Mótmæltu brottflutningi ungs transpilts við Stjórnarráðið

Hópur fólks kom saman við Stjórn­ar­ráðið og mót­mælti í hádeg­inu.

Mótmælin í dag

„Maní á heima hér,“ hróp­aði hópur fólks sem kom saman við Stjórn­ar­ráðið í mið­borg Reykja­víkur í hádeg­inu og mót­mælti fyr­ir­hug­aðri brott­vísun tran­s­pilts­ins Manís og fjöl­skyldu hans.

Fyrir liggur að umsókn þeirra um alþjóð­lega vernd verður ekki tekin til efn­is­vinnslu hjá Útlend­inga­stofnun vegna þess að laga­leg heim­ild er fyrir því að vísa þeim beint úr landi á grund­velli Dyfl­innar-reglu­gerð­ar­innar.

Fjöl­skyld­unni, Ardeshir, Shokoufu og Maní, sem eru upp­runa­lega frá Íran, en komu til Íslands í gegnum Portúgal, hafði verið til­kynnt að brott­vísun yrði fram­fylgt af lög­regl­unni í gær, en henni var frestað vegna mót­mæla. 

Læknar þvertóku fyrir að brott­vís­unin færi fram eftir að Maní var lagður inn á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans á sunnu­dags­kvöld, þar sem hann var í ann­ar­legu ástandi vegna álags­ins sem fylgdi fyr­ir­hug­aðri brott­vísun. 

Meðal þeirra sem hafa mót­mælt eru kenn­arar í Hlíða­skóla, sem hafa sér­staka reynslu af því að lið­sinna trans­börnum.

For­eldrar ManísArdeshir og Shokoufu, for­eldrar Manís, voru stödd á mót­mæl­unum. Hér fyrir miðið.
Í við­taliFor­eldrar Manís í við­tali við RÚV á tröppum Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár