Svona spornar þú við sóun í sumarfríinu

Það vill eng­inn koma heim í ýldu­lykt eftir gott frí. Þá vilja eflaust flestir ekki umturn­ast í umhverf­is­sóða á ferða­lag­inu. Hér eru nokkur ráð til njóta sum­ar­leyf­is­ins lang­þráða án þess að koma heim í fýlu.

Heimili eru talin ábyrg fyrir tonnum á tonn ofan af matvælum sem fara í ruslið.
Heimili eru talin ábyrg fyrir tonnum á tonn ofan af mat­vælum sem fara í ruslið.

Ef þú ert að fara í ferða­lag og ísskáp­ur­inn þinn er fullur af alls konar mat sem þú hefur bæði eytt tíma, pen­ingum og óhjá­kvæmi­lega oft nátt­úr­unnar gæðum í að koma þangað, skaltu opna hann núna og gera vörutaln­ingu. Leynist ekki þarna eitt­hvað sem mætti taka með í nesti – eða best er að setja í frysti áður en lagt er í‘ann á vit ævin­týr­anna?

Mat­ar­sóun er gríð­ar­stórt vanda­mál víð­ast hvar í heim­inum og við Íslend­ingar eigum okkar sök í því. Samkvæmt rann­sóknum sem gerðar hafa verið á umfangi mat­ar­só­unar er hún svipuð hér og í öðrum löndum Evrópu. Og því ber ekki að fagna.

[adspot]

Í skýrslu Umhverf­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir árið 2021 segir að um 8-19 pró­sent af allri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á jörð­inni af manna­völdum megi rekja til matar sem aldrei er neytt. Rann­sóknir stofn­un­ar­innar benda til að um 17 pró­sent allra mat­væla sem eru fram­leidd fari til spillis. Það gerir um 120 kíló af mat­vælum á hvert manns­barn á ári. Það er því til mik­ils að vinna, bæði fyrir umhverfið og budd­una að draga úr mat­ar­sóun.

Umhverf­is­stofnun Íslands hefur nú gefið út nokkur góð ráð til að und­ir­búa brott­för­ina og sporna gegn mat­ar­sóun:

  • Vöndum inn­kaup síð­ustu dag­ana. Fyllum ekki ísskáp­inn af ferskvöru rétt áður en lagt er af stað í frí. Reynum að saxa á það sem til er og höldum inn­kaupum í lág­marki
  • Gefum ferskvöru. Ef mikið er til af ferskvöru er um að gera að koma henni á góðan stað; til ætt­ingja, vina eða nágranna sem munu geta nýtt sér mat­inn áður en hann skemmist
  • Frystum. Kannski er eitt­hvað í eld­hús­inu sem mun nýt­ast þegar heim er komið ef við frystum mat­inn? Nið­ur­skornir ávextir geta til dæmis nýst í drykki úr bland­ar­anum eða í spenn­andi sultur. Munum líka að mjólk­ur­vörur fryst­ast vel; mjólk, smjör, rjómi og ostur sem dæmi. Og auð­vitað brauðið!
  • Nýtum í nesti. Tökum með okkur mat úr ísskápnum í ferða­lagið, hvort sem það er í nest­istösk­una til neyslu sam­dæg­urs eða til lengri tíma í kæli­boxið

Á pökkunarlistann

Ýmsar góðar venjur úr hvers­dags­líf­inu riðl­ast gjarnan þegar farið er í frí. Hér eru nokkrir hlutir sem gott er að pakka niður í tösk­una áður en lagt er í hann:

  • Fjölnota vatns­brúsi
  • Fjölnota kaffi­mál
  • Fjölnota borð­bún­aður
  • Fjölnota poki fyrir búða­ferðir

Um sex­tíu pró­sent allrar mat­ar­só­unar á sér stað inni á heim­il­unum. Fjörtíu pró­sent mat­ar­ins fara til spillis á veit­inga­stöðum, í versl­unum, á mörk­uðum og á fram­leiðslu­stað, s.s. bónda­býlum.

Þessi mikla sóun hefur ekki aðeins þau áhrif að flóð einnota umbúða eykst heldur setur sitt spor á allt líf­ríkið. Óræktað land með sínum ein­stöku vist­kerfum eru brotið undir land­búnað fyrir mat sem eng­inn borðar.

„Ef við ætlum raun­veru­lega að taka á lofts­lags­breyt­ingum, hnignun nátt­úr­unnar og vist­kerfa, mengun og sóun, verða fyr­ir­tæki, stjórn­völd og borg­arar þessa heims að gera sitt til að draga úr mat­ar­sóun,“ segir Inger Andersen, for­stjóri Umhverf­is­stofn­unar Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár