Þórólfur í sóttkví vegna smits á sóttvarnasviði

Covid-smit hefur komið upp á sótt­varna­sviði hjá emb­ætti land­læknis.

Þórólfur í sóttkví vegna smits á sóttvarnasviði
Þórólfur Guðnason Hefur verið lyk­il­maður í við­brögðum yfir­valda við covid-far­aldr­inum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir er kom­inn í sótt­kví eftir að covid-smit kom upp hjá sótt­varna­sviði emb­ættis land­læknis. 

Þrír starfs­menn sviðs­ins eru komnir í sótt­kví. 

Þórólfur bíður nú nið­ur­stöðu sýna­töku sem fór fram í dag. Hann fer í fimm daga sótt­kví og í aðra sýna­töku á fimmta degi.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá emb­ætti land­læknis.

Á sama tíma er Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, kom­inn úr ein­angrun eftir að hafa fengið í sig covid-smit.

Skömmu eftir að til­kynn­ingin var send gaf Þórólfur út yfir­lýs­ingu um frétta­flutn­ing dags­ins af töfum á bólu­setn­ingu þjóð­ar­innar. 

„Að gefnu til­efni vill sótt­varna­læknir taka fram að á þess­ari stundu liggja ein­ungis fyrir áreið­an­legar upp­lýs­ingar um afhend­ingu fyrstu skammta bólu­efnis frá Pfizer. Á upp­lýs­inga­fundi í morgun mátti skilja á orðum mínum að ekki væri að vænta bólu­efna frá öðrum fram­leið­endum fyrr en á síð­ari hluta næsta árs. Þetta var ofsagt. Ísland hefur þegar tryggt sér kaup­rétt á bólu­efni fyrir um 60–70% þjóð­ar­innar en ekki liggur enn fyrir hvenær og hversu mikið bólu­efni kemur í hverri send­ingu. Áætlanir fram­leið­enda munu skýr­ast þegar fram í sækir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár