Tugir útsettir fyrir smiti eftir hópsmit í búsetuúrræði Útlendingastofnunar

Átta umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hafa greinst smit­aðir af Covid-19 og fleiri eru útsettir. Hæl­is­leit­end­urnir búa í búsetu­úr­ræði á vegum Útlend­inga­stofn­unnar en stofn­unin hefur áður verið gagn­rýnd fyrir aðbúnað í tengslum við far­ald­ur­inn.

Tugir útsettir fyrir smiti eftir hópsmit í búsetuúrræði Útlendingastofnunar

Hópsmit hefur komið upp í búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­unnar í Hafna­fjarð­arbæ, fyrir umsækj­endur um alþjóða­lega vernd, en átta manns sem þar búa eru smit­aðir af Covid-19 og fleiri eru í sótt­kví. 

Þeir átta sem smit­uð­ust dvelja nú í Far­sótta­hús­inu á Rauð­ar­ár­stíg en Gylfi Þór Þor­steins­son, for­stöðu­maður húss­ins, stað­festir í sam­tali við Stundina að þessir átta ein­stak­lingar séu ekki allir úr sömu fjöl­skyldu. „Alls komu tólf ein­stak­lingar í Far­sótta­húsið í gær úr þessum tveimur húsum í Hafn­ar­firði og þeir fóru allir í ein­angrun að beiðni Covid deildar. Átta þeirra eru smit­aðir en svo eru ein­hverjir þeirra börn sem koma í fylgd sýktra for­eldra en svo er einnig sýkt barn í hús­inu ásamt for­eldrum sínum sem ekki eru sýktir.“

Á þriðja tug eru útsettir fyrir smiti vegna hópsmits­ins og eru nú í sótt­kví. Þetta stað­festir Jóhann K. Jóhanns­son, sam­skipta­stjóri almanna­varna­deildar lög­regl­unnar í sam­tali við Stundina. Þá segir hann skýr­ast á næstu dögum hvort fleiri íbúar reyn­ist smit­aðir.

Þór­hildur Ósk Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unnar, segir að búsetu­úr­ræðið sé í tveimur fjöl­býl­is­húsum og í þeim búi tæp­lega sex­tíu manns en hún viti ekki nákvæm­lega hvernig þeir sex­tíu skipt­ast í húsin tvö. Í báðum húsum eru nú íbúar sem eru í sótt­kví vegna hópsmits­ins.

Hælisleitendur segja aðbúnað hræðilegan

Áður hafa búsetu­úr­ræði á vegum stofn­un­ar­innar ratað í fjöl­miðla varð­andi Covid-19 smit­hættu.

Í umfjöllun Stund­ar­innar frá 26. októ­ber síð­ast­liðnum, kom fram að heim­il­is­menn í búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­unar á Ásbrú, töldu aðstæður sínar hafa versnað til muna vegna Covid, þeir höfðu ekki fengið við­un­andi búnað til að verja sig gegn smiti, gátu ekki yfir­gefið her­bergi sín til að elda sér mat og fengu því mat frá Útlend­inga­stofnun tvisvar á dag en náðu þeir ekki í mat á til­settum tíma fengu þeir ekk­ert. 

„Við þjá­umst af hungri vegna skorts á mat og einnig vegna þess hve óvið­un­andi hann er. Menn hafa tekið upp á því að biðja um að fá að vera end­ur­sendir til Grikk­lands, stað sem þeir flúður til að sækja öryggi hingað.“ Svona lýsti einn heim­il­is­maður aðstæðum á Ásbrú í októ­ber síð­ast­liðnum.

Frétta­blaðið greindi frá því þriðju­dag­inn 8. des­em­ber að íbúar í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar á Grens­ás­vegi lýstu aðstæðum sínum sem hræði­legum og að þeir ótt­uð­ust um að smit kæmi upp í hús­næð­inu vegna skorts á sótt­vörnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár