Vilja merkja kolefnisspor matvæla

Þingmenn telja að merk­ingar um kolefn­is­spor á íslenskum mat­vælum gætu gefið inn­lendri fram­leiðslu sam­keppn­is­for­skot.

Vilja merkja kolefnisspor matvæla
Ólafur Þór Gunn­ars­son Þing­maður VG er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar.

Þingmenn úr fimm flokkum vilja skoða hvernig megi til­greina kolefn­is­spor mat­væla. Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þeirra skal Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skipa starfs­hóp sem móti til­lögur um hvernig megi fram­kvæma slíkar merk­ingar.

Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna, er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar, en hann hafði þegar spurt ráð­herra um hvort vinna um slíkar merk­ingar væri hafin í ráðu­neyt­inu. Svaraði ráð­herra því að starfs­hópur hefði skilað til­lögum í sept­em­ber þar sem sagt var mik­il­vægt að hvetja til slíkra merk­inga í sam­hengi við áform stjórn­valda um kolefn­is­hlut­leysi og til að hjálpa neyt­endum að taka upp­lýstar ákvarð­anir.

„Af skýrsl­unni er ljóst að þegar eru til staðar aðferðir til að meta kolefn­is­spor mat­væla, þótt ófull­komnar séu,“ segir í til­lög­unni. „Slíkar merk­ingar geta þó verið mik­il­vægar vís­bend­ingar fyrir neyt­endur. Mik­il­vægt er að hið opin­bera stígi inn á þetta svið og setji reglur því að ann­ars er hætta á því að upp spretti hinar ýmsu merk­ingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár