Elliði varar við því að íslenska lögreglan gæti þurft að vígbúast

Ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um ofbeldi almennra borg­ara gegn lög­regl­unni vöktu hörð við­brögð. Hann áréttar áhyggjur sínar af stöðu íslensku lög­regl­unnar og varar við því að hún gæti þurft að vopn­bú­ast enn frekar. Afbrota­fræð­ingur bendir á að ekk­ert styðji full­yrð­ingar Elliða um vax­andi nei­kvæðni í garð lög­reglu, sem þurfi að fara var­lega í vald­beit­ingu gagn­vart minni­hluta­hópum.

Elliði varar við því að íslenska lögreglan gæti þurft að vígbúast
Elliði Vign­is­son Telur lög­regl­una þurfa að vopn­bú­ast frekar ef nei­kvætt við­horf almenn­ings gengur ekki til baka.

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri Ölfuss, hefur áhyggjur af vax­andi til­hneig­ingu lands­manna til andúðar á lög­regl­unni. „Mér finnst það alvar­legt þegar lög­reglu­menn upp­lifa að það sé hrækt á þá,“ segir hann í sam­tali við Stundina. Elliði var gagn­rýndur harð­lega fyrir ummæli sín á Facebook, þar sem það þótti takt­laust af honum að leggja að jöfnu ofbeldi  almenn­ings á lög­reglu­mönnum hér á landi og ofbeldi banda­rísku lög­regl­unnar á jað­ar­settum minni­hluta­hópum. Hann varar  við því að lög­reglan gæti þurft að víg­bú­ast enn frekar ef nei­kvætt við­horf lands­manna batnar ekki. „Þarna er verið að gefa sér eitt­hvað sem stenst ekki skoðun,“ segir afbrota­fræð­ingur. 

Áður hafði hann birt færslu á Facebook með ljós­mynd af bróður sínum, Svavari Vign­is­syni, sem er lög­reglu­maður í Vest­mann­eyjum. „Um allan heim mót­mælir fólk nú eðli­lega ofbeldi lög­reglu í USA í garð almenn­ings. Hér á Íslandi glímum við við ofbeldi almenn­ings gagn­vart lög­reglu. #gerum betur,“ skrif­aði Elliði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn misrétti, ofbeldi og niðurlægingu
Erlent#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn mis­rétti, ofbeldi og nið­ur­læg­ingu

Mótmælin vegna dauða George Floyd hafa varpað kast­ljósi á elsta og rót­grón­asta vanda­mál Banda­ríkj­anna. Aðgerða­sinnar og skipu­leggj­endur mót­mæla segja að komið sé að löngu tíma­bæru upp­gjöri við þá kyn­þátta­hyggju sem gegn­sýrir allt dag­legt líf og póli­tík vest­an­hafs. Banda­ríska lög­reglan er sögð órjúf­an­legur hluti af kerfi sem hefur frá upp­hafi nið­ur­lægt blökku­fólk og beitt það skipu­lögðu póli­tísku ofbeldi fyrir hönd hvíta meiri­hlut­ans.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár