Heimili hælisleitenda breytt í miðstöð fyrir sóttkví

Tvær fjöl­skyldur úr hópi hæl­is­leit­enda þurftu með sól­ar­hrings fyr­ir­vara að flytja af heim­ili sínu í nýtt hús­næði vegum borg­ar­innar. Nota á hús­næðið fyrir fólk sem er í þjón­ustu borg­ar­innar og þarf að fara í sótt­kví.

Heimili hælisleitenda breytt í miðstöð fyrir sóttkví
Húsið í Sól­heimum Tvær fjöl­skyldur þurftu að rýma sínar íbúðir í hús­inu, til þess að rýma fyrir fólki í sótt­kví. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tvær fjöl­skyldur sem hafa búið í hús­næði á vegum Reykja­vík­ur­borgar í Sól­heimum fengu innan við sól­ar­hrings­frest til þess að pakka saman föggum sínum og flytja. Þær segj­ast hafa fengið að vita seinnipart mánu­dags að þær þyrftu að flytja og flutn­ing­arnir áttu sér stað strax á þriðju­dag, innan við sól­ar­hring síðar.

Í Sól­heimum hefur mynd­ast sam­fé­lag fjöl­skyldna sem styðja við bakið hver á annarri og komu flutn­ing­arnir þeim sem flytja áttu í opna skjöldu, ekki síst vegna þess hversu brátt þá bar að. „Við hjá vel­ferða­sviði þurfum að vera við öllu búin og því var ákveðið að nota ákveðnar íbúðir ef á þyrfti að halda fyrir sótt­kví fyrir þjón­ustu­þega vel­ferð­ar­sviðs,“ útskýrir Magða­lena Kjart­ans­dóttir, deild­ar­stjóri yfir hæl­is­leit­enda­teymi hjá Reykja­vík­ur­borg.

„Við hjá vel­ferða­sviði þurfum að vera við öllu búin“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár