Fasteigna- og leiguverð hækkar

Framboð íbúð­ar­hús­næðis í sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur dreg­ist saman á meðan eft­ir­spurn eykst. Leigu­verð fer hækk­andi eftir dýfu í vetur.

Fasteigna- og leiguverð hækkar
Hús­næð­is­verð hækkar Bæði fast­eigna­verð og leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fara hækk­andi. Mynd: Shutterstock

Vísitala verðs á íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 1,2 pró­sent milli júlí- og júní­mán­aða í ár og á tólf mán­aða tíma­bili er hækk­unin 4,9 pró­sent. Verð íbúða í sér­býli hækkar meira en verð í fjöl­býli, um 1,4 pró­sent milli mán­aða á móti 1,1 pró­senti. Alls 737 kaup­samn­ingum var þing­lýst í júlí á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem er ríf­lega tvö­földun frá júní­mán­uði þegar 366 kaup­samn­ingum var þing­lýst. Samkvæmt gögnum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar má leiða líkum að því að hækk­andi verð skýrist af minna fram­boði íbúð­ar­hús­næðis í sölu á sama tíma og eft­ir­spurn sé veru­leg vegna lágra vaxta og mögu­leika á nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar.

Leigu­verð hækkar einnig, um 0,5 pró­sent frá júní til júlí, og hefur leigu­verð hækkað um 2,2 pró­sent frá því í júlí í fyrra. Er það annan mán­uð­inn í röð sem leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar en það lækk­aði skarpt í vetur, frá febr­úar. Þá var vísi­tala leigu­verðs 204 stig en lækk­aði næstu mán­uði og fór lægst í 195,3 stig í maí­mán­uði.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár