Börn grétu yfir hópslagsmálum í Breiðholtinu í dag

Menn í slags­málum brutu rúðu í Pizzunni í Hóla­garði í hópslags­málum sem áttu sér stað nokkrum klukku­stundum eftir að vopn­aðir menn fóru inn í Borg­ar­holts­skóla.

Slagsmálin í dag Meðfylgjandi myndband hefur verið í birtingu á samfélagsmiðlum.

Börn heyr­ast gráta þar sem þau verða vitni að hópslags­málum í Hóla­garði í Breið­holti seinni part­inn í dag. Slags­málin urðu aðeins nokkrum klukku­tímum eftir að þrír vopn­aðir menn fóru inn í Borg­ar­holts­skóla í Graf­ar­vogi og gerðu árás á nem­endur. 

Samkvæmt umræðum vitna í Facebookhópnum Betra Breið­holt virt­ust aðilar slags­mál­anna vera um tví­tugt og svo nálægt fer­tugu.

Samkvæmt sjón­ar­vottum voru börn við­stödd. Einn sjón­ar­vottur sem gefur sig fram í hverf­is­hóp Breið­hylt­inga segir að upp­haf­lega hafi verið ráð­ist gegn leik­skóla­börn­unum.

„Mér skild­ist að kona hefði ráð­ist á leik­skóla­barn, og faðir þá skorist í leik­inn en vinur kon­unnar þá ráð­ist á hann. Vinurinn og faðrir­inn síðan farið í gegnum rúð­una,“ segir annar sem hafði spurnir af atburð­unum. 

Ekki hefur verið stað­fest hver til­drögin voru. 

Íbúar í hverf­inu hafa lýst miklum áhyggjum af atburð­inum. Í umræðum koma fram þau sjón­ar­mið að ástæða þess að slags­mál eru meira áber­andi en áður sé ekki raun­veru­leg. Athuga­semd konu í hópnum á þá leið að krakkar nú til dags hegði sér með þessum hætti er borin til baka vegna þess að aldur þeirra sem slóg­ust er hærri, og svo vegna þess að meiri far­síma­eign ýki upp birt­inga­myndir slíkra atvika. „Já krakkar nú til dags, segir þú. Ég er fimm­tugur og ég er eig­in­lega viss um að ástandið er skárra ef eitt­hvað er heldur en þegar ég var ung­lingur,“ segir einn þátt­tak­enda í umræð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár