Fyrrverandi nefndarmaður í kærunefnd útlendingamála leiðir nefnd um framkvæmd útlendingalaga

Árni Helgason lög­maður sat í kæru­nefnd útlend­inga­mála um fjög­urra ára skeið áður en hann var skip­aður for­maður þing­manna­nefndar um mál­efni útlend­inga og inn­flytj­enda. Nefnd­inni er ætlað að vera ráð­herra til sam­ráðs um fram­kvæmd útlend­inga­laga.

Fyrrverandi nefndarmaður í kærunefnd útlendingamála leiðir nefnd um framkvæmd útlendingalaga
Frá kæru­nefnd í útlend­inga­nefnd Árni var skip­aður for­maður útlend­inga­nefndar í maí síð­ast­liðnum en hafði fram til þess setið í kæru­nefnd útlend­inga­mála. Mynd: Stjórnarráðið

Árni Helgason, for­maður þing­manna­nefndar um mál­efni útlend­inga og inn­flytj­enda, var nefnd­ar­maður í kæru­nefnd útlend­inga­mála áður en hann tók að sér for­mennsku í nefnd­inni. Árni leiðir því vinnu sem hefur það mark­mið að fjalla um verk­lag sem hann sjálfur tók þátt í að móta hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála um ára­bil.

Árni var nefnd­ar­maður í kæru­nefnd útlend­inga­mála á árunum 2016 til 2020 og tók á þeim tíma þátt í að úrskurða um fjöl­mörg mál er inn á borð nefnd­ar­innar komu. Meðal ann­ars skrif­aði Árni undir úrskurð nefnd­ar­innar þar sem synjun Útlend­inga­stofn­unar á umsókn Khedr-fjöl­skyld­unnar egyp­sku, sem fjallað hefur verið um síð­ustu daga, um alþjóð­lega vernd hér á landi var stað­fest, í nóv­em­ber á síð­asta ári.

Hlutverk þing­manna­nefnd­ar­innar er að vera til sam­ráðs um fram­kvæmd útlend­inga­laga og „eftir atvikum end­ur­skoðun laga og reglu­gerða á mál­efna­svið­inu með mann­úð­ar­sjón­ar­mið og skil­virka þjón­ustu til grund­vallar,“ eins og segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Nefndin var fyrst skipuð í byrjun árs 2014 af inn­an­rík­is­ráð­herra til að kanna þörf á heild­ar­end­ur­skoðun laga um útlend­inga.

Í júlí á síð­asta ári boð­aði Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, þá starf­andi dóms­mála­ráð­herra að útlend­inga­nefndin, eins og hún var kölluð, yrði end­ur­vakin en hún hafði þá verið óvirk um skeið. Í sept­em­ber á síð­asta ári skip­aði dóms­mála­ráð­herra svo Hildi Sverr­is­dóttur for­mann nefnd­ar­innar. Árni tók hins vegar við for­mennsk­unni í lok maí síð­ast­lið­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár