Segir ríkið verða að veita sveitarfélögunum beinan fjárhagsstuðning

Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, segir sveit­ar­fé­lögin í land­inu enga burði hafa til að takast á við að aðstoða íbúa og fyr­ir­tæki án aðkomu rík­is­valds­ins.

Segir ríkið verða að veita sveitarfélögunum beinan fjárhagsstuðning
Kallar eftir aðkomu rík­is­ins Aldís segir að þörf sé á bæði almennum aðgerðum af hálfu rík­is­ins til stuðn­ings sveit­ar­fé­lög­unum, en einnig sér­tækum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sveit­ar­fé­lögin í land­inu eru mjög mis­jafn­lega í stakk búin til að upp­fylla skyldur sínar gagn­vart íbúum sínum í ljósi afleið­inga Covid-19 far­ald­urs­ins. Ljóst er að öll sveit­ar­fé­lög verða fyrir fjár­hags­legu höggi vegna kór­óna­veirunnar og rík­is­valdið verður að stíga inn til að aðstoða sveit­ar­fé­lögin. Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, segir að bæði verði að koma til almennar, en einnig sér­tækar aðgerðir af hálfu rík­is­ins. 

„Það er ljóst að það er mjög mis­jöfn staða hjá sveit­ar­fé­lög­unum. Sum þeirra eru að fara inn í þessa tíma með mjög góða nið­ur­stöðu árs­reikn­inga, og hafa kannski verið rekin með fjár­hags­af­gangi síð­ustu ára. Fjölmörg sveit­ar­fé­lög vítt og breitt um landið standa og hafa staðið mjög vel. Svo eru önnur sveit­ar­fé­lög sem fara inn í þetta ástand í erf­iðri stöðu, til að mynda sveit­ar­fé­lög sem eru á vaxt­ar­svæðum. Það verða sveit­ar­fé­lög sem munu þurfa að skila árs­reikn­ingum í ár í bull­andi mínus, ef allt fer sem horfir, og vænt­an­lega ansi mörg,“ segir Aldís.

Algjört tekjuhrun

Aldís, sem er jafn­framt bæj­ar­stjóri Hvera­gerð­is­bæjar, segir að framundan sé gríð­ar­legur sam­dráttur í tekjum sveit­ar­fé­lag­anna. Þannig muni útsvars­tekjur drag­ast mikið saman víða, hætt sé við að tekjur vegna fast­eign­gjalda verði minni og sömu­leiðis tekju­stofnar Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga, auk þjón­ustu­gjalda. „Við erum að sjá, og munum sjá enn meiri, þunga í félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna, sér­stak­lega ef þetta verður við­var­andi ástand. Í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem ferða­þjón­ustan er burð­ar­at­vinnu­grein og sveit­ar­fé­lögin hafa engar sér­tekjur að ráði er þetta mjög erfitt. Dæmi um það er til dæmis Vík í Mýrdal þar sem við sjáum fram á 50 pró­senta atvinnu­leysi, það er bara algjört hrun. Eða í Skaft­ár­hreppi og Skútu­staða­hreppi, svo dæmi séu nefnd, þar sem atvinnu­lífið byggir því sem næst ein­göngu á ferða­þjón­ustu, þar stefnir í gríð­ar­lega erfitt ástand.“

„Það hefur verið mín skoðun að rík­is­valdið verði að grípa þann kostnað sem bæði sveit­ar­fé­lögin og eins atvinnu­lífið eru að verða fyrir“

Aldís segir að hún líti svo á að sam­tal sveit­ar­fé­lag­anna við rík­is­valdið sé við­var­andi og ljóst sé að enn eigi eftir að koma fram fleiri aðgerð­ar­pakkar, rétt eins og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, nefndi í fjöl­miðlum um liðna helgi. Það verði sam­eig­in­legt verk­efni sveit­ar­fé­lag­anna og rík­is­ins næstu miss­eri, jafn­vel ár, að koma atvinnu­líf­inu aftur á lapp­irnar.  „Það hefur verið mín skoðun að rík­is­valdið verði að grípa þann kostnað sem bæði sveit­ar­fé­lögin og eins atvinnu­lífið eru að verða fyrir og koma til aðstoðar. Svo dæmi séu tekin, þá hafa sveit­ar­fé­lögin verið að fresta fast­eigna­gjöldum á þessu ári. Við vitum að það mun gagn­ast til dæmis ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum í augna­blik­inu en að sama skapi verða þeim mjög erfið á næsta ári, þegar þau þurfa að greiða tvö­föld fast­eigna­gjöld. Að mínu mati þurfum við að ræða við rík­is­valdið um með hvaða hætti sé hægt að mæta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­unum þegar að þessu kemur. Sveit­ar­fé­lögin hafa enga burði til þess, öðru­vísi en að til komi beinn fjár­hags­legur stuðn­ingur frá rík­is­vald­inu. Það verða að koma til almennar aðgerðir en einnig sér­tækar aðgerðir til þess að sveit­ar­fé­lögin geti staðið undir þeirri þjón­ustu sem þeim er skylt að veita.“

Sameining gæti styrkt sveitarfélögin mjög

Spurð hvort hún sjái fyrir sér ein­hverja breyt­ingu á hlut­verki sveit­ar­fé­lag­anna, svo sem að þau láti frá sér verk­efni, svarar Aldís því neit­andi. Hún bendir á að lengi hafi verið til umræðu til hvaða aðgerða megi grípa til að styrkja sveit­ar­stjórn­ar­stigið, og þar á meðal sé að lög­festa lág­marks­fjölda íbúa í sveit­ar­fé­lög­unum. „Það er auð­vitað mjög mik­il­vægt að við gerum öllum sveit­ar­fé­lögum kleift að sinna þeim verk­efnum sem þeim er skylt að sinna. Með sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga gæti slag­kraftur þeirra auk­ist mjög veru­lega. Það er hins vegar ekki svo að það sé sátt um slíkt alls staðar, svo það sé tekið fram.“

Aldís bendir aftur á að fjár­hags­leg staða sé mjög mis­mun­andi eftir sveit­ar­fé­lögum, og þar skipti íbúa­fjöldi ekki endi­lega máli. Til séu fámenn sveit­ar­fé­lög sem standi afar illa, hafi mögu­lega verið þátt­tak­endur í átak­inu Brot­hættar byggðir fyrir kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn, og þar sé staðan nú auð­vitað alveg afleit. „En það eru líka til fámenn sveit­ar­fé­lög sem standa mjög vel. Það er því ekk­ert skrýtið þegar talað er um að veita mögu­lega fjár­munum úr skuld­settum rík­is­sjóði út til sveit­ar­fé­lag­anna, á grund­velli íbúa­tölu, að því sé velt upp með hvaða hætti slíkum fjár­munum sé best varið. Það er mik­il­vægt að muna að sveit­ar­fé­lög og rík­is­sjóður mynda í sam­ein­ingu hið opin­bera og bera sam­eig­in­lega ábyrgð á að allir lands­menn njóti sem bestra lífs­kjara.“




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár