Steingrímur fékk 2,2 milljónir í biðlaun eftir tæpa tvo mánuði í stól forseta

Skammlíf seta Stein­gríms J. Sig­fús­sonar í stól for­seta Alþingis á meðan stjórn­ar­kreppa ríkti í árs­lok 2016 skil­aði honum bið­launum í þrjá mán­uði sam­hliða þing­setu. Þorri emb­ætt­is­tím­ans var jóla­frí.

Steingrímur fékk 2,2 milljónir í biðlaun eftir tæpa tvo mánuði í stól forseta
Stein­grímur J. Sig­fús­son Stein­grímur tók við emb­ætti for­seta Alþingis tíma­bundið í stjórn­ar­kreppu og aftur seinna sama ár þegar ný rík­is­stjórn var mynduð. Mynd: Pressphotos

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, fékk 2.152.832 kr. í bið­laun eftir að hann gegndi sama emb­ætti um tæp­lega tveggja mán­aða skeið í stjórn­ar­kreppu um mót áranna 2016 og 2017. Bið­launin fékk hann sam­hliða þing­far­ar­kaupi. Þetta kemur fram í gögnum um laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna sem gerð hafa verið opin­ber á vef Alþingis síðan.

Stein­grímur var kjör­inn for­seti Alþingis 6. des­em­ber 2016 þegar ekki hafði tek­ist að mynda rík­is­stjórn frá kosn­ingum rúmum mán­uði áður. Var hann starfs­ald­urs­for­seti á þessum tíma og er enn, þar sem hann sett­ist fyrst á þing árið 1983. Þótti því við hæfi að kjósa hann sem þing­for­seta á meðan stjórn­ar­kreppa ríkti og hlaut hann kjör með 60 af 63 atkvæðum.

„Ég var al­veg reiðubú­inn að taka þetta að mér núna í ljósi aðstæðna,“ sagði Stein­grím­ur í við­tali við Morg­un­blaðið sama dag, en starfs­ald­urs­for­seti hefur fyrsta fund nýs þings sem for­seti sam­kvæmt þing­skap­ar­lögum. „Ég geri fast­lega ráð fyr­ir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár