Lúsmýið virðist hafa náð fótfestu á Norðurlandi í sumar

Áttunda sum­arið í röð herj­aði lús­mýið á land­ann. Nærri þrefalt fleiri lands­menn telja sig hafa verið bitna af lús­mýi í sumar, tvö­falt fleiri en fyrir þremur árum. Mest var aukn­ingin á Norð­ur­landi.

Fleiri íbúar landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins telja sig hafa verið bitna af lúsmýi og mest er aukningin á Norðurlandi.
Fleiri íbúar lands­byggð­ar­innar en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telja sig hafa verið bitna af lús­mýi og mest er aukn­ingin á Norð­ur­landi. Mynd: Náttúrufræðistofnun Íslands/Erling Ólafsson

Nærri þrír af hverjum tíu full­orðnum lands­mönnum telja sig hafa verið bitna af lús­mýi á Íslandi í sumar. Það eru tvö­falt fleiri en fyrir þremur árum. Fleiri íbúar lands­byggð­ar­innar en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telja sig hafa verið bitna af lús­mýi og mest er aukn­ingin á Norð­ur­landi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup þar sem upp­lifum lands­manna af lúsmý þetta sum­arið er tekin saman.

[links]Lúsmý, sem sækir í manna­blóð, nam hér land sum­arið 2015 og er orð­inn órjúf­an­legur hluti af sum­ar­leyfum lands­manna. Í frétt sem birt­ist á vef Nátt­úru­fræði­stofn­unar í lok júní 2015 sagði meðal ann­ars:

„Und­ar­leg atvik urðu um síð­ast­liðna helgi þegar lúsmý tók að herja á íbúa sum­ar­húsa beggja vegna Hval­fjarð­ar. Ekki er vitað til að slíkar atlögur hafi átt sér stað áður hér á landi. Lúsmý er ætt örsmárra mýflugna sem lang­flest sjúga blóð úr öðrum dýrum, allt frá skor­dýrum til mann­skepna. Þeir sem fyrir atlög­unum urðu voru flestir illa útleikn­ir.“

Tvöfalt fleiri telja sig hafa verið bitna í sumar en sumarið 2019

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar telja 29 pró­sent full­orð­inna lands­manna sig hafa verið bitna af lús­mýi í sumar eða um tvö­falt fleiri en þegar spurt var fyrir þremur árum. Þá var hlut­fallið 14 pró­sent.

[adspot]Fleiri íbúar lands­byggð­ar­innar en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telja sig hafa verið bitna af lús­mýi í sumar, 26 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa telja sig hafa verið bitna en 33 pró­sent íbúa lands­byggð­ar­innar telja sig hafa verið bitna. Þetta er breyt­ing frá því fyrir þremur árum þegar bitin voru tvö­falt algeng­ari á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni.

Aukn­ingin er mest á Norð­ur­landi. Ef dreif­ingin er skoðuð eftir kjör­dæmum má sjá að hlut­fall þeirra se, telja sig hafa verið bitna af lús­mýi hækkar um 28 pró­sentu­stig í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og 25 pró­sentu­stig í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Úr einu prósenti í 26 prósent

Fyrir þremur árum taldi aðeins eitt pró­sent íbúa í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sig hafa verið bit­inn af lús­mýi en nú er hlut­fallið 26 pró­sent. Á sama tíma hefur þeim sem telja sig hafa verið bitnir í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fjölgað úr átta pró­sentum í 36 pró­sent.

Hlut­fallið hefur í raun auk­ist í öllum lands­hlutum. Þannig hefur þeim sem telja sig hafa verið bitnir af lús­mýi í Suð­ur­kjör­dæmi auk­ist úr 16 pró­sentum í 36 pró­sent. Aukn­ingin nemur níu pró­sentum í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og tíu pró­sentu­stig á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þó sum­arið sé búið og langt í næsta skammt af lús­mý­ar­bitum er ágætt að við­halda þekk­ing­unni á vágest­inum og hvernig bregð­ast má við honum.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar byggja á net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. til 11. sept­em­ber. Heild­ar­úr­takið var 1.694 og þátt­töku­hlut­fall var 49,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár