Ný mótaröð fjármögnuð af Sádi-Aröbum veldur titringi í heimi golfsins

Nokkrir af þekkt­ustu kylfingum heims leika nú á fyrsta móti LIV mótar­að­ar­innar. Mótið er með öðru sniði en þekk­ist á öðrum móta­röðum atvinnu­kylfinga og verð­launa­féð er mun hærra. Með þátt­töku hafa kylfingar misst rétt sinn til að spila á PGA mótum.

Phil Mickelson er eitt af andlitum LIV mótaraðarinnar. Hann hefur þegið um 200 milljónir Bandaríkjadala, rúma 26 milljarða króna, fyrir það eitt að taka þátt á mótaröðinni.
Phil Mickelson er eitt af and­litum LIV mótar­að­ar­innar. Hann hefur þegið um 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala, rúma 26 millj­arða króna, fyrir það eitt að taka þátt á móta­röð­inni. Mynd: EPA

Fyrsta höggið á nýrri alþjóð­legri móta­röð í golfi, LIV móta­röð­inni, var slegið á fimmtu­dag á Centurion golf­vell­inum norður af Lundúnum. Mótið er það fyrsta af átta mótum sem haldin verða á móta­röð­inni á þessu ári. Þrátt fyrir þá stað­reynd að margir af þekkt­ustu kylfingum heims séu á meðal þátt­tak­anda er móta­röðin væg­ast sagt mjög umdeild meðal kylfinga. Ástæðan er fyrst og fremst sú að móta­röðin er fjár­mögnuð af opin­berum fjár­fest­ing­ar­sjóði Sádi-Arabíu, Public Invest­ment Fund (PIF) og það eitt er víst að ekki skortir pen­inga á móta­röð­inni.

Samkvæmt umfjöllun the Guardian þá hafa Sádar dælt pen­ingum í auknum mæli í íþrótta­starf á und­an­förnum árum. Til dæmis keypti PIF ráð­andi hlut í enska knatt­spyrnu­fé­lag­inu Newcastle á síð­asta ári. PIF hefur einnig haft auga­stað á golf­heim­inum í nokkurn tíma. Félagið hefur til að mynda áður verið bak­hjarl á golf­mótum á móta­röðum karla og kvenna. Nú hefur sér­stök móta­röð fyrir karl­kylfinga litið dags­ins ljós og við það eru stjórn­endur stærstu mótarað­anna, PGA mótar­að­ar­innar í Banda­ríkj­unum og DP World Tour í Evrópu, allt annað en sáttir.

Keppendur úti í kuldanum á PGA mótaröðinni

For­svars­menn PGA mótar­að­ar­innar stigu niður fæti í vik­unni og felldu niður keppn­is­rétt þeirra kylfinga sem taka þátt á LIV móta­röð­inni. Þeir kylfingar sem hafa þegið boð um að keppa á LIV móta­röð­inni geta því ekki lengur keppt á virt­ustu móta­röð í heimi, banda­rísku PGA móta­röð­inni. Líkt og áður segir eru margar af þekkt­ustu stjörnum golf­heims­ins á meðal þátt­tak­enda á LIV móta­röð­inni, kylfingar á borð við Phil Mickelson, Dustin Johnson og Sergio Garcia. Þeir eru því nú án keppn­is­rétts á PGA móta­röð­inni.

Til þess að keppa á móta­röð atvinnu­kylfinga, á borð við PGA móta­röð­ina og DP World Tour, þurfa kylfingar að vinna sér inn keppn­is­rétt. Það geta þeir gert með því að taka þátt í úrtöku­mótum. Haldnar eru nokkrar umferðir af slíkum úrtöku­mótum og þurfa kepp­endur sem vilja kom­ast á eft­ir­sóttar mót­araðir að vera á meðal efstu manna á hverju stigi þess­ara úrtöku­móta, svo ferlið inn á slíka móta­röð er ansi strembið. Á loka­úr­töku­mót­unum fær til­tek­inn fjöldi efstu kylfinga þátt­töku­rétt á móta­röð­inni en einnig geta þeir kylfingar sem ekki eru í efstu sæt­unum fengið tak­mark­aðan þátt­töku­rétt. Þegar keppn­is­réttur er tryggður geta kylfingar svo haldið honum með því að leika vel á mótum mótar­að­ar­innar. Þannig tryggir góður árangur áfram­hald­andi keppn­is­rétt.

Styrkt­ar­að­ilar móta fá einnig tæki­færi til þess að bjóða kylfingum sem ekki hafa keppn­is­rétt að taka þátt í ein­stökum mótum. Samkvæmt til­kynn­ingu PGA mótar­að­ar­innar sem var send út á fimmtu­dag segir að þeir kylfingar sem taka þátt í mótum LIV mótar­að­ar­innar hafi einnig fyr­ir­gert rétti sínum til þess að spila á mótum PGA mótar­að­ar­innar sem gestir styrkt­ar­að­ila.

Mun meiri peningar en á hinum mótaröðunum

Þetta er því ansi stór fórn sem kylfing­arnir færa með því að ger­ast þátt­tak­endur á LIV móta­röð­inni. Eða hvað? Líkt og áður segir skortir ekki fjár­magnið og það end­ur­spegl­ast í verð­launa­fénu sem í boði er á mótum LIV mótar­að­ar­innar. Í umfjöllun Guardian kemur fram að sig­ur­veg­ari móts­ins á Centurion vell­inum fái fjórar millj­ónir Banda­ríkja­dala í sinn hlut, það er um 530 millj­ónir króna. Kylfing­ur­inn sem lendir í öðru sæti fær rúmar tvær millj­ónir dala, um 280 millj­ónir króna, og fyrir þriðja sætið fæst ein og hálf milljón dala, tæpar 200 millj­ónir króna. Eftir því sem neðar dregur á list­anum lækkar verð­launa­féð. Þó fær sá sem lendir í síð­asta sæti 120 þús­und dali í sinn hlut, tæpar 16 millj­ónir króna.

Þetta eru umtals­vert hærri upp­hæðir en þekkj­ast á hinum stóru móta­röð­unum og það á ekki bara við um féð sem fellur í hlut sig­ur­veg­ar­ans. Forbeshefur tekið saman með­al­tal verð­launa­fés kylfinga á ein­stökum golf­mótum í ár. Á fyrsta móti LIV mótar­að­ar­innar er með­al­tal verð­launa­fés á hvern þátt­tak­enda 521 þús­und dalir eða 69 millj­ónir. Á PGA móta­röð­inni er með­al­talið fyrir þá kepp­endur sem kom­ast í gegnum nið­ur­skurð­inn á bil­inu 156 til 288 þús­und dalir, eða frá 20,7 millj­ónum króna til 38,1 millj­óna.

Kepp­end­unum 48 á LIV móta­röð­inni hefur einnig verið skipt upp í tólf fjög­urra manna lið. Liðin keppa sín á milli og kylfing­arnir í þeim liðum sem standa sig best fá einnig vænar fúlgur. Það lið sem spilar á lægsta skori í fyrsta móti LIV mótar­að­ar­innar skiptir á milli sín þremur millj­ónum dala, um 400 millj­ónum króna.

Það er ekki bara verð­launa­féð sem sker LIV móta­röð­ina frá hinum móta­röð­unum því LIV mótin eru snarp­ari heldur en þau sem kylfingar eiga að venj­ast. Spilaðir eru þrír hringir í stað fjög­urra eins og venja er. Kepp­endur leika því sam­tals 54 holur og þaðan er nafn mótar­að­ar­innar komið, en 54 ritað með róm­verskum tölu­stöfum er LIV. Þar að auki er eng­inn nið­ur­skurður og því spila allir kepp­endur þrjá hringi. Þannig geta allir kepp­endur gert ráð fyrir að fá ágæta summu fyrir þátt­töku í LIV mótum en á öðrum móta­röðum er nið­ur­skurður eftir tvo keppn­is­daga. Þeir kepp­endur sem ekki kom­ast í gegnum nið­ur­skurð­inn á mótum PGA mótar­að­ar­innar og DP World Tour fá ekk­ert verð­launafé.

Segja fjármögnun íþrótta eina tegund hvítþvotts

Fyrri utan óvenju­hátt verð­launafé þá fá stærstu stjörn­u­rnar sem taka þátt í móta­röð­inni væna þóknun fyrir það eitt að spila. Heim­ildir herma að Phil Mickelson fái 200 millj­ónir dala, um 26,5 millj­arða króna, í sinn hlut fyrir það eitt að taka þátt. Dustin Johnson sem var um nokk­urt skeið efstur á heims­lista karla fær öllu minna en væna þóknun þó, 125 millj­ónir dala eða um rúm­lega 16,5 millj­arða króna.

Líkt og áður segir er móta­röðin svona umdeild vegna þess hvaðan fjár­magnið kemur. Krón­prins Sádi-Arabíu Mohammed bin Salman situr í sæti stjórn­ar­for­manns fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins PIF. Krón­prins­inn hefur verið, ásamt fleiri hátt­settum emb­ætt­is­mönnum í Sádi-Arabíu, sak­aður um að bera ábyrgð á morð­inu á blaða­mann­inum Jamal Kashoggi en hann var Sádi-Arabi og gagn­rýn­inn á þar­lend stjórn­völd.

Í umfjöllun BBC segir að Sádi-Arabía hafi á nýliðnum árum ausið fjár­magni inn í íþróttir á borð við Formúlu-1, hnefa­leika, fót­bolta og golf til þess að hvít­þvo ímynd lands­ins og orð­spor. Í umfjöll­un­inni er vitnað í Greg Norman sem er fram­kvæmda­stjóri LIV mótar­að­ar­innar en hann á að baki far­sælan feril sem kylfingur. „Við gerum öll mis­tök,“ sagði Norman þegar hann var spurður út í stjórn­völd Sádi-Arabíu og morðið á Jamal Kashoggi.

Tiger og Rory hafa ekki áhuga

Líkt og áður segir hafa for­svars­menn LIV mótar­að­ar­innar náð að sann­færa heims­fræga kylfinga um að taka þátt á móta­röð­inni, áður­nefnda Phil Mickelson, Dustin Johnson og Sergio Garcia, en einnig Louis Oosthuizen, Greame McDowell, Lee Westwood ,Martin Kaymer og Ian Poulter. Þetta eru allt þunga­vigt­ar­kylfingar en þó eru ekki allir til­búnir til þess að taka til­boði LIV mótar­að­ar­innar. Tiger Woods hefur til dæmis ekki þekkst boðið og það sama hefur Rory McIlroy gert.

„Ég held að mín afstaða hafi verið skýr frá upp­hafi. Þetta er ekki eitt­hvað sem ég vil taka þátt í,“ sagði McIlroy á blaða­manna­fundi fyrir RBC Canadian Open mótið sem haldið er um helg­ina og er hluti af PGA móta­röð­inni. Hann sagð­ist skilja ákvörðun kylfinga sem ætla að taka þátt á LIV móta­röð­inni en hann hafi engan áhuga á því að snúa bak­inu við PGA móta­röð­inni hvar hann fær tæki­færi til þess að etja kappi við bestu kylfinga í heimi.

Hann bætti því við að ákvarð­anir sem teknar eru bara vegna pen­inga séu, þegar öllu er á botn­inn hvolft, yfir­leitt slæmar ákvarð­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár