Samherjamálið: Þagnarskylda hvílir áfram á starfsmönnum Seðlabankans þó þeir hætti

Samherji vill rúm­lega 300 millj­óna króna bætur frá Seðla­banka Íslands. Meðal ann­ars er um að ræða vinnu við varnir útgerð­ar­innar gegn bank­anum. Stundin hefur heim­ildir fyrir því að fyrr­ver­andi starfs­maður bank­ans hafi unnið fyrir ráð­gjafa Samherja eftir að hann hætti í bank­anum og gæti Samherji nú verið að reyna að sækja þennan útlagða kostnað til Seðla­bank­ans.

Leitað til fyrrverandi starfsmanns
Leitað til fyrr­ver­andi starfs­manns Stundin hefur heim­ildir fyrir því að ráð­gjafi Samherja hafi fengið fyrr­ver­andi for­stöðu­mann í Seðla­bank­anum til að vinna að Seðla­banka­mál­inu fyrir hönd Samherja. Þor­steinn Már Bald­vins­son og Björgólfur Jóhanns­son eru for­stjórar Samherja. Mynd: Vísir/Sigurjón

Þagn­ar­skylda hvílir áfram á starfs­mönnum Seðla­banka Íslands þó þeir láti af störfum í bank­anum. Sú skylda felur meðal ann­ars í sér að þeir veiti ekki upp­lýs­ingar til ann­arra um vit­neskju sem þeir hafa fengið í starfi sínu í bank­anum.

Þetta kemur fram í svari frá Seðla­banka Íslands við spurn­ingum Stund­ar­innar um mál Hreiðars Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi for­stöðu­mann rann­sókn­ar­deildar gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, sem Stundin hefur heim­ildir fyrir að hafi starfað fyrir ráð­gjafa Samherja eftir að hann lét af störfum í bank­anum, af óþekktum ástæðum, árið 2013. Hreiðar var sem sagt sá starfs­maður Seðla­banka sem stýrði deild­inni sem sá um rann­sókn­ina á Samherja. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár