Deigkenndar pappaskeiðar, mannorð, kæling, glóandi hraun og milljónalífeyrisþegar

Kjarninn rekur einn dýnamís­kasta umræðu­vett­vang lands­ins þar sem ýmis­konar pistlar og skoð­ana­greinar birt­ast á hverju ári. Hér eru þeir fimm sem voru mest lesnir á árinu 2022.

5. Almenningur japlar á deigkenndum pappaskeiðum á meðan þeir ofurríku fá ókeypis stæði fyrir einkaþotur í miðborginni (birtist 27. júlí)

Kristján Godsk Rögn­valds­son dokt­or­snemi skrif­aði aðsenda grein um einka­þotur á Reykja­vík­ur­flug­velli og segir að yfir­gangur þeirra ofur­ríku yfir sam­eig­in­legum gæðum eins og hreinu lofti og tak­mörk­uðu rými fyrir auknum útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sé óþol­andi „og með­virkni yfir­valda gagn­vart þess­ari elítu sömu­leið­is“.

Lestu grein­ina í heild hér.

4. Hverjir eru milljónalífeyrisþegarnir, Bjarni Benediktsson? (birtist 5. júlí)

„Allt ætl­aði um koll að keyra þegar dóm­arar og efstu lög þjóð­fé­lags­ins voru krafðir um að end­ur­greiða brota­brot af mán­að­ar­tekjum sínum vegna mis­taka kerf­is­ins. Þeir þurfa ekki að lifa við flóknar skerð­ingar sem er dag­legt brauð líf­eyr­is­þega og í raun ekk­ert annað en ofur­skattur á hlægi­lega inn­komu.“ Ást­þrúður K. Jóns­dóttir skrif­aði um lífs­kjör öryrkja í aðsendri grein.

Lestu grein­ina í heild hér.

3. Mannorð Sólveigar Önnu Jónsdóttur (birtist 6. febrúar)

„Sól­veig Anna þarf að búa við enda­lausan straum af nafn­lausum árásum og aðdrótt­unum um glæp­sam­lega hegð­un, almenna mann­vonsku og per­sónu­leika­bresti; hinnar sönnu sakir hennar eru þó þær einar að hafa tekið að sér að veita kjara­bar­áttu lág­launa­fólks for­ystu og vera öfl­ugur tals­maður þeirra sem lifa frá einni launa­greiðslu til ann­arr­ar.“

Birna Gunn­ars­dóttir skrif­aði um frétta­flutn­ing í aðdrag­anda for­manns- og stjórn­ar­kjörs Eflingar.

Lestu grein­ina í heild hér.

2. Sagan af manninum sem ekki var eitrað fyrir og blaðamönnunum sem valdið vildi kæla (birtist 20. september)

Þórður Snær Júl­í­us­son skrif­aði um rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á fjórum blaða­mönnum, umfjöllun fjöl­miðla um hana, aðkomu stjórn­mála­manna og það sem gögn máls­ins sýna að átt hafi sér stað.

Lestu grein­ina í heild hér.

1. Hvað gerist ef þú fellur í glóandi hraun (birtist 17. apríl 2021)

„​​En þó gló­andi hraunið gleypi þig ekki með húð og hári er harla ólík­­­legt að þú sleppir frá því lif­andi. Í stað þess að sökkva í hraunið kviknar ein­fald­­lega í þér. Gló­andi hraun er allt að 1250° heitt – meira en 10 sinnum heit­­ara en sjóð­andi vatn - og því munu vít­iseldar umvefja þig á örskots­stundu með þeim afleið­ingum að þú fuðrar upp. Það eina sem eftir stendur verður aska sem svo bráðnar og rennur saman við gló­andi hraun­ið. Game over.“

Eig­endur Icelandic Lava Show skrif­uðu hraun­mola á Kjarn­ann í kjöl­far þess að eld­gos hófst við Fagra­dals­fjall 2021. Sú grein fór aftur á flug í ár þegar gjósa fór að nýju.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár