Kaupsýslumaður gagnrýnir aðgerðir stjórnvalda gegn Covid-19

Ole Anton Bielt­vedt birtir heil­síðu­aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu þess efnis að stjórn­völd hafi gert hrapa­leg mis­tök í bar­áttu sinni við Covid-19 veiruna

Kaupsýslumaður gagnrýnir aðgerðir stjórnvalda gegn Covid-19

Ole Anton Bielt­vedt, kaup­sýslu­maður, hefur keypt heil­síðu aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu í dag 6. októ­ber, til að varpa fram skoðun sinni á Covid-19, sem er sú að stjórn­völd taki of hart á veirunni sem að hans mati er ekki svo skæð. Yfir­skrift aug­lýs­ing­ar­innar er: „Þegar hræðsla og þrá­hyggja taka völdin af vit­inu og keyra þjóð­fé­lagið og rík­is­sjóð á hlið­ina,“ og er í formi yfir­lýs­ingar. Undir yfir­lýs­ing­unni titlar Ole sig sem for­mann sam­tak­anna, Félaga­sam­tök um sam­fé­lags­mál og betra jarð­líf.

Yfir­lýs­ing­unni er skipt í þrettán hluta sem hver fjallar um mis­tök sem hafa að hans mati verið gerð af hálfu stjórn­valda í bar­átt­unni við Covid 19. Ole segir sótt­varna­lækni og ráð­herra hafa gert „hrapa­leg mis­tök“ þegar fyr­ir­komu­lagi við landa­mærin var breytt. „Sótt­varna­læknir og ráð­herrar vissu vita­skuld, að þessi ákvörðun og aðgerð jafn­gilti lokun lands­ins fyrir ferða­mönnum, og þá um leið, end­an­legt rot­högg á það sem eftir lifði ferða­þjón­ust­unnar og tengdrar starf­semi, en létu sig samt hafa það. Eins og ekk­ert annað kæm­ist að eða hefði þýð­ingu, en meintar COVID-sótt­varnir,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Hann bendir á að þegar landa­mær­unum var lokað voru 77 virk smit. Í fram­haldi segir hann að sjö sinnum fleiri aðilar, eða 562, séu nú með virkt smit, þrátt fyrir lokun landamær­anna sem átti að draga úr smitum. Smitum hefur fjölgað umtals­vert síðan aug­lýs­ing­unni var skilað inn í gær og eru nú 747. „Og mönnum til mik­illar undr­unar, virð­ast þeir, sem að standa og ábyrgð bera, sótt­varna­læknir, heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, ekk­ert læra; berja bara höfð­inu við stein­inn,“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá Ole Anton.

„Ef það er við­ur­kennt og stað­fest, að veiran sé orðin miklu mild­ari, þá verði erf­ið­ara að stjórna fólk­inu“

Að hans mati er heil­brigð­is­ráð­herra orð­inn að „und­ir­skrifta­full­trúa sótt­varn­ar­læknis“ og minnir les­endur á að sótt­varn­ar­læknir var ráð­inn til að stjórna sótt­vörnum en ekki öðru og að ráð­herrar hafi verið kjörnir til að stjórna land­inu. „Ekki er vitað til þess, að heil­brigð­is­ráð­herra hafi gert annað en að árita minn­is­blöð sótt­varn­ar­læknis og þar með breytt þeim í reglu­gerðir.“

Í dag eru fjórir á gjör­gæslu vegna covid-19, 15 dvelja á spít­ala og 747 eru í ein­angrun heima hjá sér með virk smit. Þá eru ríf­lega 3.500 í sótt­kví þar sem þeir gætu hafa kom­ist í tær við smit. En Ole Anton full­yrðir að veiran sé orðin veik­ari þar sem dán­ar­tíðnin sé lægri nú en í vor og segir stjórn­völd leyna þeirri stað­reynd til að hafa taum­hald á almenn­ingi. „Af hverju við­ur­kenna stjórn­völd ekki, að veiran sé orðin miklu mild­ari og hættu­minni? Annars vegar, hygg ég, að sótt­varna­læknir og ráð­herrar ótt­ist, að gera mis­tök, séu þá hrædd um sitt eigið skinn, sem kannske má skilja, og, hins vegar, er sú hræðsla eflaust fyrir hendi, að, ef það er við­ur­kennt og stað­fest, að veiran sé orðin miklu mild­ari, þá verði erf­ið­ara að stjórna fólk­inu; halda vald­inu yfir því. Mikil völd hafa spillt ýmsum í gegnum tíð­ina.“

Sömu­leiðis segir hann að Covid sé langt frá því að sprengja heil­brigð­is­kerfið og að starfs­menn heil­brigð­is­kerf­is­ins fjöl­yrði um of um bága stöðu spít­al­ans í fjöl­miðlum. Hann segir umfjöllun um Covid „tröll­ríða frétta­flutn­ingi og fjöl­miðlum, eins og ekk­ert annað hafi skipt neinu veru­legu máli“.

„Bráðsmit­andi er veiran greini­lega ekki um þessar mundir“

Hann spyr hvaða máli tölur um smit og sótt­kví skipti þegar flestir sem veikj­ast séu, að hans sögn, aðeins með létt­væga flensu. „Það eru margir sjúk­dómar miklu skæð­ari, hættu­legri og ban­vænni en COVID, nú í 2. bylgju. Ætti þá ekki að fara að tína til alla dag­lega þróun í kringum þá?“ spyr hann. 

Ole segir veiruna ekki bráðsmit­andi og nefnir dæmi úr sínu eigin umhverfi. „Þar sem rúm­lega tví­tug stúlka smit­að­ist, en heim­sótti frænku sína og eig­in­mann, fólk á átt­ræðis aldri, dag­inn áður en hún veikt­ist. (Hún)kjass­aði þau og faðm­aði, án þess, að þau smit­uð­ust. Móðir stúlkunnar, kona á sex­tugs aldri, en þær búa saman, smit­að­ist heldur ekki. Bráðsmit­andi er veiran greini­lega ekki um þessar mundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár