landi. Kæru­nefnd útlend­inga­mála trúir frá­sögn hans um kyn­ferð­is­of­beldi og ofbeldi föður hans.

Ungur maður að nafni Uhunoma Osa­yomore, þol­andi mansals og kyn­ferð­is­of­beldis, lagði á flótta frá heima­landi sínu, Nígeríu, á barns­aldri og kom hingað til lands yfir tæpu einu og hálfu ári síðan. Hann hefur að mati Magnúsi Norðdahl, lög­manni hans, myndað sterk félags­leg tengsl á Íslandi. Í dag hafði lög­reglan sam­band við hann. Hann verður sendur úr landi vegna nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar og kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Missti móður sína, flúði föður sinn

Í frá­sögn Uhunoma, sem Útlend­inga­stofnun og kæru­nefndin hafa ekki lýst neinum efa um, kemur fram að hann flúði heima­land sitt á sautj­ánda ald­ursári vegna alvar­legs ofbeldis og ofsókna af hálfu föður síns en faðir hans hafði beittt hann ofbeldi nán­ast hvern ein­asta dag. Þá hafi fað­ir­inn einnig beitt móður hans og yngri systur ofbeldi reglu­lega.

Sögu Uhunoma er lýst í úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála. Árið 2015 varð hann vitni að því að faðir hans hafi beitt móður hans svo miklu ofbeldi að hún hafi í kjöl­farið lát­ist. Tveimur mán­uðum síðar tók faðir hans saman við nýja konu sem einnig hafi beitt Uhunoma harð­ræði. 

Faðir hans skyld­aði hann til þess að fá sér vinnu til að afla tekna fyrir heim­ilið og því fór Uhunoma að selja vatn og flögur á götum úti. Eitt sinn hafði systir hans fylgt honum til vinnu en þann dag varð hún fyrir slysi sem síðar leiddi hana til dauða.

Uhunoma hafði engin önnur tengsl í heima­landi sínu fyrir utan einn frænda sinn í móð­ur­ætt sem kom honum ekki til aðstoðar vegna þess hve hann ótt­að­ist föður hans. Faðir hans er bendl­aður við glæp­a­starf­semi í heima­landi sínu ásamt því að eiga byssu, þar að auki á hann sam­kvæmt Uhunoma vini og kunn­ingja í lög­regl­unni. Vegna þessa gat hann ekki leitað til lög­regl­unnar vegna ofbeld­is­ins.

Hræðileg ferðasaga

Leið Uhunoma til Íslands var löng og ströng. Þegar hann bjó enn í Nígeríu samdi hann við aðila sem flytja fólk til Líbýu um að koma sér þangað. Í Líbýu seg­ist hann hafa verið lát­inn vinna fyrir níger­íska konu sem hafði rekið þar veit­inga­stað, en þannig borg­aði hann fyrir ferð­ina.

Uhunoma vann fyrir kon­una í fimm mán­uði sam­tals áður en hún var myrt af fólki sem kom inn á veit­inga­stað­inn í leit að eig­in­manni hennar, sam­kvæmt frá­sögn hans.

Þá komst hann í kynni við fólk sem bjó í fátækt­ar­hverfi, en fólkið hafði verið á leið frá Líbýu til Ítalíu. Þangað lang­aði hann einnig að fara svo hann fékk sér vinnu á sveita­býli til að safna sér fyrir ferð­inni. Hann fékk þó ekki greitt fyrir vinn­una en fékk þess í stað að sofa í úti­húsi nálægt heim­ili eig­and­ans. Í frá­sögn hans kemur fram að eig­and­inn kom fjórum sinnum inn í úti­húsið og nauðg­aði honum og áverk­arnir voru svo alvar­legir að hann finnur enn þann dag í dag fyrir sárs­auka vegna þeirra.

Eitt sinn heyrði Uhunoma eig­and­ann ríf­ast við eig­in­konu sína vegna þess hvað hann hefði gert honum. Þá ákvað hann að hann skyldi leggja á flótta vegna ótta við að sam­ræð­urnar myndu valda honum vand­ræðum. Uhunoma komst á bát til Ítalíu en þar var umsókn hans um alþjóð­lega vernd einnig synjað svo hann þurfi að búa á göt­unni og betla pen­inga til eiga fyrir mat. 

Á göt­unni varð hann fyrir lík­ams­árás þegar menn reyndu að ræna síma hans sem varð til þess að hann hlaut áverka á hendi og fingrum. Hann náði þó að betla nægan pen­ing til að eiga fyrir ferð sinni til Íslands.

Faðir Uhunoma kom þeim skila­boðum til hans að ef hann ætl­aði sér að snúa aftur til Nígeríu myndi hann myrða hann.

Flótta­mennBátur með flótta­mönnum á leið frá Lýbíu út á Mið­jarð­ar­hafið í mars 2019.

Neitað um dvalarleyfi

Uhunoma hefur verið neitað um dval­ar­leyfi og alþjóð­lega vernd á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða vegna þess að íslensk stjórn­völd telja að hann sé öruggur í heima­landi sínu og geti fengið þar við­un­andi aðstoð. 

Magnús segir það rang­lega metið. „Alþjóð­legar skýrslur taka af öll tví­mæli um hversu slæmt ástandið þar í landi er. Sem dæmi má nefna að fjöldi geð­lækna þar í landi er ein­ungis 300 tals­ins en heild­ar­fjöldi íbúa rúmar 200 millj­ónir. Þá hafa fórn­ar­lömb mansals litla sem enga mögu­leika á því að leita til lög­reglu­yf­ir­valda þar í landi vegna land­lægrar spill­ingar og sinnu­leysis í garð hóps mansals­fórn­ar­lamba. Mat stjórn­valda á aðstæðum mansals­fórn­ar­lamba í Nígeríu er ófor­svar­an­legt og rangt.“

Málið segir hann hluta af fjölda mála þar sem fórn­ar­lömbum mansals og kyn­ferð­is­of­beldis sé synjað um vernd hér á landi. Hann segir það sorg­lega þróun. „Það er ákaf­lega sorg­leg þróun og ekki í takt við þær áherslur stjórn­valda á mann­rétt­indi og vernd þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi af þessu tagi.“

Synjað um frestun réttaráhrifa

Uhunoma hefur jafn­framt verið synjað um frestun rétt­ar­á­hrifa sem að sögn Magnúsar felur í sér að nefndin vill að honum verði komið úr landi með valdi áður en honum gefst færi til þess að bera mál sitt undir dóm­stóla. „Það er ankanna­legt og að mínum dómi brot á stjórn­ar­skár­vörðum rétti borg­ar­anna að að þeim sé vísað úr landi áður en dóm­stólar hafa fjallað um rétt­mæti máls­með­ferð­ar­innar sem þeir máttu sæta,“ segir hann. 

Málið er á leið inn á borð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur á næstu dögum og end­ur­upp­töku­beiðni verður einnig send á kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Meta frásögnina trúveðuga

Þrátt fyrir að Uhunoma hafi verið synjað um hæli metur kæru­nefnd útlend­inga­mála frá­sögn hans trú­verð­uga.

„Mat á trú­verð­ug­leika frá­sagnar kær­anda er byggt á end­ur­ritun við­tala hans hjá Útlend­inga­stofnun, öðrum gögnum máls­ins og upp­lýs­ingum um heima­ríki kær­anda.“

Í úrskurð­inum segir jafn­framt að kæru­nefnd fall­ist á að hann hafi flúið heima­landið vegna ofbeldis föður síns og að hann glími við and­leg og lík­am­leg vanda­mál vegna kyn­ferð­is­legs ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir í Lýbíu. Í sál­fræði­mati kemur fram að Uhunoma sé greindur með áfallastreituröskun. Hann glími við von­leysi, van­líðan, svefn­leysi og sjálfs­vígs­hugs­anir. Hins vegar er hann tal­inn af kæru­nefnd­inni vera öruggur í Nígeríu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár