Tugþúsundir mótmæla breytingum á skimun við brjóstakrabbameini

Konur verða nú ekki boð­aðar í skimun fyrr en við fimm­tugs­aldur. Mikil reiði og áhyggjur ríkja vegna breyt­ing­anna. Yfir þrjá­tíu þús­und manns skora á Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að end­ur­skoða breyt­ing­arnar.

Tugþúsundir mótmæla breytingum á skimun við brjóstakrabbameini
Mikil reiði vegna breyt­ing­anna Mikil reiði ríkir vegna breyt­inga á skimun fyrir brjóstakrabba­meini. Yfir þrjá­tíu þús­und manns skora á Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að end­ur­skoða breyt­ing­arnar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þrjátíu þús­und manns hafa nú skrifað undir áskorun til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra og Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um að end­ur­skoða breyttar reglur um um skimun fyrir brjóstakrabba­meini. Regl­urnar sem um ræðir tóku gildi um ára­mót og breyt­ingin felst í því að nú eru konur ekki ski­maðar fyrr en við fimm­tugs­aldur. Áður höfðu konur verið boð­aðar í skimun fer­tugar. Gríð­ar­legur fjöldi kvenna hefur breytt for­síðu­myndum sínum á Facebook og sett inn skila­boðin „Vinkona mín greind­ist fyrir fimm­tugt.“

Breyt­ing­arnar hald­ast í hendur við að skimun fyrir brjósta- og leg­hálskrabba­mein færð­ist frá Krabba­meins­fé­lag­inu til Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri. Áður voru konur á aldr­inum 40 til 69 ára boð­aðar í skimun fyrir krabba­meini í brjóstum en verða nú boð­aðar á aldr­inum 50 til 74 ára. Samkvæmt frétt á vef Krabba­meins­fé­lags­ins hafði land­læknir áður lagt til að farið yrði eftir evr­ópskum leið­bein­ingum við skimun, þar sem mælt væri með skimun 45 til 49 ára kvenna og þá hafði fagráð um brjóstakrabba­mein mælt með því að skimun yrði hafin við 45 ára aldur. Frá þessu hafi verið vikið án þess að það sé sér­stak­lega rök­stutt.

Krefjast svara

Árlega deyja um 50 konur vegna brjóstakrabba­meins á Íslandi. Mik­il­vægt er að greina krabba­mein sem fyrst til að auka líkur á að með­ferð megi takast. Á ára­bil­inu 2015 til 2019 greindust að með­al­tali 31 kona á aldr­inum 40 til 49 ára með brjóstakrabba­mein. Í frétt Krabba­meins­fé­lags­ins segir að áætla megi að mein myndi grein­ast í um þriðj­ungi til­fella í skimun, væri hún til staðar.

„Við hrein­lega skiljum ekki af hverju verið er að víkja frá bæði áliti fagráðs um brjóstakrabba­mein og frá evr­ópskum leið­bein­ingum“

Formaður Krafts, félags ungs fólks sem greinst hefur með krabba­mein, segir félags­menn þar marga ugg­andi vegna þessa. „Við hrein­lega skiljum ekki af hverju verið er að víkja frá bæði áliti fagráðs um brjóstakrabba­mein og frá evr­ópskum leið­bein­ingum. Fjöl­margir félags­menn og aðrir hafa haft sam­band við okkur vegna þessa og við krefj­umst þess að það séu gefin skýr svör fyrir því að ekki var hlustað á álits­gjafa,“ segir Elín Sandra Skúla­dóttir, for­maður Krafts í frétt á vef félags­ins þar sem kraf­ist er skýr­ari svara.

Greindist í tvígang

Mikill fjöldi kvenna, og einnig karla, hefur upp­fært for­síðu­myndir sínar á Facebook með skila­boð­unum „Vinkona mín greind­ist fyrir fimm­tugt“ og í sumum til­vikum segja skila­boðin frá systrum, mæðrum eða öðrum konum tengdum fólki sem glímt hefur við krabba­mein. Meðal þeirra má eru Heiðdís Lilja Magn­ús­dóttir fjöl­miðla­kona, Diljá Ámunda­dóttir vara­borg­ar­full­trúi, Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri á Akureyri, Hanna Katrín Frið­riks­son alþing­is­maður, Katrín Rut Bessa­dóttir verk­efna­stjóri og Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir leik­kona.

 „Nema mark­miðið sé að minnka lífslíkur kvenna“

Þá hefur fjöldi fólks einnig deilt und­ir­skrifta­söfn­un­inni með skila­boðum og reynslu­sögum. Meðal þeirra má nefna Hrund Þórs­dóttur sem lýsir því hvernig krabba­mein hjó skarð í vin­kenna­hóp hennar. „Ég til­heyri dásam­legum 8 kvenna vina­hópi. Ein úr hópnum er látin. Hún fékk krabba­mein sem byrj­aði í brjóstum. Önnur eyddi nýliðnu ári í að berj­ast við brjóstakrabba­mein,“ skrifar Hrund og bætir við: „Ef ein­hver getur útskýrt fyrir mér og fyrr­nefndum vin­konum mínum hvernig þessar breyt­ingar eiga að vera til bóta skal ég glöð hlusta. Því ég get alls ekki skilið hvernig það getur verið, nema mark­miðið sé að minnka lífslíkur kvenna. Þá virð­ist þetta ljóm­andi góð hug­mynd!“

Þá lýsir Sigríður Ásta Eyþórs­dóttir iðju­þjálfi, Sassa eins og hún er alltaf kölluð, hvernig hún hefði hefði í tvígang greinst með krabba­mein. „Greind­ist fyrst 35 ára og aftur 41 árs og engin ein­kenni í seinna skiptið, brjósta­mynda­taka sýndi æxlið sem ann­ars hefði vaxið óhindrað og hver veit hver staðan væri í dag.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár