Segja frá mönnum sem hósta viljandi í áttina að öðrum

Ast­ma­veik kona segir mann hafa vilj­andi hóstað að sér í Krónunni í dag. Fleiri hafa sömu sögur að segja. „Hvað er fólk að hugsa í þessu ástandi?“ spyr konan.

Segja frá mönnum sem hósta viljandi í áttina að öðrum
Sótt­varnir í búð Á tímum heims­far­ald­urs kór­óna­veiru hafa margir, sér­stak­lega í við­kvæmum hópum, ákveðið að nota and­lits­grímur í mat­vöru­versl­unum. Myndin er svið­sett og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Shutterstock / Sviðsett mynd

„Maður hóstaði vilj­andi í átt­ina að mér,“ segir Elsa Soffia Jóns­dóttir, ast­ma­veik kona, sem er ein þeirra sem kvarta undan því að fólk hósti vilj­andi í átt­ina að öðrum til að hrella þau á tímum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Fleiri en hún hafa sam­bæri­lega sögu að segja.

Elsa Soffia fór í versl­un­ar­ferð í Krónuna í Vall­ar­hverfi í Kópavogi í gær, íklædd hönskum og sótt­varn­ar­grímu, þegar ókunn­ugur maður ákvað að hósta hraust­lega til hennar. 

Elsa Soffia Jóns­dóttirÁkvað að deila reynslu sinni af manni sem hóstaði að henni og hló, þar sem hún versl­aði með sótt­varn­ar­grímu vegna ast­ma­veiki.

„Mæti pari á fer­tugs aldri, sá glott á mann­inum og er ég er að mæti par­inu hóstar mað­ur­inn í átt­ina að mér og fer að hlæja og konan brosir. Ég varð miður mín og trúði ekki að þetta hafi gerst og reyndi að halda áfram að versla. En svo varð ég sár­ari og reið. Ákvað að láta þetta ekki vera. Fann hjónin við kass­ann og spurði mann­inn hvort hann væri las­inn af því hann hóstaði að mér. „Nei,“ svar­aði hann glott­andi. „Bara smá grín“. Ég sagði honum af hverju ég væri með þessa grímu og bað hann að reyna að finna þroska hjá sér til að skilja að þetta væri ekki leikur. Hvort hann gerði sér ekki grein fyrir ástand­inu.“

Tillitsleysi í verslunum

Elsa Soffia seg­ist taka eftir því að glápt sé á hana með and­lits­grímuna og veltir því fyrir sér hvort fólk átti sig ekki á því að COVID-19 geti valdið dauða hjá þeim sem eru veikir fyrir. „Óvirð­ingin er algjör! Hvað er fólk að hugsa í þessu ástandi? Eru margir sem vita ekki hvað er í gangi eða hugsa að þessi veira er ekki að fara neitt með sterka mig ...? Það er með ólík­indum hvað fólk er aga­laust og til­lits­laust. Fólk virð­ist ekki að fatta alvör­una sem er í gangi! Ég þekki margt fólk sem vinnur í versl­unum og gera ekki annað en minna fólk á að halda tveggja metra fjar­lægð. Þær bakka en fólk eltir og er komið aftur og aftur ofan í starfs­fólkið. Hvað er að hjá Íslend­ingum?“

Elsa ákvað að deila frá­sögn sinni í Facebook-hópnum Kór­óna­veiran COVID-19.

Hóstað að hlaupara

Fleiri frá­sagnir eru af sams konar fram­ferði. Þannig greinir hlaup­ari frá því að hún hafi hitt fyrir mann sem hóstaði að henni á ferð hennar um Granda í Vesturbæ Reykja­víkur. „Ég lenti í þessu líka þegar ég var úti að hlaupa. Ég stopp­aði þegar fólkið sem kom á móti mér var ekk­ert á því að víkja. Ég var að hlaupa með­fram Grand­anum og hafði ekki tök á víkja meira nema með því að hoppa út í sjó. Karlinn leit á mig eins og ég væri eitt­hvað furðu­leg og hóstaði svo í átt­ina til mína. Hann hefur ekki verið með þessa svo metra á hreinu og kannski eitt­hvað fleira,“ segir hún. 

„Sá svipað í gær í Bónus, Flata­hrauni,“ segir annar í hópnum. „Þar var pólskur brand­ara­kall um sex­tugt sem hitti yngri sam­landa sinn og konu hans. Sá yngri var nýbú­inn að spritta sig þegar sá eldri telur þétt­ings­fast í hönd­ina á honum og hristi vel, segj­andi eitt­hvað drep­fyndið. Svo sendi hann sér að kon­unni og bauð henni knús. Hún afþakk­aði.“

„Fólk er ekki í lagi eða það heldur að þetta sé bara djók“

Enn fleiri kvarta undan fram­ferði fólks í versl­unum, sem sam­ræm­ist ekki til­mælum almanna­varna. „Fólk er fífl,“ segir önnur kona. „Ég fór einmitt í Bónus í gær. Passa mig rosa­lega að halda fjar­lægð frá fólki. Staldra frekar og bíð í stað­inn fyrir að troða mér fram fyrir. En guð hjálpi mér hversu margir voru bara alveg ofan í manni. Gaf sirka þremur horn­auga þar sem þau voru alveg upp að mér færði mig frá og þá var horft á mig eins og ég væri hrein­lega geð­veik. Fólk er ekki í lagi eða það heldur að þetta sé bara djók.“

Enn önnur frá­sögn birt­ist í hópnum, í þetta sinn eftir reynslu í Breið­holt­inu. „Tvær ógeðs­legar konur í Iceland Vest­ur­bergi sem stóðu í röð­inni og skemmtu sér við að hósta ógeðs­lega út í loftið. Er ekki með neitt und­ir­liggj­andi en bý með ein­stak­lingi sem er ekki með sterk lungu. Þeir sem láta svona eins og fæð­ing­ar­hálf­vitar mega alveg búast við grófum við­brögðum, þó engin veira sé í gangi er ógeðs­legt að hósta á fólk.“

Lýsir markaleysi á bensínstöð

Svipuð frá­sögn var sögð í lok­aða Facebook-hópnum Aktí­vismi gegn nauðg­un­ar­menn­ingu fyrir rúmri viku síðan, þar sem kona greindi frá því þegar hún fór á bens­ín­stöð til að dæla á bíl­inn og reyndi halda fjar­lægð við aðra við­skipta­vini, en gekk illa vegna þess að mörk hennar voru ekki virt. Hún biðlar til fólks að virða mörk og til­mæli almanna­varna um að halda tveggja metra fjar­lægð við annað fólk á meðan sam­göngu­banni stendur vegna Covid-19. Stundin fékk heim­ild kon­unnar til að deila frá­sögn­inni.

„Frekir mið­aldra karlar geta ekki hlýtt því“

„Almanna­varnir hafa mælst til þess að tveir metrar séu á milli manna í almanna­rýmum. Frekir mið­aldra karlar geta ekki hlýtt því. Ég beið eftir því að geta borgað á bens­ín­stöð. Miðaldra, hvítur karl gengur inn og stoppar um 50 sentí­metra frá mér. Ég tek skref frá honum og minni hann á tveggja metra regl­una. Hann hlær. Spyr svo hvort ég sé í röð. Ég jánka því og þá segir freki kall­inn: „Þá er ég fyrir aftan þig,“ í sömu mund og hann færir sig nær mér. Hvernig er hægt að ætl­ast til þess að sumir menn virði okkar mörk ef þeir hlusta ekki einu sinni á almanna­varnir?“

Vilja sektir eða handtöku

Margir með­limir í hópnum Kór­óna­veiran COVID-19, sem hafa áhyggjur af dreif­ingu kór­óna­veirunnar SARS-CoV-2 á Íslandi, vilja að gripið sé til aðgerða gegn fólki sem hegðar sér með þessum hætti. 

„Taka mynd af honum og senda á almanna­varnir og segja þeim frá hvað gerð­ist,“ segir ein konan. 

„Hér á Spáni ertu hik­laust hand­tek­inn fyrir svona lagað,“ segir annar. Þá er bent á að í Danmörku liggi allt að átta ára fang­elsi við því að „vís­vit­andi smita aðra af sjúk­dóm sem getur valdið dauða“.

„Það a að sekta svona fólk,“ segir þriðja. „Það eru mynda­vélar í versl­un­inni. Held að það sé kom­inn tími til að sækja svona fólk til saka og sekta til að þau fari að taka þessu alvar­lega,“ segir önnur.

Heimilt að sekta fyrir viss brot

Samkvæmt nýjum fyr­ir­mælum um ein­angrun ein­stak­linga með COVID-19 frá til lög­reglu­emb­ætta frá Rík­is­sak­sókn­ara er heim­ilt að sekta fólk um allt að hálfa milljón króna fyrir að brjóta gegn sótt­varn­ar­lögum. Fyrst og fremst er um að ræða ákvæði sem varða brot á sótt­kví, ein­angrun eða sam­komu­banni. Ekki er ljóst hvort falli beint undir ákvæðin að hósta í átt­ina að fólki.

„Rík­is­sak­sókn­ari leggur á það áherslu að ákærendur meti hvert til­vik fyrir sig og ákvarði sekt­ar­fjár­hæð með hlið­sjón af alvar­leika brots en ljóst er að brotin geta verið afar mis­mun­andi og þar með mis alvar­leg.“

Á blaða­manna­fundi almanna­varna í dag sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn að versl­anir virtu almennt sam­komum­banni, en að fólkið væri vanda­málið, því það fylgdi ekki fjar­lægð­ar­kröfum og rydd­ist að kassa um leið og hætt væri að leið­beina því.

„Veiki hlekk­ur­inn erum við,“ sagði Víðir. „Um leið og starfs­fólk hætti að ýta fólki frá köss­unum fór fólk að ryðj­ast á kass­ana.“

„Ég er bara fúll,“ sagði hann um „hell­ing“ til­vika þess að brotið væri gegn sam­komu­banni.  Þá taldi hann hugs­an­lega tíma­bært að end­ur­skoða ákvörðun um að sleppa refs­ingum fyrir brot á sótt­varn­ar­lögum. „Við þurf­um mögu­lega að skipta um skoðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár