Hlutdeild erlendra miðla á auglýsingamarkaði eykst enn og nálgast helming

Veru­legur hluti íslensku aug­lýs­inga­kök­unnar rennur til rekstr­ar­að­ila Facebook og Google og ætla má að 43,2 af hverjum 100 krónum sem varið var í aug­lýs­ingar á Íslandi í fyrra hafi runnið til erlendra fyr­ir­tækja, sam­kvæmt nýrri úttekt Hag­stof­unnar.

Alþjóðlegu stórfyrirtækin Google og Meta taka til sín stóran hluta af því fé sem íslenskir auglýsendur nota til að koma vörum sínum og þjónustu á framfæri.
Alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækin Google og Meta taka til sín stóran hluta af því fé sem íslenskir aug­lýsendur nota til að koma vörum sínum og þjón­ustu á fram­færi. Mynd: Samsett

Næstum önnur hver króna sem varið var til birt­ingu aug­lýs­inga á Íslandi í fyrra rann til erlendra aðila, aðal­lega vegna kaupa á aug­lýs­ingum fyrir vef. Alls fóru 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa á árinu 2021 til erlendra aðila, eða 43,2 pró­sent.

Þessir erlendu aðilar eru aðal­lega Google og Facebook, en hlutur þess­ara tveggja alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækja í greiðslu­korta­við­skiptum vegna þjón­ustu­inn­flutn­ings vegna aug­lýs­inga var 95 pró­sent á síð­asta ári.

Hlutur þess­ara aðila í greiðslum vegna birt­inga aug­lýs­inga hefur farið hratt vax­andi síð­ustu ár og tvö­fald­ast á ein­ungis átta árum, en á föstu verð­lagi fóru fimm millj­arðar króna til erlendra aðila árið 2013 og, líkt og áður sagði, 9,5 millj­arðar króna í fyrra. Vöxt­ur­inn á milli áranna 2020 og 2021 nam 34 pró­sentum.

Inn­lendir fjöl­miðlar skiptu með sér 12,3 millj­örðum króna í aug­lýs­inga­tekjur á síð­asta ári. Fyrir liggur að RÚV, sem fær um fimm millj­arða króna á ári úr rík­is­sjóði, var með rúm­lega tvo millj­arða króna í aug­lýs­inga­tekjur á síð­asta ári og tekur því til sín stóra sneið af þeirri aug­lýs­inga­köku sem er til skipta inn­an­lands.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Þar segir enn fremur að eftir sam­drátt í birt­ingu aug­lýs­inga í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins árið 2020 hafi aug­lýs­inga­út­gjöld auk­ist á síð­asta ári um fimmt­ung og hafa þau ekki verið hærri síðan árið 2018 reiknað á föstu verð­lagi.

14 prósenta vöxtur í auglýsingatekjum innlendra miðla milli ára

Nokkur sam­dráttur varð í aug­lýs­inga­tekjum inn­lendra miðla árið 2020 vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en tekj­urnar juk­ust árið 2021 úr 10,8 millj­örðum í 12,2 millj­arða, reiknað á föstu verð­lagi. Þetta er um 14 pró­sent vöxtur á milli ára og voru aug­lýs­inga­tekjur inn­lendra miðla árið 2021 sam­bæri­legar við það sem þær voru á árunum 2011 til 2015 reiknað á föstu verð­lagi.

[adspot]

Sem fyrr eru dag- og viku­blöð stærsti aug­lýs­inga­mið­ill­inn hér á landi en í þeirra hlut féllu tæp­lega þrjár af hverjum tíu krónum af aug­lýs­inga­tekjum fjöl­miðla, en hlut­fall aug­lýs­inga­tekna dag- og viku­blaða heldur þó áfram að drag­ast saman. „Þetta má rekja til tveggja sam­hang­andi þátta öðrum fremur, ann­ars vegar til­komu og útbreiðslu vef­miðla og hins vegar til almenns sam­dráttar í útbreiðslu og lestri blaða,“ segir í umfjöllun Hag­stof­unnar.

Næst umsvifa­mesti aug­lýs­inga­mið­ill­inn var sjón­varp með 20 pró­senta hlut­deild og því næst vefur með 18 pró­senta hlut. Samkvæmt Hag­stof­unni má áætla að um 8 af hverjum 10 krónum sem varið var í kaup aug­lýs­inga á inn­lendum vef­miðlum hafi runnið til vefja sem starf­ræktir eru í tengslum við hefð­bundna fjöl­miðla. Hlutur hljóð­varps í inn­lendum aug­lýs­inga­tekjum nam svo 17 pró­sentum.

Sérkenni íslenska auglýsingamarkaðarins talsverð

Í umfjöllun Hag­stof­unnar má finna sam­an­burð á skipt­ingu aug­lýs­inga­fjár eftir flokkum fjöl­miðla árið 2021 við hin Norð­ur­löndin og segir Hag­stofan að sér­kenni íslensks aug­lýs­inga­mark­aðar séu tal­verð þegar litið er til þess­arar skipt­ingar.

„Hlut­deild dag- og viku­blaða er tals­vert hærri hér en almennt ger­ist á Norð­ur­löndum. Sérstaða íslensks aug­lýs­inga­mark­aðar er einnig tals­verð. Annars vegar er við­kemur hárri hlut­deild hljóð­varps (10%) í aug­lýs­inga­tekjum og hins vegar, til­tölu­lega veikri stöðu sjón­varps (11%) og vefs (55%) í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin.

Ástæður þess­arar sér­stöðu í skipt­ingu aug­lýs­inga­tekna hér á landi í sam­an­burði við það sem ger­ist á Norð­ur­lönd­unum má að nokkru rekja til sögu­legra aðstæðna. Rík­is­út­varpið hefur nán­ast frá upp­hafi flutt aug­lýs­ingar, fyrst í hljóð­varpi og síðar í sjón­varpi, önd­vert við það sem gerð­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum, sem aukið hefur einkum á vægi hljóð­varps sem aug­lýs­inga­mið­ils.

Styrka stöðu frétta­blaða á aug­lýs­inga­mark­aði er að ein­hverju leyti að rekja til þess að dag­blöð hér á landi hafa verið lands­blöð í þeim skiln­ingi að þau hafa höfðað til íbúa að miklu leyti óháð búsetu öfugt við hin Norð­ur­löndin þar sem hér­aðs­blöð hafa að tals­verðu leyti borðið blaða­út­gáf­una uppi í stað lands­blaða. Vægi frí­blaða á blaða­mark­aði í dreif­ingu og lestri er sömu­leiðis meira hér á landi en þekk­ist víð­ast hvar ann­ars staðar sem hefur stuðlað frekar að mik­il­vægi frétta­blaða sem aug­lýs­inga­miðla,“ segir í umfjöllun Hag­stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár