Myndbönd sýna flóðið fossa í Háskóla Íslands

„Sem betur fer urðu engin slys á fólki,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi Veitna. Yfir tvö þús­und tonn af vatni flæddu um háskóla­svæðið eftir að lögn brast. Myndband sýnir vatns­flæðið.

„Ljóst er að eigna­tjón er umtals­vert en sem betur fer urðu engin slys á fólki,“ segir Ólöf Snæhólm Bald­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Veita, um 2.250 tonna vatnsleka úr meg­in­kalda­vatnsæð Vest­ur­bæjar sem fór inn í hús­næði Háskóla Íslands í nótt.

Á með­fylgj­andi mynd­böndum sést vatnið fossa á háskóla­svæð­inu. Lekinn var yfir­stand­andi í 75 mín­útur. Um klukkan eitt í nótt varð hans vart í stjórn­stöð Veitna. Bakvakt var kölluð út og hálf­tíma eftir að hún mætti hafði stofnæð­ar­lok­inn verið stað­settur og lokað fyrir flæðið. Upptökin voru í loka­húsi vatns­veitu sunnan við aðal­bygg­ingu Háskóla Íslands. Þar sunnan við eru sumar helstu bygg­ingar háskól­ans: Háskóla­torg, Lögberg og Gimli. 

Um eins og hálfs metra djúpt vatn fyllti hús­næði Háskóla Íslands á Háskóla­torgi í nótt.

Líklegt er að tjón Háskól­ans nemi hund­ruð millj­óna króna. Háskól­inn er ekki tryggður fyrir tjón­inu, þar sem rík­is­stofn­anir tryggja ekki. Full­trúar vátrygg­inga­fé­lags Veitna hafa hins vegar skoðað svæðið í dag.

Stór hluti starf­semi Háskóla Íslands hefur verið unn­inn í fjar­vinnu vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins. Stof­urnar sem urðu fyrir skemmdum eru þær sem hafa þó verið í notkun. Tveir til þrír mán­uðir geta liðið þar til hús­næðið sem verst varð úti verður tekið aftur í notkun. Jón Atli Bene­dikts­son, rek­stor Háskóla Íslands, hefur sent nem­endum bréf þar sem boðað er að kennsla verði raf­ræn hjá þeim sem hafa sótt kennslu í Háskóla­torg og Gimli.

„Veitur harma atvikið og þær afleið­ingar sem það hefur haft í för með sér fyrir nem­endur og starfs­fólk Háskóla Íslands og aðra,“ segir í yfir­lýs­ingu frá upp­lýs­inga­stjóra Veitna. „Veitur vinna nú hörðum höndum að því að greina hvað varð þess vald­andi að hið mikla magn vatns flæddi inn í Háskóla Íslands í morgun.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár