Smalar gætu mögulega þurft að gista í tjöldum

Covid-19 far­ald­ur­inn hefur áhrif á göngur og réttir. Öllum sem taka þátt er skylt að hlaða niður smitrakn­ing­arappi almanna­varna. Mælst er til að áfengi verði ekki haft um hönd. „Þetta er ekki sama partýið sem verið er að bjóða í,“ segir fram­kvæmda­stjóri Land­sam­taka sauð­fjár­bænda.

Smalar gætu mögulega þurft að gista í tjöldum
Tveggja kinda bil Hætt er við að göngur og réttir verði með breyttu sniði í haust frá því sem verið hefur. Mynd: Landssamtök sauðfjárbænda

Hætt er við að smala­mennska og rétt­ar­störf í sveitum verði með all nokkuð breyttu sniði í haust frá því sem verið hefur. Ástæðan er vit­an­lega Covid-19 far­ald­ur­inn sem íslenskt þjóð­fé­lag glímir nú við. Færra fólk verður við rétt­ar­störf og í sveitum er nú verið að skipu­leggja göngur með það að mark­miði að tryggja eftir bestu getu að hægt verði að koma við öllum sótt­vörnum.

Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda hafa gefið út leið­bein­ingar vegna smala­mennsku og rétt­ar­starfa. Meðal ann­ars verður hámarks­fjöldi í réttum mið­aður við 100 manns yfir 15 ára aldri og tryggja þarf að hægt sé eftir fremsta megni að halda tveggja metra regl­una í fjalla­kofum þar sem smalar þurfa að dvelja. Meðal þess sem verið er að skoða er hvort smalar þurfi í ein­hverjum til­vikum að gista í tjöldum eða ferða­vögnum. Þá er öllum skylt að hlaða niður smitrakn­ing­arappi almanna­varna og mælst er til að áfengi verði ekki haft um hönd.

Gæti orðið erfitt að halda tveggja metra regluna

Unn­steinn Snorri Snorra­son, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, segir að þegar komið er á fjall í smala­mennsku muni ekki reyn­ast flókið að halda tveggja metra regl­una. „Það geta hins vegar skap­ast vanda­mál þar sem smalar þurfa að gista í gangna­kofum, fjalla­skálum, um langan tíma. Ábyrgð­ar­menn fjall­skila þurfa að leita allra leiða til að fara eftir þeim reglum sem gilda. Menn verða að reyna að tryggja öllum þetta nánd­ar­bil. Það átta sig hins vegar allir á því hvernig aðstæður eru í þessum kofum, þar er þétt set­inn bekk­ur­inn, og menn verða bara að við­hafa eins miklar smit­varnir og hug­ast getur. Menn verða að bera grímur og sótt­hreinsa sig svo sem kostur er en það er þó ljóst að vart verður hægt að upp­fylla þessar nánd­ar­reglur að fullu. Menn verða að byrja að hugsa þetta strax og þar sem hægt er að koma við ferða­vögnum eða tjöldum þá leiti menn allra leiða til að koma þeim við. Ef að veður leyfir gætum við séð það í fyrsta skipti í áraraðir að menn myndu sofa í tjöldum í göngum.“ Unn­steinn segir þó að víða séu menn í aðstöðu til að keyra heim og gista ekki í skálum.  

„Ef að veður leyfir gætum við séð það í fyrsta skipti í áraraðir að menn myndu sofa í tjöldum í göngum“

Unn­steinn segir að allir hafi fullan skiln­ing á stöðu mála og um allt land sé fólk að skipu­leggja þessi nauð­syn­legu haust­verk sauð­fjár­bænda. Menn hafi því óskað eftir skýrum reglum um það hvernig farið yrði að og leið­bein­ing­arnar snúi að því. „Þessar leið­bein­ingar búa til eilít­inn sveigj­an­leika varð­andi tveggja metra regl­una, enda hefur það sýnt sig núna allra síð­ustu daga að þetta er ekki alveg klippt og skorið. Í lok dags er það setn­ingin „Við erum öll almanna­varnir“ sem að skiptir mestu máli í þessu og mik­il­vægt að menn fari af stað með því hug­ar­fari.“

Bændur hafa áður þurft að bregðast við aðstæðum

Bændur hafa áður upp­lifað ýmis­legt í smala­mennsku. Þannig gerði gríð­ar­legt óveður á Norð­ur­landi snemma í sept­em­ber 2012 sem olli því að allt að 10.000 kindur gróf­ust undir fönn. Ráðist var í umfangs­miklar björg­un­ar­að­gerðir og vart var hægt að tala um hefð­bundna smala­mennsku víða það haust. Unn­steinn segir að bændur og þeir sem komi þeim til aðstoðar í smala­mennsku séu því vanir því að þurfa að aðlaga sig aðstæðum og spila eftir eyr­anu. „Þetta kerfi byggir á félags­legri sam­stöðu og þegar á hefur reynt þá er það mjög sveigj­an­legt. Þetta verk­efni í haust verður unnið á sama grund­velli.“

Líklega eilítið minni glaumur og gleði

Spurður hvort bændur hafi áhyggjur af því að erfitt geti reynst að manna göngur í haust, ekki bara vegna þeirra reglna sem þarf að fylgja heldur einnig vegna þess að fólk hiki við að taka þátt sökum óvissunnar, segir Unn­steinn að það sé vissu­lega svo. „Það eru margir sem nefna það að þeir séu í vand­ræðum með að fá til sín sína vana­legu smala. Best er auð­vitað ef hægt er að manna smala­mennsku í haust sem mest með fólki af svæð­inu svo að minnka megi sam­gang milli svæða. Menn hafa áður lent í því að vera þunn­skip­aðir í göngum en við höfum ekki þungar áhyggjur af því að ekki náist að smala megn­inu af fé af fjalli, ef veður verður gott í það minnsta.“

„Það eru margir sem nefna það að þeir séu í vand­ræðum með að fá til sín sína vana­legu smala“

Hætt er við að stemn­ingin verði með nokkuð öðrum hætti í göngum og réttum í haust. Meðal ann­ars er mælst til þess að ekki verði áfengi haft um hönd. Unn­steinn segir að senni­lega verði eilítið minni söngur og glaumur í gangna­kofum og réttum nú en vant er. „Það verður færra fólk og það hefur áhrif. Þetta ákvæði er í takt við það sem almanna­varnir hafa gefið út á sínum fundum því að hæft hefur verið að rekja margt af þessum smitum til skemmt­ana­halds. Þetta er ekki sama partýið sem verið er að bjóða í. Það verða allir að átta sig á því að þarf að fara með allt öðru hug­ar­fari í þetta verk­efni en vana­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár