Föður meinað að leysa út sýklalyf fyrir barnið sitt

Garðar Atli Jóhanns­son fór með fjög­urra ára gamla dóttur sína til læknis og fékk upp­á­skrifuð sýkla­lyf. Í apó­tek­inu var honum afhent blað sem hann átti að fara með til barns­móður sinnar til þess að sækja sam­þykki fyrir því að hann gæti leyst út lyf fyrir dóttur þeirra, þótt þau fari með jafna for­sjá. „Þetta var sárt,“ segir hann.

Föður meinað að leysa út sýklalyf fyrir barnið sitt

Garðar Atli Jóhanns­son, eða Gatli, er frá­skil­inn þriggja barna faðir sem deilir for­ræði með barns­móður sinni. Börnin eru viku og viku til skiptis hjá for­eldrum sínum en lög­heim­ili þeirra er hjá móður þeirra. Það þýðir að þegar Gatli fór með fjög­urra ára dóttur sína til læknis, fékk upp­á­skrifuð lyf og ætl­aði að leysa þau út var honum meinað um það, þar sem hann var ekki skráð for­eldri í kerf­inu. Þess í stað var honum afhent eyðu­blað sem hann gat beðið barns­móður sína um að fylla út og skila inn með sam­þykki um að honum væri heim­ilt að sækja lyf fyrir barnið.

Gatli segir að þetta hafi verið nið­ur­lægj­andi og sár reynsla, sem hafði nei­kvæð áhrif á bæði hann og dóttur sína. Heilsa hennar og bati hafi ekki verið höfð í fyr­ir­rúmi heldur reglu­verk sem erfitt er að skilja að sé enn við lýði árið 2020. 

Með börn­unum Gatli á þrjú börn með fyrr­ver­andi kon­unni sinni. Þau deila jafnri for­sjá og börnin eru hjá þeim viku og viku í senn.

Ríkari réttur lögheimilisforeldra

Samkvæmt lögum getur barn aðeins átt eitt lög­heim­ili, jafn­vel þótt for­eldrar fari með jafna for­sjá. Rétt­ar­staða lög­heim­il­is­for­eldris er önnur en rétt­ar­staða umgengn­is­for­eldris. Þótt ætl­ast sé til þess að for­eldrar sem fara með sam­eig­in­lega for­sjá leit­ist við að hafa sam­ráð um ákvarð­anir sem varða dag­legt líf barns­ins, hefur lög­heim­il­is­for­eldrið rík­ari rétt til ákvarð­ana­töku. Lög­heim­il­is­for­eldri hefur heim­ild til að flytja með barn inn­an­lands og ákveða í hvaða skóla barnið skuli ganga. Barna­bætur falla til þess, auk þess sem lög­heim­ilið getur haft áhrif á húsa­leigu­bætur, náms­lán og fleira.

Þessi lög hafa lengi verið gagn­rýnd og margoft hefur verið bent á mis­réttið sem þeim fylgir. Árið 2012 lagði Guð­mundur Stein­gríms­son, þáver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um jafnt búsetu­form barna sem búa á tveimur heim­ilum. Málið var aftur lagt fram árið 2013 og var þá sam­þykkt að skipa starfs­hóp til að kanna leiðir til að jafna stöðu for­eldra sem fara með jafna for­sjá barna.

„Það er ótrú­lega leið­in­legt að standa í apó­tek­inu, hald­andi á grát­andi barni og fá að heyra að ég fái ekki lyfin“

Fyrr á þessu ári var frum­varp dóms­mála­ráð­herra, Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, um skipta búsetu barns afgreitt úr rík­is­stjórn. Verði frum­varpið að lögum getur barn verið skráð í þjóð­skrá með búsetu hjá báðum for­eldrum.  

Sár reynsla 

Í til­felli Gatla og barns­móður hans hefur ríkt sam­ráð varð­andi allt sem við­kemur börn­unum og for­eldr­arnir hafa skipt með sér verkum. Þau veltu því ekk­ert fyrir sér hvort þeirra færi með dóttur þeirra til læknis þegar hún var veik þar til hann lenti á vegg í apó­tek­inu.

„Það er ótrú­lega leið­in­legt að standa í apó­tek­inu, hald­andi á grát­andi barni og fá að heyra að ég fái ekki lyfin vegna þess að ég er ekki skráður í kerf­inu. Það er eins og ég sé ekki pabbi hennar. Ég var í tvígang spurður af afgreiðslu­mann­inum hvort ég væri vissu­lega faðir barns­ins, þegar dóttir mín var búin að vera að garga yfir apó­tekið, pabbi, pabbi, ég vil fara heim, mér er illt. Þetta var bara sárt.“ 

Hann segir að upp­á­koman hafi ekki aðeins verið sár, hún hafi líka verið nið­ur­lægj­andi. Fullt af fólki hafi verið í apó­tek­inu og heyrt þetta. „Þetta var mjög vand­ræða­legt.“

Fylgja fyrirmælum ráðherra

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá apó­teki eru það fyr­ir­mæli frá Lyfja­stofnun að lyf verði ekki afhent umgengn­is­for­eldri án umboðs lög­heim­il­is­for­eldris. Kveðið er á um það í lyfja­lögum að afhend­ing lyfja fylgi reglu­gerð ráð­herra, og þar segir að lyf verði aðeins afhent sjúk­lingi eða umboðs­manni hans gegn fram­vísun per­sónu­skil­ríkja.

Gatli segir þessi lög und­ir­strika enn frekar hversu mik­il­vægt það sé að börn geti átt tvö lög­heim­ili. „Í barna­lögum eru rétt­indi barna tryggð. Þar segir meðal ann­ars að börn eigi rétt á „að lifa, þroskast og njóta verndar, umönn­unar og ann­arra rétt­inda í sam­ræmi við aldur sinn og þroska án mis­mun­unar af nokkru tagi. Óheimilt er að beita barn hvers kyns ofbeldi eða annarri van­virð­andi hátt­semi. Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa for­gang þegar teknar eru ákvarð­anir um mál­efni þess.“ Þarna var ekki verið að fylgja því sem er barni fyrir bestu. Það hlýtur að stang­ast á við barna­lög að ég geti ekki sinnt heilsu barns­ins nema með því að und­ir­rita ein­hvern papp­írs­snepil.“

UmboðGatla var afhentur þessi pappír sem barns­móðir hans gat und­ir­ritað og þar með sam­þykkt að honum væri heim­ilt að leysa út lyf fyrir barnið.

Reyndi að vanda viðbrögðin

Dóttir hans var með þvag­færa­sýk­ingu og því fylgdu mikil óþæg­indi fyrir barnið. Hann fór því með hana á lækna­vakt­ina þar sem þau fengu úrlausn sinna mála. „Ég fór síðan með hana í apó­tekið og það lá vel á okkur því við höfðum verið að fá lausn við þessu vanda­máli. Hún fékk safa og ég keypti handa henni bæði tann­bursta og glas sem hana lang­aði í. Svo gerð­ist þetta.“

Hann seg­ist hafa farið úr jafn­vægi en reynt að bíta í tung­una á sér, því dóttir hans var með honum og hann vildi vanda sam­skiptin. „En ég sagði; mikið voða­lega er þetta heimsku­legt kerfi, lok­aði aug­unum og hristi haus­inn. Dóttir mín tók eftir því að ég fór úr kerfi og vildi bara fara heim. Ég sýndi afgreiðslu­mann­inum skrif­leg sam­skipti við barns­móður mína þar sem við vorum að ræða veik­indi barns­ins en hann rétti mér samt þennan papp­írs­snepil og sagði að ég þyrfti að koma með hann und­ir­rit­aðan til að fá lyfin.“

Þegar þau voru komin heim, dóttir hans hafði fengið lyfin og Gatli hafði gefið henni að borða fór að sjóða á honum. „Mig lang­aði til þess að taka þennan pappír og skrifa fokk­ings fokk­ing fokk. En ég er að reyna að vera vand­aður. Það er bara erfitt þegar þú ert með lítið barn sem er lasið og þú ert sleg­inn í framan þegar þú ert að fá úrlausn á vanda­mál­inu. Þótt ég væri með skrif­leg sam­skipti við barns­móður mína og barnið kall­aði mig pabba oftar en einu sinni, dugði það ekki til. Mér fannst þetta mjög nið­ur­lægj­andi.“ 

Úrelt kerfi sem þarf að breyta

Vill geta gert allt fyrir börninÞað hefur tekið Gatla langan tíma að sætta sig við það að hann sé ekki skráður sem faðir barn­anna þegar hann ætlar að sækja um til dæmis íþróttir fyrir þau.

Nú eru tvö ár liðin frá því að það slitn­aði upp úr sam­bandi Gatla og fyrr­ver­andi. Þau eiga þrjú börn saman, á aldr­inu fjög­urra til tíu ára. Barnanna vegna ákváðu þau að búa nálægt hvort öðru. Úr varð að Gatli flutti í um 200 metra fjar­lægð frá henni til þess að börnin gætu auð­veld­lega farið á milli heim­ila. Bæði heim­ilin standa börn­unum alltaf opin og þau geta gengið um þau að vild. Það er því margt sem hefur gengið vel, en það sem er sár­ast í þessu öllu saman er að hann virð­ist hvergi vera skráður faðir þeirra í raf­rænum gögnum. „Ég get ekk­ert gert nema tala við barns­móður mína. Ég er bless­un­ar­lega hepp­inn að hún er mjög lið­leg. En ég lendi ítrekað á bremsum í kerf­inu. Þegar ég vil skrá krakk­ana mína í íþróttir er eins og ég eigi ekki börn. Þegar ég er að skila inn skatt­skýrslu koma börnin mín ekki upp. Ég hef ekk­ert um neitt að segja þótt for­sjáin sé sam­eig­in­leg.“

„Ég get ekk­ert gert nema tala við barns­móður mína“

Hann hefur velt því upp hvort hann gæti fengið lög­heim­ili yfir alla­vega einu barni, en það myndi hafa áhrif á styrki, afslætti og þess háttar. Ein­fald­ast væri ef börnin gætu verið með lög­heim­ili á báðum stöðum.

„Ég vil finna að ég eigi börnin. Ég vil vera mik­il­vægur í lífi þeirra og geta gert hluti fyrir þau. Ég vil ekki að allt sé á herðum barns­móður minnar og hún þurfi að sjá um allt. Ég vil létta undir með henni og taka þátt í öllu sem börnin varðar. Mér finnst skipta máli að for­eldrar sem hafa áhuga á því fái að gera það. Það er óheyri­lega erfið staða að kerfið loki svona á annað for­eldrið. Það hefur verið erfitt fyrir mig að sætta mig við það að ég hafi ekki lög­heim­ili yfir börn­unum mínum. Sem betur fer er ég svo hepp­inn að barns­móðir mín er ynd­is­leg kona og við vinnum mjög náið að öllu sem varðar börnin, en kerfið er úrelt og því þarf að breyta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár