Þriðjungur smita á írskum pöbb í miðbænum – starfsmenn Borgunar í sóttkví eftir starfsmannapartý

Þriðj­ungur Covid-smit­anna síð­ustu daga eru rakin til The Irishman Pub við Klapp­ar­stíg. Kári Stef­áns­son vill loka öllum vín­veit­inga­húsum yfir helg­ina, en eig­andi stað­ar­ins vill lengja opn­un­ar­tíma til að dreifa fólki.

Þriðjungur smita á írskum pöbb í miðbænum – starfsmenn Borgunar í sóttkví eftir starfsmannapartý

Á upp­lýs­inga­fundi um kór­ónu­veiruna í dag kom fram að af þeim 32 til­fellum sem greind voru á þriðju­dag, hafi um þriðj­ungur þeirra sem smit­uð­ust sótt sama veit­inga­stað­inn.

Samkvæmt öruggum heim­ildum Stund­ar­innar er um að ræða skemmti­stað­inn The Irishman Pub, sem áður hét Ros­en­berg. Stað­ur­inn býður upp á kara­ókí, pílu­kast, „Happy hour“ og tón­leika trú­badora. Starfs­menn stað­ar­ins hafa allir verið sendir í skimun.

Starfsmannapartý Borgunar á staðnum

The Irishman PubEr stað­settur á Klapp­ar­stíg milli Hverf­is­götu og Lauga­vegar.

Ótil­greindur fjöldi starfs­manna greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Borgunar hefur verið sendur í sótt­kví eftir starfs­mannap­artý á The Irishman Pub á föstu­dags­kvöld. Ekki er ljóst hvaðan smitið kom inn á stað­inn.

Í sam­tali við Stundina stað­festi Arnar Þór Gíslason, eig­andi Irishman Pub, að allir starfs­menn stað­ar­ins væru farnir í skimun. Blaða­maður hefur ítrekað reynt að ná sam­bandi við Borgun en ekki var svarað í þjón­ustu­síma fyr­ir­tæk­is­ins seinni part­inn í dag. Borgun þjón­ustar þús­unda fyr­ir­tæki á Íslandi, en ekki er vitað að svo stöddu hversu margir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið sendir í sótt­kví vegna smits­ins. 

Í yfir­lýs­ingu frá Borgun sem barst undir kvöld kom fram að ekki væri vitað um nein smit hjá fyr­ir­tæk­inu, en að hópur starfs­manna sem hitt­ust á staðnum hefðu ekki verið þar á skipu­legum við­burði á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Borgun vinnur með smitrakn­ing­arteymi almanna­varna að eft­ir­fylgni en ekki hafa fleiri starfs­menn en þeir sem sóttu The Irishman Pub verið settir í sótt­kví.

Vill loka öllum vínveitingahúsum yfir helgina

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sagði á upp­lýs­inga­fund­inum í dag að sjö af þeim smitum sem greindust á þriðju­dag­inn séu með svo­kallað fjórða afbrigði af veirunni. Það afbrigði fannst í tveimur frönskum ferða­mönnum sem komu til lands­ins þann 15. ágúst síð­ast­lið­inn. Fóru þeir báðir í ein­angrun. 

„Við þurfum tíma til að fylgj­ast með þróun far­ald­urs­ins. Er hann í veld­is­vexti og er veiran að fara að breið­ast út um allt.“ 

Kári Stef­áns­son

Kári sagði enn fremur á fund­inum að hann vildi helst loka öllum vín­veit­inga­húsum um helg­ina til að ná stjórn á mögu­legri nýrri bylgju far­ald­urs­ins. 

„Við þurfum tíma til að fylgj­ast með þróun far­ald­urs­ins. Er hann í veld­is­vexti og er veiran að fara að breið­ast út um allt,“ sagði Kári á upp­lýs­inga­fund­inum í dag.

Vill lengja opnunartíma

Arnar Þór Gíslason, sem einnig er eig­andi Enghlish pub, Dönsku krár­innar og fleiri staða, lagði til í dag að opn­un­ar­tími skemmti­staða yrði lengdur til þess að dreifa mann­fjöld­anum. „Það þarf að lengja opn­un­ar­tím­ann og dreifa fólki, svo það séu ekki hópa­mynd­anir,“ sagði hann í sam­tali við Vísi. Hann sagði það ekki snú­ast um gróða heldur almanna­heill, og bar þetta saman við það að loka mat­vöru­versl­unum klukkan tvö á  dag­inn. „Ímyndaðu þér rað­irnar. Það væri sturlað að gera á þeim tíma sem opið væri og allir færu að versla.“

Uppfært: 

Sótt­varn­ar­læknir og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hafa ákveðið að upp­lýsa að um The Irishman Pub var að ræða. Í til­kynn­ingu segir að gestum stað­ar­ins sé boðið í sýna­töku:

„Rétt er að taka fram að ekk­ert bendir til þess að sótt­vörnum hafi verið áfátt á veit­inga­staðnum sem um ræðir. Hætta á smiti er ávallt til staðar þar sem fjöldi fólks kemur saman. Nauð­syn­legt er að hafa uppi á þeim sem þar voru til þess að koma í veg fyrir frekar útbreiðslu veirunnar. Er þeim sem sóttu ofan­greindan stað umræddan dag á milli klukkan 16:00 og 23:00 því boðið að mæta í sýna­töku. Á morgun, föstu­dag­inn 18. sept­em­ber, geta þeir sem þar voru farið á heima­síð­una wwww.heilsuvera.is og skráð sig í sýna­töku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár