Sendiherra ESB á Íslandi fer úr landi

„Því miður þarf ég að fara í flýti, áður en öll flug hætta,“ sagði Michael Mann, sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi, í morgun. Lokun allra flug­leiða til Íslands er lík­lega framundan, segir utan­rík­is­ráð­herra.

Sendiherra ESB á Íslandi fer úr landi
Michael Mann Þraut­reyndur emb­ætt­is­maður hjá Evr­ópu­sam­band­inu var skip­aður for­maður sendi­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi fyrir tveimur og hálfu ári. Mynd: DIETER NAGL / AFP

„Og nú kveð ég Ísland, heim­ili mitt til tveggja og hálfs árs. Því miður þarf ég að fara í flýti, áður en öll flug hætta,“ segir Michael Mann, sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins gagn­vart Íslandi, sem er nú far­inn úr landi vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og við­bragða við honum.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra greindi í gær frá yfir­vof­andi lokun allra flug­leiða til Íslands. „Um mán­aða­mótin gætu allar flug­leiðir hafa lok­ast,“ sagði hann í yfir­lýs­ingu á Facebook.

Sendi­herra ESB hefur brugð­ist við þeim mögu­leika með því að fara úr landi. Hann þakkar Íslandi fyrir, en hér eign­að­ist hann meðal ann­ars barn. „Takk fyrir Ísland. Fallegt land og ynd­is­legt fólk. Dóttir mín fædd­ist hér. Ég hef eign­ast góða vini hér og verið stoltur af því að vera full­trúi ESB hér. Megi náið og hlýtt sam­band okkar við Ísland halda áfram,“ segir hann.

Mann seg­ist að lokum munu snúa aftur til Íslands í fram­tíð­inni, starfs síns vegna. Mann hefur tekið við nýrri stöðu í Brussel, sem snýr að heim­skauta­svæð­unum. Hann kveðst hlakka til að sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni. 

Meðal þeirra sem kveðja Mann á Facebook eru Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, Óttarr Proppé, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár