Ríkisstjórnin vill veita þeim skattaafslátt sem kaupa þrif heima hjá sér

Hluti af aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar vegna kór­óna­veirunnar er að ýta undir að tekju­lágir þrífi heim­ili ann­arra. BSRB telur að aðgerðin geti ýtt undir dreif­ingu veirunnar og að hún sé ekki góð leið til að auka atvinnu­þátt­töku tekju­lágra.

Ríkisstjórnin vill veita þeim skattaafslátt sem kaupa þrif heima hjá sér
Rík­is­stjórnin Frumvarp rík­is­stjórn­ar­innar gerir ráð fyrir 230 millj­arða króna aðgerðum í við­bragði við heims­far­aldri kór­óna­veiru. Mynd af kynn­ingu á rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stétt­ar­fé­lagið BSRB gagn­rýnir þá aðgerð rík­is­stjórn­ar­innar að end­ur­greiða kaup­endum heima­þrifa allan virð­is­auka­skatt, sem lið í við­brögðum við COVID-19 far­ald­urs­ins, sem sér­stak­lega er ætlað að styðja atvinnu­þátt­töku tekju­lágra.

Hluti af aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar vegna far­ald­urs­ins er breyt­ing á lögum sem heim­ilar að fólk sem borgar öðrum fyrir heim­il­is­þrif og aðra heim­il­is­að­stoð, í stað þess að sinna verk­efn­unum sjálft, njóti skattaí­viln­unar í formi end­ur­greiðslu 100% virð­is­auka­skatts af kaup­unum.

Gæti ýtt undir dreifingu veirunnar

Stétt­ar­fé­lagið BSRB gagn­rýnir til­lög­una í umsögn við frum­varpið á Alþingi á þeim grunni að ekki séu „færð rök fyrir því að skortur á fjár­hags­legum hvata leiði til þess að hrein­læti á heim­ilum og í hús­fé­lögum sé ábóta­vant“. 

„Þrif á heim­ilum ann­arra sam­ræm­ast því vart til­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda.“

Auk þess telur BSRB að aðgerðin geti flýtt dreif­ingu veirunnar. „Þar að auki ríkir sam­komu­bann um þessar mundir og hvatt er til þess að fólk haldi sig sem mest heima við. Þrif á heim­ilum ann­arra sam­ræm­ast því vart til­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda.“

Meiri vinna fyrir tekjulága

Rík­is­stjórnin rök­styður aðgerð­ina meðal ann­ars með því að hún styðji við atvinnu­þátt­töku tekju­lægri hópa. „Markmið end­ur­greiðsl­unnar er að koma enn frekar til móts við heim­ilin í land­inu og verk­taka vegna kór­ónu­veirunnar með sér­tækum aðgerðum í þágu þeirra. Samkvæmt emb­ætti land­læknis liggur jafn­framt fyrir að almennt hrein­læti er ein mik­il­væg­asta vörnin gegn smiti a f kór­ónu­veirunni. Stuðn­ingur í form i end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts til ein­stak­linga og hús­fé­laga vegna kaupa á þjón­ustu í formi heim­il­is­að­stoðar, ræst­inga o.fl. getur þannig skipt máli í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Þá hefur íviln­unin einnig þau hlið­ar­á­hrif að draga svarta atvinnu­starf­semi vegna veit­ingar þeirrar þjón­ustu sem um ræðir upp á yfir­borðið og styðja enn frekar við atvinnu­þátt­töku, sér­stak­lega hjá tekju­lægri hópum.“

BSRB telur aðgerð­ina vera óæski­lega leið að því mark­miði að koma tekju­lágum á vinnu­mark­að­inn. „Þá mót­mælir banda­lagið því að þessi leið sé farin til að „styðja enn frekar við atvinnu­þátt­töku, sér­stak­lega hjá tekju­lægri hópum“.“

Hluti af 230 milljarða króna aðgerðum

Fyrir er í lögum heim­ild til sömu end­ur­greiðslu, en hún mið­ast ein­göngu við þá sem þurfa á þjón­ust­unni að halda vegna heilsu­brests, svo sem aldr­aðir, fatl­aðir eða lang­veikir. Nú geta heilsu­hraustir sem vilja borga öðrum fyrir þrif á heim­ilum sínum einnig fengið end­ur­greiðslu, verði frum­varpið sam­þykkt í óbreyttri mynd.

End­ur­greiðsla virð­is­auka­skatts af kaupum heima­þrifa eru hluti af heild­ar­að­gerð­unum „Við­spyrna fyrir Ísland - efna­hags­að­gerðir stjórn­valda vegna COVID-19“. Aðgerð­irnar eru taldar kosta um 230 millj­arða króna, eða sem nemur 8 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Frum­varpið er nú á borði efna­hags- og við­skipta­nefndar.

Forseti ASÍ átti hugmyndina

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, greindi frá því á Facebook-síðu sinni í dag að hún hefði lagt til laga­breyt­ing­una.

„Ég ætla að upp­lýsa um að þessi hug­mynd er komin frá mér enda hefur mér lengi verið hug­leikið að gera heim­il­is­störf og þá þjón­ustu sem konur veita jafn hátt undir höfði og annarri þjón­ustu. Átakið „allir vinna“ á sínum tíma var aðal­lega fyrir iðn­að­ar­manna­störfin, þ.e. þau störf sem karlar vinna inni á heim­ilum ann­arra. Þær konur sem vinna í ræst­ingum inni á heim­ilum ann­arra eru fjöl­margar en flestar vinna þær svart og kom­inn tími til, með sömu rökum og iðn­að­ar­störfin voru nið­ur­greidd, að koma þessum störfum fram í dags­ljósið. Þar með er líka verið að reyna að tryggja það að konur sem vinna við ræst­ingar séu nær öðru launa­fólki, byggi upp rétt­indi eins og aðrir í líf­eyr­is­sjóði, til fæð­ing­ar­or­lofs o.s.frv. Þetta skiptir máli og heim­il­is­þrif eiga að vera vinna sem er metin til jafns við aðra vinnu sem fram­kvæmd er, fyrir rík heim­ili sem önnur. Svo getum við hugsað saman útfærslu sem miðar að því að sem flest heim­ili hafi tæki­færi til að nýta sér þessa þjón­ustu eins og aðra þjón­ustu, jafn­vel að fólk sem lík­am­lega á erf­ið­ara með heim­il­is­störf geti notið þess­arar þjón­ustu. Þrif eru dæmi um störf sem aðal­lega konur hafa unnið launa­laust eða án rétt­inda hingað til. Endilega ræðum!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár