Hátt í sex þúsund skjálftar frá því á laugardag

Skjálfta­virknin í nágrenni Grinda­víkur hefur hald­ist stöðug frá því síð­degis á laug­ar­dag. Frá því á laug­ar­dags­kvöld hafa alls 11 skjálftar sem voru 4 að stærð eða stærri, mælst á svæð­inu.

Hér sést fjallið Þorbjörn við Grindavík. Grindvíkingar hafa sumir lýst stóra skjálftanum á sunnudag sem þeim harðasta af öllum þeim skjálftum sem tengst hafa umbrotunum á Reykjanesskaga undanfarin misseri.
Hér sést fjallið Þorbjörn við Grinda­vík. Grind­vík­ingar hafa sumir lýst stóra skjálft­anum á sunnu­dag sem þeim harð­asta af öllum þeim skjálftum sem tengst hafa umbrot­unum á Reykja­nesskaga und­an­farin miss­eri. Mynd: Visitreykjanes.is

Hátt í sex þús­und jarð­skjálftar hafa mælst á Reykja­nesskaga frá því um hádegi á laug­ar­dag, er ný skjálfta­hrina hófst, lík­leg­ast vegna kvikuinnskots við Fagra­dals­fjall við Grinda­vík. Stærsti skjálfti hrin­unnar hingað til mæld­ist 5,5 að stærð og voru upp­tök hans um þrjá kíló­metra norð­austan við Grinda­vík.

Samkvæmt Veð­ur­stof­unni fannst hann um allt suð­vest­an­vert landið, en til­kynn­ingar hafa borist um að hann hafi fund­ist alla leið austur í Fljóts­hlíð og vestur á Snæ­fells­nes.

Áfram héldu öfl­ugir skjálftar aðfara­nótt mánu­dags. Sá stærsti þeirra var 4,4 að stærð og reið yfir um 3,3 kíló­metra norð­vestan við Grinda­vík, en síð­ustu 48 klukku­stundir hafa alls orðið 11 jarð­skjálftar sem eru 4 að stærð eða stærri á svæð­inu.

Full­trúar frá Grinda­vík­urbæ, lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, HS Orku og fleiri aðilum komu saman til fundar í dag í kjöl­far þess­ara kröft­ugu jarð­skjálfta og fóru yfir stöð­una, út frá nýj­ustu vökt­un­ar­upp­lýs­ingum Veð­ur­stof­unnar.

Kvika ekki á hreyfingu undir upptökum skjálftanna

Í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum segir að sam­kvæmt Veð­ur­stof­unni sé lík­leg­ast að skjálft­arnir séu vegna kvikuinnskots við Fagra­dals­fjall, sem sé að valda spennu­breyt­ingum bæði vestan og austan megin við fjallið, sem fram­kallar jarð­skjálfta.

Skjálftar af þessu tagi eru gjarnan kall­aðir gikk­skjálftar og eru þeir merki um spennu­losun, en tákna ekki að kvika sé á hreyf­ingu á þeim svæðum þar sem þeir mæl­ast. Í upp­hafi skjálfta­hrin­unnar á laug­ar­dag voru skjálft­arnir á um 6-8 kíló­metra dýpi og fóru svo grynnk­andi.

[adspot]

Skjálfta­virknin hefur hins vegar hald­ist stöðug frá því um eft­ir­mið­dag­inn á laug­ar­dag og er á um 2-5 km dýpi.

Grannt er fylgst með svæð­inu af Veð­ur­stofu Íslands. Þar sem óvissu­stig er nú í gangi vegna jarð­skjálfta­hrin­unnar hefur vöktun veð­ur­stof­unnar verið aukin og skipu­lag Almanna­varna er í við­bragðs­stöðu. Jafn­framt verða þau sveit­ar­fé­lög sem mögu­lega verða fyrir áhrifum upp­lýst um leið um stöðu mála ef ein­hver frá­vik eiga sér stað sem benda til þess að eld­gos sé í vændum.

Frá Almannavörnum - Viðbúnaður og viðbragð vegna jarðskjálfta

Eitt það mik­il­væg­asta fyrir íbúa á jarð­skjálfta­svæðum er að gera ráð­staf­anir sem eykur öryggi fólks og dregur úr mögu­legu tjóni. Það sama á að sjálf­sögðu við um alla starf­semi á jarð­skjálfta­svæði. Slíkar ráð­staf­anir auka einnig örygg­is­til­finn­ingu fólks sem dregur úr van­líðan í ástandi sem þessu. Ýmislegt er hægt að gera til að auka öryggi eins og að festa þunga hluti við gólf eða veggi og hafa ekki þunga hluti á veggjum eða ofar­lega í hillum.

Hægt að kynna sér varnir og við­búnað nánar hér á heima­síðu Almanna­varna.

Að kunna og æfa við­brögð við jarð­skjálfta er einnig mik­il­vægt. Mörg slys í þessum aðstæðum eiga sér stað þegar hlaupið er af stað í jarð­skjálfta. Því er brýnt að fara yfir jarð­skjálfta­æf­ingar með fjöl­skyldu­með­limum, í skólum, á vinnu­stöðum o.s.frv.

Hægt er að kynna sér við­brögð við jarð­skjálfta nánar hér á heima­síðu Almanna­varna.

Veð­ur­stofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjót­hrun og skriður geti farið af stað í bratt­lendi og því er gott að forð­ast brattar hlíðar.

Íbúum og fyr­ir­tækjum er bent á að hafa sam­band við Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands ef tjón hafa orðið vegna skjálft­anna.

Mörgum finnst jarð­skjálftar óþægi­legir og í hrinu eins og þess­ari þarf að takast á við marga óvissu­þætti. Því er mik­il­vægt að gera það sem hægt er til að draga úr van­líðan, hlúa hvert að öðru og aðstoða þau sem síður eru í stakk búin að takast á við þessar aðstæður. Við minnum á Hjálp­ar­sím­ann 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Hjálp­ar­sím­inn er alltaf opinn, trún­aði og nafn­leynd er heitið og hann er ókeypis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár