Vinnslustöðin krefst fundar með Katrínu og Bjarna um milljarðs kröfu sína vegna kvóta

Stjórn útgerð­ar­fé­lags­ins Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­mann­eyjum tók ákvörðun um að krefj­ast fundar með stjórn­völdum um nið­ur­stöðu í mak­ríl­mál­inu. Á meðan heldur útgerððin til streitu tæp­lega millj­arðs króna skaða­bóta­kröfu sinni gegn Íslenska rík­inu, segir Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar og einn af hlut­höf­unum.

Vinnslustöðin krefst fundar með Katrínu og Bjarna um milljarðs kröfu sína vegna kvóta

Vinnslu­stöðin Í Vest­manna­eyjum hefur óskað eftir fundi með stjórn­völdum til að reyna að ná sáttum um skaða­bóta­kröfu útgerð­ar­fé­lags­ins í mak­ríl­mál­inu. Þar til annað verður ákveðið mun Vinnslu­stöðin halda skaða­bóta­kröfu sinni upp á 982 millj­ónir króna gegn rík­inu til streitu. Þetta segir Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar. Náist ekki sættir við ríkið mun skaða­bóta­mál Vinnslu­stöðv­ar­innar verða útkljáð fyrir dóm­stólum á næstu árum. 

Fimm af sjö útgerð­ar­fé­lögum sem stefndu rík­inu og kröfðu íslenska ríkið um sam­tals rúm­lega 10 millj­arða króna skaða­bætur út af mak­rílút­hlutun hafa fallið frá kröfu­gerð sinni á hendur vegna efna­hagsaf­leið­inga COVID-far­ald­urssins. Kröfu­gerðin vakti hörð þverpóli­tísk við­brögð og sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra til dæmis að kvóta­kerfi Íslend­inga væri ekki „nátt­úru­lög­mál“ þegar málið kom upp fyrr í apríl og ýjaði að því að hægt væri að breyta kvóta­kerf­inu.

„Orð eru til alls fyrst“

Þó skýr­ingar útgerð­ar­fé­lag­anna fimm um að falla frá skaða­bóta­kröf­unum hafi ein­göngu lotið að COVID-far­aldr­inum verður að telj­ast lík­legt að á bak við liggi flókn­ari skýr­ingar eins og til dæmis þær að fá ekki alla stjórn­mála­flokka lands­ins upp á móti sér, meðal ann­ars for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Ekkert svar borist segir Sigurgeir

Vinnslu­stöðin og Huginn frá Vest­manna­eyjum hafa hins vegar sagt að þær ætli að halda skaða­bóta­kröfum sínum til streitu.  

„Ég er búinn að óska eftir fundi með for­sætis-, fjár­mála- og sam­göngu­ráð­herra,“ segir Sig­ur­geir Brynjar, sem yfir­leitt er kall­aður Binni í Vinnslu­stöð­inni, í sam­tali við Stundina. „Nið­ur­staða okkar á stjórn­ar­fundi var sú að hætta ekki við þetta að svo stöddu heldur óska eftir fundi með for­svars­mönnum stjórn­valda og fara yfir stöð­una,“ segir hann.

Aðspurður um hvort ein­hugur hafi verið um málið í stjórn Vinnslu­stöðv­ar­innar að fara þessa leið segir Sig­ur­geir Brynjar að „meiri­hluti stjórnar“ hafi tekið þessa ákvörðun.

„Við höfum óskað eftir þvi að hitta stjórn­völd en það hefur ekk­ert svar borist við því“

Hann segir að í þess­ari ákvörðun felist ekki end­an­leg nið­ur­staða stjórnar Vinnslu­stöðv­ar­innar um halda skaða­bóta­kröf­unni til streitu heldur felst í ákvörð­un­inni að útgerðin vilji ræða við stjórn­völd á fundi fyrst og sjá svo til hvað setur eftir þann fund.

Sig­ur­geir Brynjar segir að Vinnslu­stöðin hafi frá byrjun leitað sátta í mál­inu en að engin svör hafi komið frá rík­inu. „Við buðum sættir í mál­inu þegar laga­setn­ingin var gerð á sínum tíma og höfum alltaf boðið sættir. En við höfum aldrei fengið boð um neinar sættir. Orð eru til alls fyrst. Við höfum óskað eftir þvi að hitta stjórn­völd en það hefur ekk­ert svar borist við því,“ segir Sig­ur­geir Brynjar. 

Hann segir að ákvörð­unin um að höfða málið hafi verið tekin á stjórn­ar­fundi og að hún hafi ekki verið „tekin út í loftið“ og að ákvörðun um að hætta við málið verði sömu­leiðis tekin með ígrund­uðum hætti ef svo verður.

Kaup­fé­lagið næst stærsti hlut­hafi Vinnslu­stöðv­ar­innarKaup­fé­lag Skagirð­inga er næst­stærsti hlut­hafi Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum í gegnum útgerð­ar­arm sinn, FISK Seafood. Þórólfur Gíslason er kaup­fé­lags­stjóri KS og Bjarni Mar­ons­son er stjórn­ar­for­maður.

Kaupfélagið næst stærsti hluthafinn

Vinnslu­stöðin er í eigu eign­ar­halds­fé­lags­ins Seilar ehf., útgerð­ar­arms Kaup­fé­lags Skag­firð­inga FISK Seafood, Líf­eyr­is­sjóðs Vest­manna­eyja og fjöl­marga lít­illa hlut­hafa. Seil og FISK Seafood er langstærstu hlut­haf­arnir með 40,89 pró­sent og 32,88 pró­sent. 

FISK eign­að­ist hlut­inn í Vinnslu­stöð­inni árið 2018 þegar félagið keypti hluta­bréfin af Guðmundi Krist­jáns­syni sem kenndur er við Brim. Í fyrra keypti Guð­mundur svo hluta­bréf sem FISK Seafood hafði keypt í Brimi, áður HB Granda, af líf­eyr­is­sjóðnum Gildi. FISK Seafood og Guð­mundur Krist­jáns­son hafa því átt í stórum við­skiptum inn­byrðis á liðnum árum. Guð­mundur og Vest­manna­ey­ing­arnir í hlut­hafa­hópi Vinnslu­stöðv­ar­innar, sem Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son fer fyrir, höfðu átt í ára­löngum deilum og mála­ferlum um stjórn félags­ins. Með við­skipt­unum við FISK Seafood var skorið á þann hnút sem oft­sinnis hafði verið fjallað um í fjöl­miðlum.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, í gegnum FISK Seafood, mun því njóta góðs af því með óbeinum hætti í gegnum hluta­bréfa­eign sína í Vinnslu­stöð­inni ef svo fer á end­anum að útgerðin í Eyjum fær skaða­bætur frá íslenska rík­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár