BÍ sendir umboðsmanni Alþingis ábendingu vegna máls gegn fjórum blaðamönnum

Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur beðið umboðs­mann Alþingis að taka afstöðu til þess hvort til­efni sé til að hann taki stjórn­sýslu lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra í máli emb­ætt­is­ins gegn fjórum blaða­mönnum til athug­unar.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands Mynd: Aðsend

Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur sent umboðs­manni Alþingis ábend­ingu vegna máls fjög­urra blaða­manna sem fengið hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra.

Blaða­menn­irnir fjórir, Aðal­steinn Kjart­ans­son á Stund­inni, Arnar Þór Ing­ólfs­son á Kjarn­anum, Þóra Arn­órs­dóttir á RÚV og Þórður Snær Júl­í­us­son á Kjarn­anum, hafa allir gefið skýrslu hjá lög­reglu vegna rann­sókn­ar­innar sem emb­ættið hefur sagt að lúti að brotum gegn frið­helgi einka­lífs en snýr að mati Blaða­manna­fé­lags­ins, miðað við þær spurn­ingar sem lög­reglan lagði fyrir blaða­menn­ina í yfir­heyrslum og þau gögn sem félagið hefur undir höndum, að frétta­skrifum þeirra um „skæru­liða­deild“ Samherja vorið 2021.

[adspot]

„Það er mik­il­vægt að fá álit Umboðs­manns Alþingis á því hvort ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra, að kalla blaða­menn til yfir­heyrslu fyrir það eitt að vinna vinn­una sína, hafi verið í sam­ræmi við hlut­verk lög­reglu og þá vernd sem fjöl­miðlar njóta sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­málum,“ er haft eftir Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­manni Blaða­manna­fé­lags­ins, í til­kynn­ingu á vef félags­ins.

„Blaða­manna­fé­lagið hefur ítrekað bent á að um störf fjöl­miðla gilda önnur lög og reglur en önnur störf, vegna hlut­verks fjöl­miðla og mik­il­vægis þeirra fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu. Hlutverk umboðs­manns er að tryggja rétt ein­stak­linga gagn­vart stjórn­völdum og því mik­il­vægt að fá úr því skorið hvort brotið hafi verið á rétti blaða­mann­anna fjög­urra í þessu til­viki. Blaða­manna­fé­lagið minnir á mik­il­vægi fjöl­miðla í því að tryggja almenn­ingi rétt til upp­lýs­inga og að frjáls frétta­flutn­ingur og vernd heim­ild­ar­manna séu grund­vall­ar­for­sendur fyrir því að fjöl­miðlar geti gegnt hlut­verki sínu í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi.“

Vernd blaðamanna

Ábending Blaða­manna­fé­lags­ins er reist á því sjón­ar­miði að ekki verði séð af þeim upp­lýs­ingum sem fram hafa komið opin­ber­lega og þeim gögnum sem félagið hefur undir höndum að ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra að beina lög­reglu­rann­sókn að blaða­mönn­unum sem sak­born­ingum vegna fyrr­nefndra frétta­skrifa fái „með nokkru móti“ sam­rýmst þeirri vernd sem blaða­menn njóta í störfum sínum á grund­velli 73. gr. stjórn­ar­skrár­innar, 10. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og sam­kvæmt 4. mgr. 228. gr. og 2. mgr. 229. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Nánar til­tekið er ábend­ingin sögð reist á því sjón­ar­miði að laga­skil­yrði hafi brostið til rann­sókn­ar­innar gegn blaða­mönn­unum og að til­efni hennar sé ekki þess eðlis að það geti rétt­lætt inn­grip lög­reglu í tján­ing­ar­frelsi þeirra.

Spurningar lögreglu lutu að fréttaflutningi

„Í því máli sem er til­efni þess­arar ábend­ingar liggur fyrir að lög­reglu­yf­ir­völd hafa veitt fjórum blaða­mönnum, sem starfa á þremur ólíkum fjöl­miðlum, rétt­ar­stöðu sak­born­ings við rann­sókn saka­máls og tekið skýrslu af þeim sem slíkum,“ segir í ábend­ing­unni sem lög­maður Magna lög­manna sendir fyrir hönd félags­ins. „Það sak­ar­efni sem blaða­mönn­unum var þar kynnt og þær spurn­ingar sem beint var til þeirra lutu að fyrr­greindum frétta­flutn­ingi af þeirra hálfu um áform og ráð­staf­anir Samherja hf. til að hafa áhrif á opin­bera umfjöllun og umræðu um fyr­ir­tækið í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar á árinu 2019 um við­skipti þess í Namibíu.“

Þannig liggur fyrir, að mati Blaða­manna­fé­lags­ins, að til­efni rann­sókn­ar­innar sé umræddur frétta­flutn­ingur og að mark­mið hennar sé að því að afla upp­lýs­inga um heim­ild­ar­menn blaða­mann­anna með það fyrir augum að upp­lýsa um ætluð refsi­verð brot gegn ákvæðum 228. og/eða 229. grein almennra hegn­ing­ar­laga er snúa að frið­helgi einka­lífs.

Átti brýnt erindi við almenning

Að mati Blaða­manna­fé­lags Íslands getur „eng­inn vafi leikið á því“ að frétta­flutn­ingur af skæru­liða­deild Samherja hafi átt brýnt erindi við almenn­ing. „Ekki aðeins var um að ræða umfjöllun um við­brögð stór­fyr­ir­tækis við fyrri fjöl­miðlaum­fjöllun um mál­efni þess sem ótví­rætt áttu erindi við almenn­ing heldur var bein­línis um að ræða umfjöllun fjöl­miðla um áform og ráð­staf­anir fyr­ir­tæk­is­ins til að hafa áhrif á umfjöllun fjöl­miðla um sjálft sig og þar með afstöðu almenn­ings til sín, þ.á.m. með því að grafa undan fjöl­miðlum og ein­stökum fjöl­miðla­mönnum sem staðið höfðu að þeirri umfjöllun.“

Réttlætanlegar aðferðir

Þá telur félagið heldur engan vafa á því að frétta­flutn­ingur blaða­mann­anna hafi skýr­lega fallið undir þá starf­semi fjöl­miðla sem lög­gjaf­inn hafði sér­stak­lega í huga við setn­ingu 4. mgr. 228. gr. og 2. mgr 229. gr. almennra hegn­ing­ar­laga og að „hags­munir almenn­ings af því að kynna sér efni hans falla undir þá almanna­hags­muni sem lög­gjaf­inn leit­að­ist við að standa vörð um með setn­ingu þess­ara ákvæða“.

Máls­grein­arnar kveða á um að ákvæði laga­grein­anna tveggja eigi ekki við þegar hátt­semi sem þar er um fjallað, þ.e. að brjóta gegn frið­helgi einka­lífs með því m.a. að afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heim­ild­ar­leysi gögnum, sé rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- og einka­hags­muna.

[adspot]

Félagið telur að ljóst megi vera, miðað við þau gögn máls­ins sem það hafi undir höndum, að lög­reglu­rann­sóknin muni ekki leiða til ákæru á hendur blaða­mönn­unum fjórum, hvað þá sak­fell­ingar.

Blaðamenn ekki undanþegnir rannsókn sakamála

Það er þó ekki unnt að mati félags­ins að leggja til grund­vallar að kvaðn­ing blaða­manna í skýrslu­töku hjá lög­reglu sem sak­born­inga í saka­máli sé létt­væg ráð­stöfun sem engin ástæða sé til að staldra við. „Blaða­menn eru vit­an­lega ekki fremur en ein­stak­lingar í öðrum starfs­stéttum und­an­þegnir rann­sókn saka­mála,“ segir í ábend­ing­unni.

[links]„Það sem hér er til umfjöll­unar, og Blaða­manna­fé­lag Íslands telur ríka ástæðu til að stað­næmst sé við, er hins vegar þegar lög­reglu­yf­ir­völd telja til­efni til að bregð­ast við frétta­flutn­ingi, sem ber­sýni­lega á brýnt erindi við almenn­ing og úti­lokað er að falið geti í sér refsi­verða hátt­semi af hálfu fjöl­miðla, með því að hefja saka­mála­rann­sókn á hendur hlut­að­eig­andi blaða­mönnum. Slík við­brögð lög­reglu við eðli­legri umfjöllun fjöl­miðla um mál­efni sem ljós­lega eiga erindi við almenn­ing eru að mati félags­ins hvorki í sam­ræmi við hlut­verk fjöl­miðla né lög­reglu í lýð­ræð­is­ríki og ekki sam­rým­an­leg þeirri vernd sem fjöl­miðlar njóta sam­kvæmt 73. gr. stjórn­ar­skrár­innar og 10. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.“

Þá segir: „Þvert á móti vekja slík við­brögð lög­reglu gagn­vart fjöl­miðlum í til­efni af frétta­flutn­ingi af sam­fé­lags­lega mik­il­vægum mál­efnum að mati Blaða­manna­fé­lags Íslands upp áleitnar spurn­ingar um hlut­verk og sam­spil lög­reglu og fjöl­miðla í lýð­ræð­is­ríki og veita um leið brýnt til­efni til nán­ari athug­unar af hálfu umboðs­manns Alþingis.“

Í því sam­bandi leggur Blaða­manna­fé­lag Íslands ríka áherslu á að ekki er nægi­legt, til að tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla sé tryggt, að blaða­menn sem sæta saka­mála­rann­sókn fyrir frétta­skrif sín séu að lokum sýkn­aðir eða mál þeirra felld niður án ákæru.

Sakamálarannsókn án tilefnis

„Án til­lits til afdrifa slíkra mála hefur tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla þegar verið skert með til­heyr­andi afleið­ingum ef blaða­menn þurfa að þola saka­mála­rann­sókn fyrir frétta­flutn­ing án til­efnis sem upp­fyllir þær kröfur sem gerðar eru sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Ítrekað skal í því sam­bandi að með slíkri rann­sókn eru blaða­menn ekki aðeins fældir frá frek­ari umfjöllun heldur jafn­framt grafið undan þeirri umfjöllun sem þegar hefur birst,“ segir enn­fremur í ábend­ing­unni.

Telur félagið að með aðgerðum lög­reglu sé ekki aðeins um brot að ræða gegn mann­rétt­indum hlut­að­eig­andi blaða­manna „heldur jafn­framt mjög alvar­lega aðför stjórn­valda að fjöl­miðla­frelsi í land­inu“.

[adspot]

Blaða­manna­fé­lagið telur að stjórn­sýsla lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra við rann­sókn ofan­greinds saka­máls falli undir það eft­ir­lit sem umboðs­manni Alþingis er falið að hafa sam­kvæmt lögum.

„Það er með allt ofan­greint í huga sem Blaða­manna­fé­lag íslands snýr sér til umboðs­manns Alþingis með beiðni um að umboðs­maður taki til þess afstöðu á grund­velli fyr­ir­liggj­andi ábend­ingar hvort til­efni sé til þess að hann taki stjórn­sýslu lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra í hlut­að­eig­andi máli til nán­ari athug­unar að eigin frum­kvæði.“

Hægt er að lesa erindið í heild sinni hér.

Tveir starfs­menn Kjarnans eru á meðal þeirra blaða­manna sem hafa stöðu sak­born­ings í rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á brotum gegn frið­helgi einka­lífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár