Stígamót fordæma niðurstöðu Landsréttar í nauðgunarmáli

„Þekk­ing­ar­leysið sem afhjúp­ast í þess­ari nið­ur­stöðu er hróp­andi órétt­læti,“ segir í yfir­lýs­ingu Stíga­móta.

Stígamót fordæma niðurstöðu Landsréttar í nauðgunarmáli

Stígamót for­dæma for­dæma Stígamót nið­ur­stöðu Lands­réttar í nauðg­un­ar­máli þar sem faðir var sýkn­aður af kyn­ferð­is­brotum gegn barn­ungum syni sínum, með ósk um að dóm­arar sæti end­ur­menntun í mál­efnum brota­þola. „Þeir brota­þolar sem búa við skerð­ingar eru sér­lega við­kvæmur hópur sem okkur ber sam­fé­lags­leg skylda til að mæta á þeirra for­sendum. Þekk­ing­ar­leysið sem afhjúp­ast í þess­ari nið­ur­stöðu er hróp­andi órétt­læti.“

Vika er síðan Lands­réttur sneri dómi yfir manni sem hér­aðs­dómur hafði áður dæmt í sjö ára fang­elsi fyrir nauðgun og önnur kyn­ferð­is­brot gagn­vart ein­hverfum syni sínum, frá því að dreng­ur­inn var fjög­urra og þar til hann varð ell­efu ára gam­all. Í dómi hér­aðs­dóms kom fram að brot manns­ins hefðu verið alvar­leg: „Beitti hann barn­ungan son sinn kyn­ferð­is­legu ofbeldi árum saman. Voru brotin framin í skjóli trún­að­ar­trausts sem ríkti á milli ákærða og brota­þola. Ákærði á sér engar máls­bætur.“ 

Niðurstaðan afhjúpar þekkingarleysi

Lands­réttur sýkn­aði mann­inn og rök­stuðn­ing­ur­inn fyrir því „afhjúpar þekk­ing­ar­leysi“ að mati Stíga­móta.  Í dómnum kom fram að ekki hefði verið gætt að því við skýrslu­gjöf að dreng­ur­inn gæfi sjálf­stæða lýs­ingu á atvikum máls­ins, sem tor­veld­aði mögu­leik­ana á að meta trú­verð­ug­leika fram­burðar hans. Að mati dóms­ins hafði því ekki tek­ist að færa sönnur á sekt manns­ins gegn ein­dregni neitun hans, var hann því sýkn­aður og einka­rétt­ar­kröfu son­ar­ins vísað frá.

„Má af þessu draga þá ályktun að ein­hverfur ein­stak­lingur eigi ekki til­kall til rétt­lætis“ 

Þennan rök­stuðn­ing for­dæma Stígamót í yfir­lýs­ingu sem birst­ist á Facebook-síðu sam­tak­anna. Þar segir að af þessu megi draga „þá ályktun að ein­hverfur ein­stak­lingur eigi ekki til­kall til rétt­lætis ef hæfi hans til frá­sagnar fellur ekki inn í þann þrönga skil­grein­ingarramma sem dóm­stólar ákvarða og séu því frá­sagnir þeirra alltaf tor­tryggðar.“

Þá er þeirri spurn­ingu varpað fram í yfir­lýs­ingu Stíga­móta hvort það sé eðli­legt að 7 ára dómur sé nið­ur­felldur að fullu vegna þess að Lands­réttur túlkar þessi atriði á annan veg, þrátt fyrir öll þau sönn­un­ar­gögn sem voru til staðar í Hér­aðs­dómi sem skil­uðu 7 ára dómi.

Yfirlýsing Stígamóta  

„Þann 11. des­em­ber sl. sýkn­aði Lands­réttur sak­born­ing í kyn­ferð­is­brota­máli gegn barn­ungum syni sínum. Ger­and­inn sem var faðir brota­þol­ans hlaut 7 ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi árið 2019 fyrir ítrekuð kyn­ferð­is­brot gagn­vart ein­hverfum syni sínum, yfir margra ára tíma­bil. Samkvæmt nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms þótti frá­sögn brota­þola trú­verðug og að hann gæfi sjálf­stæða lýs­ingu á atvikum máls­ins.

Málinu var áfrýjað til Lands­réttar sem ákvað sýknu í mál­inu á þessum for­sendum:

„Við skýrslu­gjöf af brota­þola fyrir hér­aðs­dómi var þess ekki gætt ... að hann gæfi sjálf­stæða lýs­ingu á atvikum máls­ins. Kann það að skýr­ast af stöðu brota­þola, sem hefur verið greindur með ódæmi­gerða ein­hverfu. Fram hjá því verður hins vegar ekki litið að það tor­veldar mjög mögu­leika á að meta trú­verð­ug­leika fram­burðar hans ...“

Má af þessu draga þá ályktun að ein­hverfur ein­stak­lingur eigi ekki til­kall til rétt­lætis ef hæfni hans til frá­sagnar fellur ekki inn í þann þrönga skil­grein­ingarramma sem dóm­stólar ákvarða og séu því frá­sagnir þeirra alltaf tor­tryggðar.

Þess fyrir utan má spyrja þeirrar spurn­ingar hvort það sé eðli­legt að 7 ára dómur sé nið­ur­felldur að fullu vegna þess að Lands­réttur túlkar þessi atriði á annan veg, þrátt fyrir öll þau sönn­un­ar­gögn sem voru til staðar í Hér­aðs­dómi sem skil­uðu 7 ára dómi.

Á þessum for­sendum for­dæma Stígamót nið­ur­stöðu Lands­réttar. Er það ósk okkar að dóm­arar sæti end­ur­menntun í mál­efnum brota­þola. Þeir brota­þolar sem búa við skerð­ingar eru sér­lega við­kvæmur hópur sem okkur ber sam­fé­lags­leg skylda til að mæta á þeirra for­sendum. Þekk­ing­ar­leysið sem afhjúp­ast í þess­ari nið­ur­stöðu er hróp­andi órétt­læti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár