Ágúst Ólafur verður ekki á lista Samfylkingarinnar - Þáði ekki þriðja sæti

Ágúst Ólafur Ágústs­son mun ekki verða í fram­boði fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík fyrir Alþing­is­kosn­ingar í haust. Upp­still­ing­ar­nefnd bauð honum þriðja sæti en hann hafn­aði því.

Ágúst Ólafur verður ekki á lista Samfylkingarinnar - Þáði ekki þriðja sæti
Var boðið þriðja sæti Formaður upp­still­ing­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík segir lýs­ingu Ágústs Ólafs ekki kór­rétta, honum hafi verið boðið þriðja sæti á lista en ekki þegið það. Mynd: Pressphotos

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, verður ekki á lista flokks­ins fyrir næstu Alþing­is­kosn­ingar. Ágúst greindi sjálfur frá þessu á Facebook-síðu sinni nú fyrr í dag. Ágústi var boðið að taka þriðja sæti á fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu en hann hafn­aði því.

Styrr hefur staðið um Ágúst Ólaf innan Sam­fylk­ing­ar­innar allt frá því að að honum var veitt áminnig af trún­að­ar­nefnd flokks­ins í des­em­ber 2018. Áminn­ing­una fékk Ágúst Ólafur vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni sinnar í garð Báru Huldu Beck blaða­manns sum­arið 2018. Í nið­ur­stöðu trún­að­ar­nefnd­ar­innar kom fram að áminna ætti Ágúst Ólaf fyrir að hafa end­ur­tekið og í óþökk Báru reynt að kyssa hana, að hafa nið­ur­lægt hana og auð­mýkt með móðg­andi athuga­semdum um útlit hennar og vits­muni þegar til­raunir hans báru ekki árangur. 

Ágúst Ólafur birti yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni í des­em­ber 2018 þar sem hann greindi frá því að hann myndi taka leyfi frá þing­störfum eftir að hafa fengið áminn­ing­una. Bára birti grein á Kjarn­anum fjórum dögum síðar þar sem hún fór yfir sam­skipti Ágústs Ólafs við sig og greindi þar frá því að atvika­lýs­ing hans sam­ræmd­ist alls ekki hennar upp­lifun. Þá greindi Bára einnig frá því að yfir­lýs­ingu sína hefði Ágúst birt án sam­ráðs við hana og í hennar óþökk. 

Ósamræmi í lýsingu á atburðum

Ágúst Ólafur var ekki í einu af fimm efstu sætum í könnun Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, sem gerð var fyrir skemmstu vegna upp­still­ingar á lista flokks­ins. Hann mun hins vegar hafa verið þar skammt á eftir sam­kvæmt öruggum heim­ildum Stund­ar­innar. Harðar deilur hafa skap­ast innan Sam­fylk­ing­ar­innar síð­ustu daga vegna stöðu Ágústs Ólafs eftir að þetta varð ljóst. Ásakanir um sam­blástur gegn Ágústi Ólafi hafa verið settar fram af stuðn­ings­fólki hans og þá vék einn full­trúi í upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins, Birgir Dýrfjörð, úr nefnd­inni sökum máls­ins. Vildi Birgir meina að með með­ferð­inni á Ágústi Ólafi væri verið að fremja „ódæð­is­verk gegn óvirkum alka­hólistum“ en Ágúst Ólafur fór í áfeng­is­með­ferð eftir að trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar veitti honum áminn­ing­una. Vildi Birgir meina að með því að hafna Ágústi Ólafi væri verið að hafa að engu þá stað­reynd að hann hefði leitað sér hjálpar við alka­hól­isma, sem hefði orsakað breytni hans gegn Báru.  

„Raun­veru­lega var þetta ekki svona heldur fékk hann bara boð um þriðja sæti sem hann hafn­aði“
Hörður Odd­fríð­ar­son

Í yfir­lýs­ing­unni sem Ágúst birti á Facebook nú fyrir skemmstu sagði að Sam­fylk­ing­unni hefði gengið vel á kjör­tíma­bil­inu og ekki síst í Reykja­vík. Hann hafi tekið virkan þátt í því starfi og teldi sig hafa verið mik­il­vægan þing­mann fyrir flokk­inn. „Það er því virki­lega dap­ur­legt fyrir mig að meiri­hluti upp­still­ing­ar­nefndar telji ekki rétt að ég verði í lík­legu þing­sæti fyrir næstu kosn­ingar,“ skrifar Ágúst Ólafur. Hann segir einnig að þó gagn­rýna megi ýmis­legt varð­andi aðferð­ina við val á lista flokks­ins þá virði hann rétt nefnd­ar­innar til að taka ákvörðun. 

Ágúst Ólafur segir að hann hafi boðið upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins sátta­til­lögu „sem fælist í því að ég færi úr odd­vita­sæt­inu í kjör­dæm­inu í nafni nýlið­unar og tæki annað sætið. Þeirri til­lögu var hafnað af meiri­hluta upp­still­ing­ar­nefndar.“ 

Hörður Odd­fríð­ar­son, for­maður upp­still­ing­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík segir hins vegar að lýs­ing Ágústs Ólafs sé ekki rétt. „Raun­veru­lega var þetta ekki svona heldur fékk hann bara boð um þriðja sæti sem hann hafn­aði.“ Þá segir Hörður einnig að það hafi verið ákvörðun sem upp­still­ing­ar­nefndin hafi tekið og hafi ekk­ert haft með meiri- eða minni­hluta að gera. 

Ágúst Ólafur svar­aði ekki þegar Stundin reyndi að ná sam­bandi við hann sím­leiðis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár