Dagbók hjúkrunarfræðings á COVID-19 deildinni

Ólíkt stríðum og nátt­úru­ham­förum, sem oft­ast eru stað­bundnar hörm­ungar í afmörk­uðum heims­hlutum, hefur COVID-19 sam­einað mann­kynið sem glímir alls staðar við sama sjúk­dóm­inn og afleið­ing­arnar sem hann hefur á sam­fé­lagið. Lýsingar heil­brigð­is­starfs­fólks um allan heim eru þær sömu, frá­sagnir af ringul­reið, skorti á hlífð­ar­bún­aði og fár­veikum sjúk­lingum en líka af náunga­kær­leik, dugn­aði og sam­stöðu.

Dagbók hjúkrunarfræðings á COVID-19 deildinni

Hjúkr­un­ar­fræð­ingur á COVID-19 deild­inni á háskóla­sjúkra­hús­inu í Wales í Bret­landi ákvað að halda nákvæma dag­bók af fyrstu tveimur vökt­unum sínum í fram­varða­sveit­inni gegn kór­óna­veirunni. Rétt er að vara við sumum lýs­ing­unum í þessum ein­staka vitn­is­burði, sem hún ákvað að deila með les­endum Stund­ar­innar.

Ég er mennt­aður hjúkr­un­ar­fræð­ingur og hef unnið hjá NHS, bresku heil­brigð­is­þjón­ust­unni, í 15 ár. Fyrst um sinn vann ég í bækl­un­ar­lækn­ingum, en svo upp­götv­aði ég að ástríða mín felst í því að gera að sárum. Ég fór út í það og er sér­hæfður sára­hjúkr­un­ar­fræð­ingur fyrir allt Cardiff og Wales-svæðið í dag. Þetta reynd­ist líka fjöl­skyldu­væn­legra starf, því vakt­irnar eru frá kl. 8 til kl. 16 og frí um helgar. Ég á 20 mán­aða gamlan son og eig­in­mann sem vinnur sem arki­tekt. Hann vinnur reyndar heima um þessar mundir og verk­efnin eru fá sökum ástands­ins, svo hann sér alfarið um son okkar.  

Skipað í framvarðarsveitina

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í framlínunni

FréttirFólkið í framlínunni

„Ég fer að gráta í hvert sinn“

Amy Mitchell vinnur sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur í Victoria British Columbia í Kanada. Spít­al­inn sem hún vinnur á, The Royal Jubilee Hospital, er annar af tveimur á Vancouver Island sem sinnir COVID-19 sjúk­lingum. Amy vinnur á hjarta­deild­inni, þar sem ástand sjúk­linga er nógu stöðugt til að þeir þurfi ekki að vera á gjör­gæslu, en ekki nógu stöðugt til að bíða heima eftir þvi að kom­ast í aðgerð. Eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn hófst sér deildin núna um alla sem eru með stað­fest og grunað smit og þurfa að vera undir hjarta­eft­ir­liti. Þegar þetta er ritað hafa 38 ein­stak­lingar lát­ist úr nýju kór­óna­veirunni á svæð­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár