Steingrímur fékk 2,2 milljónir í biðlaun eftir tæpa tvo mánuði í stól forseta

Skammlíf seta Stein­gríms J. Sig­fús­sonar í stól for­seta Alþingis á meðan stjórn­ar­kreppa ríkti í árs­lok 2016 skil­aði honum bið­launum í þrjá mán­uði sam­hliða þing­setu. Þorri emb­ætt­is­tím­ans var jóla­frí.

Steingrímur fékk 2,2 milljónir í biðlaun eftir tæpa tvo mánuði í stól forseta
Stein­grímur J. Sig­fús­son Stein­grímur tók við emb­ætti for­seta Alþingis tíma­bundið í stjórn­ar­kreppu og aftur seinna sama ár þegar ný rík­is­stjórn var mynduð. Mynd: Pressphotos

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, fékk 2.152.832 kr. í bið­laun eftir að hann gegndi sama emb­ætti um tæp­lega tveggja mán­aða skeið í stjórn­ar­kreppu um mót áranna 2016 og 2017. Bið­launin fékk hann sam­hliða þing­far­ar­kaupi. Þetta kemur fram í gögnum um laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna sem gerð hafa verið opin­ber á vef Alþingis síðan.

Stein­grímur var kjör­inn for­seti Alþingis 6. des­em­ber 2016 þegar ekki hafði tek­ist að mynda rík­is­stjórn frá kosn­ingum rúmum mán­uði áður. Var hann starfs­ald­urs­for­seti á þessum tíma og er enn, þar sem hann sett­ist fyrst á þing árið 1983. Þótti því við hæfi að kjósa hann sem þing­for­seta á meðan stjórn­ar­kreppa ríkti og hlaut hann kjör með 60 af 63 atkvæðum.

„Ég var al­veg reiðubú­inn að taka þetta að mér núna í ljósi aðstæðna,“ sagði Stein­grím­ur í við­tali við Morg­un­blaðið sama dag, en starfs­ald­urs­for­seti hefur fyrsta fund nýs þings sem for­seti sam­kvæmt þing­skap­ar­lögum. „Ég geri fast­lega …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár