Skeljungur setti starfsfólk á hlutabætur tæpri viku eftir að hafa greitt 600 milljóna arð

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, segir að íslenska ríkið hafi greitt 6 til 7 milljónir af launa­kostnaði félagsins í apríl í gegnum hluta­bótaleiðina. Hluthafar félagsins fengu 600 milljónir króna í arð frá félaginu sex dögum áður en starfs­menn Skeljungs fóru á hluta­bótaleiðina. Forstjórinn segir að í júní verði enginn starfs­maður félagsins á hluta­bótum.

Sex dögum síðar
Sex dögum síðar Skelj­ungur greiddi út 600 millj­óna arð þann 2. apríl og setti svo starfs­menn á hluta­bóta­leiðna þann 8. apríl. Árni Pétur Jónsson er for­stjóri Skelj­ungs sem meðal ann­ars á bens­ín­stöðvar Orkunnar.

Olíu­félagið Skeljungur byrjaði að nýta hluta­bótaleiðina svokölluðu sex dögum eftir að hafa greitt út 600 milljóna króna arð til hluthafa félagsins í byrjun apríl. Þetta kemur fram í svörum frá forstjóra Skeljungs, Árni Pétri Jónssyni.

Hann undir­strikar að ákvörðunin að greiða út arðinn hafi verið tekin í febrúar, áður en COVID-faraldurinn skall á, og að úrræðið hafi ekki verið nýtt fyrir mjög marga starfs­menn. Þannig hafi launa­greiðslurnar frá íslenska ríkinu til starfs­mannanna numið 6 til 7 milljónum króna í apríl.

„Okkur reiknast til að „hluta­bóta­greiðslur“ sem starfs­menn Skeljungs fengu vegna apríl­mánaðar hafi numið um 6 til 7 milljónir króna,“ segir Árni Pétur. 

Þessi upphæð nemur um 1 prósenti af arðgreiðslunni sem hluthafar félagsins fengu greidda í apríl.

Árni Pétur segir ennfremur að allir hluthafar Skeljungs hafi verið hlynntir arðgreiðslunni: „Tillögu um arðgreiðslu þarf að leggja fram þremur vikum fyrir aðalfund og var hún því lögð fram í febrúar, það er áður en áhrifa Covid-19 gætti.  Tillagan hljóðaði upp á 600 milljóna króna arðgreiðslu sem greiða skyldi út 2. apríl. Á aðalfundi Skeljungs þann 5. mars var tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þann 2. apríl uppfylltum við samþykkt aðal­fundar með því að greiða arðinn,“ segir í skriflegu svari hans. 

Stundin greindi frá arðgreiðslunni út úr Skeljungi í gær og byggði á árshluta­uppgjöri olíu­félagsins sem félagið birti opinber­lega. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og þarf þar af leiðandi að birta ítarlegar upplýsingar um rekstur sinn á hverjum ársfjórðungi. Stundin hafði spurt Árna Pétur um arðgreiðsluna og ætlaða notkun á hluta­bóta­leiðinni á mánudaginn var. Forstjórinn vildi bíða með svör sín þar til eftir Skeljungur kynnti árshluta­uppgjör sitt. 

Hluta­bótaleiðin var lögfest til að gagnast fyrir­tækjum sem urðu fyrir tekju­falli vegna COVID-19. Ekki er horft á þætti eins og eiginfjár­stöðu þegar metið er hvort ríkið eigi að greiða hluta launa starfs­manna sem fá hluta­bætur. Horft er á samdrátt í tekjum. Þannig hefur til að mynda verið gagnrýnt að Bláa lónið hafi nýtt sér úrræðið eitt fyrst íslenskra fyrir­tækja þrátt fyrir að vera fjár­sterkt. 

Árni Pétur: Gert samkvæmt tilmælum stjórnvalda

Árni Pétur segir að laun helstu stjórn­enda félagsins hafi sömuleiðis verið lækkuð um 25 til 30 prósent í byrjun apríl áður en arðurinn var greiddur út og áður en Skeljungur hóf að nýta hluta­bótaleiðina. 

Forstjórinn segir að Skeljungur hafi valið að fara hluta­bótaleiðina samkvæmt tilmælum stjórn­valda og til að reyna að verja störf hjá félaginu „8. apríl var vinnu­framlag rúmlega helmings starfs­manna Skeljungs skert.   Þannig var farið að tilmælum stjórn­valda um að reyna eftir fremsta megni að halda ráðninga­sambandi við starfs­menn okkar í stað þess að fara í uppsagnir.  Með það að leiðar­ljósi þá forðuðumst við uppsagnir eins og við gátum og skertum frekar vinnu­framlag starfs­manna.“

„Ekki er gert ráð fyrir því að fólk verði í skertri vinnu í júní“

Hann segir að það sé í stöðugri endur­skoðun hvernig Skeljungur hagar vinnu­framlagi starfs­manna á þessum óvissu­tímum vegna COVID-19 og að félagið muni draga úr skertu starfs­hlutfalli þeirra sem fóru á hluta­bætur nú í maí.  „Þetta er í stöðugri endur­skoðun hjá okkur og gerum við ráð fyrir að draga úr skerðingunni núna í maí og ekki er gert ráð fyrir því að fólk verði í skertri vinnu í júní,“ segir forstjórinn.

30 millj­óna arð­greiðsla365, félag Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fékk tæp­lega 30 millj­óna króna arð frá Skelj­ungi í byrjun apríl. Eig­in­maður Ingi­bjargar, fjár­festir­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son, er stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs.

Engar uppsagnir

Árni Pétur segir að Skeljungur hafi ekki þurft að fara í neinar uppsagnir út COVID-faraldrinum: „Nei, hingað til hefur ekki verið farið í uppsagnir hjá Skeljungi vegna Covid-19.“

Enn fremur segir hann að Skeljungur hafi gripið til hagræðingar­aðgerða upp á 200 milljónir króna fyrir tímabilið apríl til desember: Notkunn á hluta­bóta­leiðinni er því hluti af þeim aðgerðum. Hann segir stöðuna óljósa, eins og gefur að skilja, en að Skeljungur muni gera hvað félagið getur til að verjast högginu af COVID-19: „Félagið hefur gripið til marg­víslegra hagræðinga­aðgerða sem að stærstum hluta snúast um almennt kostnaðar­aðhald.  Við höfum kynnt að áhrif aðhalds­aðgerða okkar muni lækka kostnað upp á rúmar 200 milljónir króna fyrir tímabilið apríl til desember  2020. Ljóst er að ákveðnir tekju­póstar, s.s. milli­landaflug, þjónusta við skemmtiferða­skip, umferð bíla­leigubíla og rútur, munu taka á sig mikið högg. Þá hefur þróun gjald­miðla og mikil lækkun á heims­markaðs­verði eldsneytis reynst félaginu erfið. Mikil óvissa ríkir um það hvernig næstu mánuðir munu þróast en við fylgjumst grant með gangi máli eins og önnur fyrirtæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

FréttirHlutabótaleiðin

Matvæla­fyrirtæki með eignar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bótaleiðina

Matvæla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eignarhalds­félags­félags á lágskatta­svæðinu Möltu sem sagt er hafa öll einkenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bótaleiðina. Framkvæmda­stjórinn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eignar­haldið á Möltu en segir að engin skilyrði vegna eignar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leiðarinnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár